Fótbolti

Hildur, María og Lára urðu að sætta sig við silfur í bikar­úr­slita­leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rosa van Gool fagnar hér öðru marki Ajax í leiknum en í bakgruninum má sjá Hildi Antonsdóttur.
Rosa van Gool fagnar hér öðru marki Ajax í leiknum en í bakgruninum má sjá Hildi Antonsdóttur. Getty/GERRIT VAN COLOGNE

Íslendingaliðið Fortuna Sittard tapaði í dag 3-1 á móti Ajax í hollenska bikarúrslitaleiknum sem fór fram á Koning Willem II leikvanginum.

Þetta var fyrsti bikarúrslitaleikur kvennaliðs Fortuna Sittard en Ajax konur voru að vinna bikarinn í sjötta sinn.

Hildur Antonsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros voru báðar í byrjunarliði Sittard. Lára Kristín Pedersen kom inn á sem varamaður á 86. mínútu.

Staðan var markalaus fram á 54. mínútu þegar Ajax fékk vítaspyrnu.

Nadine Noordam kom Ajax í 1-0 úr vítinu og fjórum mínútum síðar skoraði Rosa van Gool annað markið.

Feli Delacauw minnkaði muninn á 65. mínútu en nær komust Sittard konur ekki.

Bente Jansen innsiglaði sigur Ajax á 85. mínútu eftir stoðsendingu frá Noordam.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×