Dæmdur fyrir kynferðisbrot en mun spila í Sádi Arabíu Spænska knattspyrnufélaginu Celta Vigo hefur tekist að losa sig við framherjann Santi Mina, sem í sumar var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot, og er hann mættur til Sádi Arabíu. Fótbolti 24. ágúst 2022 07:30
Næst leikjahæsta landsliðskona Englands leggur skóna á hilluna Jill Scott, næst leikjahæsta landsliðskona Englands frá upphafi, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Fótbolti 23. ágúst 2022 22:30
Fylkir hafði betur í toppslagnum og Grótta heldur í vonina Seinni þremur leikjum kvöldsins í Lengjudeild karla lauk nú rétt í þessu. Fylkismenn eru svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í Bestu-deildinni eftir 0-2 sigur gegn HK, Grótta heldur enn í vonina eftir nauman 1-0 sigur gegn Þór og Afturelding vann öruggan 4-0 sigur gegn Þrótti Vogum. Fótbolti 23. ágúst 2022 21:20
Kórdrengir, Grindavík og Vestri með sigra í Lengjudeildinni Þremur leikjum í Lengjudeild karla lauk nú rétt í þessu þar sem Grindavík, Vestri og Kórdrengir unnu sigra. Grindavík vann 1-3 útisigur gegn KV, Vestri vann óvæntan 4-1 sigur gegn Fjölni og Kórdrengir lögðu Selfyssinga á útivelli, 0-1. Fótbolti 23. ágúst 2022 20:07
Lærisveinar Brynjars unnu stórsigur í fallbaráttunni | Enn eitt tap Örebro Brynjar Björn Gunnarsson og lærisveinar hans í Örgryte unnu virkilega sannfærandi sigur er liðið tók á móti Norrby í sænsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 5-1, en þetta var þriðji sigur Örgryte í röð og liðið fjarlægist fallsvæðið. Fótbolti 23. ágúst 2022 18:58
„Þessi blessaða miðja er náttúrulega bara sorp“ „Juventus bara heilluðu ekkert í öðrum leik tímabilsins,“ segir Árni Þórður Randversson í hlaðvarpinu Punktur og basta. Farið var yfir aðra umferðina ítölsku úrvalsdeildarinnar í þætti dagsins. Fótbolti 23. ágúst 2022 15:30
Fyrrum leikmaður Liverpool gerir Dagnýju að fyrirliða Dagný Brynjarsdóttir er tekin við fyrirliðabandinu hjá West Ham United á Englandi. Enska ofurdeildin fer af stað í næsta mánuði. Fótbolti 23. ágúst 2022 15:16
Alexandra komin til Fiorentina Ítalska knattspyrnufélagið Fiorentina staðfesti í dag komu landsliðskonunnar Alexöndru Jóhannsdóttur sem mun spila með liðinu í vetur. Fótbolti 23. ágúst 2022 14:21
KSÍ auglýsir loks eftir manni í stað Arnars Nú þegar tuttugu mánuðir hafa liðið þar sem Arnar Þór Viðarsson hefur verið bæði þjálfari A-landsliðs karla í fótbolta og sviðsstjóri knattspyrnusviðs KSÍ hefur síðarnefnda starfið verið auglýst laust til umsóknar. Fótbolti 23. ágúst 2022 14:08
María ekki valin í norska landsliðið: 8-0 tapið kannski sá síðasti á ferlinum Hege Riise hefur valið sinn fyrsta landsliðshóp síðan að hún tók við norska kvennalandsliðinu í fótbolta. Fótbolti 23. ágúst 2022 13:45
Liverpool ekki unnið leik án Mane en Bayern með nýtt met með Mane Sadio Mane er ekki lengur leikmaður Liverpool og margir telja sjá það á sóknarleik liðsins. Nýja lið Senegalans leikur aftur á móti við hvern sinn fingur. Fótbolti 23. ágúst 2022 13:00
Ásdís Karen kölluð inn í hópinn vegna meiðsla Öglu Maríu Ásdís Karen Halldórsdóttir hefur verið kölluð inn í landsliðshóp A-landsliðs kvenna fyrir leikina mikilvægu við Hvíta-Rússland og Holland í undankeppni HM 2023 sem fara fram í byrjun september. Fótbolti 23. ágúst 2022 12:28
Úkraínska fótboltadeildin snýr aftur í miðju stríði Allar keppnisíþróttir stöðvuðust í Úkraínu þegar Rússar réðust inn í landið í febrúar og þar á meðal fótboltadeildin. Úkraínustríðið stendur enn en Úkraínumenn ætla engu að síður að hefja nýtt fótboltatímabil í dag. Fótbolti 23. ágúst 2022 09:30
Maðurinn sem lífgaði við Christian Eriksen bjargaði öðru lífi á Parken 24 ára stuðningsmaður FC Kaupmannahafnar fór í hjartastopp á Evrópuleik liðsins á móti tyrkneska félaginu Trabzonspor í síðustu viku en sá hinn sami getur þakkað líf sitt manni sem gerir það að vana sínum að bjarga mannslífum á stærsta fótboltaleikvangi Dana. Fótbolti 23. ágúst 2022 08:31
Þóttist skjóta stuðningsmenn mótherjanna Brasilíski knattspyrnumaðurinn Yago Cariello gerði allt brjálað þegar hann fagnaði sigurmarki sínu, í efstu deild Portúgals, með því að þykjast skjóta stuðningsmenn andstæðinga sinna. Fótbolti 23. ágúst 2022 08:00
Ronaldo hættur við að yfirgefa Manchester United eftir komu Casemiro Cristiano Ronaldo bað um að fá að yfirgefa Manchester United fyrr í sumar en er nú hættur við þau áform eftir að félagið tryggði sér þjónustu Casemiro frá Real Madrid. Enski boltinn 23. ágúst 2022 07:01
Ólafur Davíð: „Við munum vakna til lífsins, bíðið þið bara“ Ólafur Davíð Jóhannesson er enn taplaus eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá Val á nýjan leik fyrr í sumar en liðið gerði jafntefli við Víking í Fossvoginum í Bestu deild karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld. Fótbolti 23. ágúst 2022 06:45
Vann EM og lagði skóna á hilluna Enski framherjinn Ellen White gaf það út fyrr í dag að hún ætlar að leggja knattspyrnuskónna á hilluna og snúa sér að öðrum málum. Fótbolti 22. ágúst 2022 23:30
Arnar Bergmann: „Leggjum pælingar um toppbaráttu tímabundið til hliðar" Þrátt fyrir að hafa misst niður tveggja marka forystu í rimmu sinni við Val í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld var Arnar Bergmann Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, sáttur við frammistöðu leikmanna sína í leiknum. Fótbolti 22. ágúst 2022 23:00
Umfjöllun: Víkingur-Valur 2-2 | Draumaúrslit fyrir Blika í leik Víkings og Vals Víkingur og Valur skildu jöfn, 2-2, þegar liðin mættust í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld. Bæði lið hefðu þurft þrjú stig til þess að saxa á forskot á Breiðablik á toppi deildarinnar. Íslenski boltinn 22. ágúst 2022 22:15
„Við vissum það að það væri erfitt verkefni að koma hérna og fara með þrjú stig héðan“ „Ég er mjög sáttur. Við vissum það að það væri erfitt verkefni að koma hérna og fara með þrjú stig héðan. Það er mjög gott og við erum á góðu skriði. Þeir eru auðvitað ósigraðir síðan að þeir komu hingað í Úlfarsárdal, þennan glæsilega heimavöll, þannig að ég er bara ánægður,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-0 sigur á Fram í kvöld. Íslenski boltinn 22. ágúst 2022 21:48
„Ég gleymdi þessu sjálfsmarki um leið“ Bjarki Aðalsteinsson, fyrirliði Leiknis, skoraði sjálfsmark í 4-3 sigri þeirra á KR-ingum. Það skipti hann hins vegar litlu máli eftir leikslok. Fótbolti 22. ágúst 2022 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Fram-Breiðablik 0-2| Blikar fyrstir til að vinna Framara í Úlfarsárdal Fram tók á móti Breiðabliki í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fram hafði ekki tapað leik á nýjum heimavelli sínum í Úlfarsárdal. Breiðabliki, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, tókst hinsvegar að breyta því og vann 2-0. Íslenski boltinn 22. ágúst 2022 21:15
Fyrsti sigur Erik ten Hag kom gegn Liverpool Manchester United vann 2-1 sigur gegn erkifjendunum í Liverpool í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni en þetta var aðeins annar sigurleikur United á Liverpool í síðustu 13 tilraunum. Enski boltinn 22. ágúst 2022 21:00
Umfjöllun,viðtöl og myndir: FH-Keflavík 3-0| Endurreisn FH hófst á sigri Fyrir leikinn blésu FH-ingar í herlúðra. Boðið var meðal annars frítt á völlinn og var þetta leikurinn sem FH átti að snúa blaðinu við. Keflavík missti mann af velli á 6. mínútu. Einum fleiri skoruðu FH-ingar tvö mörk í fyrri hálfleik.Úlfur Ágúst Björnsson gerði þriðja mark FH í síðari hálfleik og gulltryggði fyrsta sigur Eiðs Smára í Bestu deildinni. Íslenski boltinn 22. ágúst 2022 20:40
Úlfur: Búinn að vinna Keflavík með bæði FH og Njarðvík FH vann sannfærandi 3-0 sigur á Keflavík. Þetta var fyrsti sigur FH-inga í Bestu deildinni síðan í 6. umferð. Úlfur Ágúst Björnsson, leikmaður FH, skoraði tvö mörk og var í skýjunum eftir leik. Fótbolti 22. ágúst 2022 20:30
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. 4-3 KR | Markaveisla í Breiðholti Botnlið Bestu-deildarinnar, Leiknir, vann eins marks sigur á KR í sjö marka leik í Breiðholti, 4-3. Leiknir lyftir sér úr botnsæti deildarinnar með sigrinum á meðan tapið heggur skrað í Evrópudrauma KR-inga. Íslenski boltinn 22. ágúst 2022 20:00
Valgeir á toppinn eftir sigur gegn Aroni og Óla í Svíþjóð Valgeir Lunddal Friðriksson, leikmaður Häcken, lék allan leikinn í 0-1 sigri liðsins á útivelli gegn Aroni Bjarnasyni og Óla Val Ómarssyni, leikmönnum Sirius, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 22. ágúst 2022 19:15
Aron Elís hafði betur í Íslendingaslagnum í dönsku úrvalsdeildinni Odense vann dramatískan 1-0 sigur á Horsens í 6. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fótbolti 22. ágúst 2022 18:55
Smalling tryggði Rómverjum sigur Roma heldur áfram góðri byrjun sinni á Ítalíu en liðið vann sinn annan sigur í jafn mörgum leikjum þegar Roma vann 1-0 sigur á Cremonese í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 22. ágúst 2022 18:29