Fótbolti

Titillinn hrifsaður úr greipum Diljár og fall blasir við Sveini

Sindri Sverrisson skrifar
Diljá Ýr Zomers og stöllur í OH Leuven eiga ekki lengur raunhæfa von um belgíska meistaratitilinn.
Diljá Ýr Zomers og stöllur í OH Leuven eiga ekki lengur raunhæfa von um belgíska meistaratitilinn. @ohlwomen

Diljá Ýr Zomers og stöllur hennar í OH Leuven urðu í annað sinn á einni viku að sætta sig við naumt tap í toppslag í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Titillinn er þar með svo gott sem runninn þeim úr greipum.

Diljá var að vanda í liði Leuven í dag þegar liðið tók á móti Standard Liege en gestirnir höfðu betur, 1-0, og komust á topp deildarinnar, í það minnsta tímabundið. Áður hafði Leuven tapað fyrir Anderlecht fyrir viku síðan.

Þegar tvær umferðir eru eftir er Leuven með 35 stig í 3. sæti, Standard efst með 39 stig og Anderlecht með 38 auk þess að eiga leik til góða síðar í dag.

Sveinn Aron við það að falla

Sveinn Aron Guðjohnsen var á varamannabekknum hjá Hansa Rostock sem tapaði fimmta leik sínum í röð í þýsku B-deildinni, 2-1 gegn Schalke.

Hansa er í fallsæti og fellur ef Wehen Wiesbaden vinnur sinn leik á morgun, við Braunschweig sem Þórir Jóhann Helgason leikur með.

Hansa er einu stigi á eftir Wehen Wiesbaden en með mun verri markatölu og þyrfti að vinna Paderborn í lokaumferðinni til að forðast fall, og treysta á að Wehen Wiesbaden fái aðeins eitt stig úr síðustu tveimur leikjum sínum.

Sveinn Aron hefur aðeins fengið einn leik í byrjunarliði Hansa frá því að hann var keyptur frá Elfsborg í ársbyrjun, en spilað ellefu deildarleiki.

Emelíu skipt inn á og aftur út af

Í Danmörku fagnaði Emelía Óskarsdóttir 2-0 sigri með Köge gegn Bröndby. Kristín Dís Árnadóttir var í byrjunarliði Bröndby en var skipt af velli í upphafi seinni hálfleiks, þegar staðan var orðin 2-0, og Hafrún Rakel Halldórsdóttir var ekki með liðinu.

Samkvæmt leikskýrslu á kvindeliga.dk var Emelíu skipt inn á hjá Köge á 56. mínútu en aftur út af á 80. mínútu, og má því gera ráð fyrir að hún hafi orðið fyrir meiðslum.

Bröndby er áfram í 2. sæti með 39 stig en núna aðeins þremur stigum á undan Köge. Nordsjælland er á toppnum með 40 stig og á leik til góða við AGF í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×