Lífið

Sonurinn skírður

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Drengurinn var skírður í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. 
Drengurinn var skírður í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.  Instagram/Birgittalif

Sonur markaðsstjórans og samfélagsmiðlastjörnunnar Birgittu Lífar Björnsdóttur og sjómannsins Enoks Jónssonar var skírður í dag við fallega athöfn í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Hann fékk nafnið Birnir Boði Enoksson. 

Frá þessu greinir parið í Instagram færslu, þar sem myndir af athöfninni fylgja. Birgitta og Enok greindu frá því í ágúst í fyrra að þau ættu von á barni og þann 8. febrúar kom Birnir Boði í heiminn. 

Parið hefur síðustu misseri vakið athygli fyrir eftirsóknarverðan lífsstíl. Þau tilkynntu til að mynda kyn barnsins með frumlegum hætti í september þegar þau létu þyrlu dreifa bláu dufti úr lofti, sem táknaði að um sveinbarn var að ræða. 

Að auki spókuðu Birgitta og Birnir Boði sig nýlega með skiptitösku sem kostar um 450 þúsund krónur. Þá hefur drengurinn, þrátt fyrir að vera ekki orðinn þriggja mánaða gamall, ferðast til að minnsta kosti tveggja landa. 

Parið virðist ætla að halda Boða-nafninu gangandi í ættinni en langafi barnsins, faðir Hafdísar Jónsdóttur, Dísu í World Class, heitir Jón Boði. Þá ber bróðir Birgittu Lífar nafnið Björn Boði. 


Tengdar fréttir

Fyrsta fjölskyldufrí Enoks og Birgittu með snáðann

Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, og Enok Vatnar Jónsson athafnamaður nutu lífsins á Spáni yfir páskana. Um var að ræða fyrsta fjölskyldufrí parsins með litla stráknum þeirra sem fæddist í febrúar.

Birgitta Líf með 450 þúsund króna skiptitösku

Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, birti mynd af sér með son sinn í fanginu og 450 þúsund króna Blue Dior Oblique Canvas skiptitösku yfir öxlina.

Birgitta Líf og Enok birta fyrstu myndina af barninu

Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, og kærasti hennar, Enok Jónsson hafa birt fyrstu myndina af barni þeirra. Það kom í heiminn þann 8. febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×