Innlent

„Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bjarni Benediktsson er forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson er forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm

Forsætisráðherra segir það miður að farga þurfti þrjátíu þúsund eintökum af bók á vegum ráðuneytisins. Hann segist hafa rætt málið við fyrrverandi forsætisráðherra og þau hafi verið sammála um niðurstöðuna. 

Í næsta mánuði stefnir forsætisráðuneytið á að gefa út bókina Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær í tilefni af áttatíu ára afmælis lýðveldisins. Verkefnið var hugarfóstur fyrrverandi forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, sem hafði skrifað formála bókarinnar.

Þegar Katrín baðst lausnar úr embættinu til þess að fara í forsetaframboð var prentun bókarinnar hafin. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir að þar með hafi hann staðið frammi fyrir þeirri spurningu hvort eðlilegt væri að formálinn væri Katrínar.

„Það er í raun og veru spurningin sem þurfti að svara. Þegar henni hafði verið svarað þá var hitt afleiðing af því. Við komumst að þeirri niðurstöðu að það væri eðlilegt að nýr forsætisráðherra myndi skrifa nýjan formála bókar sem kemur út í júní. Ég ræddi þetta við Katrínu, mér fannst við sammála því,“ segir Bjarni.

Þrjátíu milljónir króna voru settar í verkefnið. Þrátt fyrir förgunina segir Bjarni verkefnið virðast halda kostnaðaráætlun.

„Ég verð að játa það að ég veit ekki nákvæmlega hversu langt verkið var komið. En það voru mörg eintök í framleiðslu sem þurfti að farga. Það breytir því ekki að sú kostnaðaráætlun sem við vorum með, við teljum að hún muni standast fyrir þetta verkefni,“ segir Bjarni. 

Hann játar að þetta sé ansi klúðurslegt en förgun og endurprentun kostar ríkið nokkrar milljónir.

„Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa,“ segir Bjarni.


Tengdar fréttir

Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum

Tekist var á um bók sem forsætisráðuneytið í samstarfi við Forlagið hyggst gefa út um fjallkonuna á þingi í dag. Inga Sæland spurði hvort til stæði að rífa formálann úr í hvert skipti sem nýr forsætisráðherra sest í stólinn?



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×