Erlent Lýsa yfir neyðarástandi í Tókýó fram yfir Ólympíuleikana Stjórnvöld í Japan hafa lýst yfir neyðarástandi í höfuðborginni Tókýó fram yfir Ólympíuleikana sem fram fara í borginni dagana 23. júlí til 8. ágúst. Þetta staðfesti forsætisráðherrann Yoshihide Suga í dag. Erlent 8.7.2021 09:14 Fjórar milljónir dánar: Yfirmaður WHO skýtur fast á ríkari þjóðir heims Skráð dauðsföll vegna Covid-19 eru nú komin yfir fjórar milljónir. Rúmt eitt og hálft ár er síðan faraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hófst í Kína. Þessi áfangi, ef svo má kalla, náðist í gær en yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og sérfræðingar segja raunverulegu töluna vera hærri. Erlent 8.7.2021 09:04 Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa myrt ættingja vegna ímyndaðs fjársjóðs Franskur maður sem myrti fjóra ættingja sína, þar af tvö börn, í leit að gullfjársjóði sem hann taldi þá hafa falið fyrir sér hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi. Erlent 8.7.2021 08:42 Telja engar líkur á að finna fólk á lífi í rústunum Borgarstjóri í Miami-Dade á Flórída segir nú engar líkur vera á að finna fólk á lífi í rústum íbúðabyggingarinnar sem hrundi á Surfside í Miami 24. júní síðastliðinn. Því sé starfið þar nú ekki lengur skilgreint sem björgunaraðgerð heldur leitaraðgerð. Erlent 8.7.2021 08:35 Aðför gerð að hinsegin samfélaginu á WeChat Kínverskir netverjar eru klofnir í afstöðu sinni til nýjasta útspils tæknirisans Tencent, sem á samskiptamiðilinn WeChat. Á þriðjudag var fjölda aðganga hinsegin hópa lokað og öllum gömlum færslum eytt. Erlent 8.7.2021 08:04 Zuma gefur sig fram og hefur afplánun Fyrrverandi forseti Suður-Afríku, Jacob Zuma, hefur gefið sig fram við lögreglu og hafið afplánun eftir að hafa verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi á dögunum. Erlent 8.7.2021 07:28 Tilfellum fjölgar enn þrátt fyrir útgöngubann Þrátt fyrir að útgöngubann hafi verið í gildi í Sydney í Ástralíu í tvær vikur vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar halda tilfellinn áfram að hrannast upp og í gær voru fleiri greindir smitaðir á einum sólarhring en í fjórtán mánuði þar á undan. Erlent 8.7.2021 07:11 Lögregla segist hafa banað fjórum tilræðismönnum Moïse Lögreglan á Haítí skaut í gærkvöldi fjóra til bana sem grunaðir eru um að hafa myrt forseta landsins síðastliðinn miðvikudag. Til skotbardaga kom á milli mannana og lögreglu sem lauk með þessum hætti en að sögn lögreglu eru tveir aðrir grunaðir í haldi. Erlent 8.7.2021 06:56 Mikil sprenging í Dúbaí Mikill sprenging varð um borð í gámaskipi við Jebel Ali höfnina í Dúbaí fyrr í kvöld og logaði mikill eldur á hafnarsvæðinu. Erlent 7.7.2021 21:31 Trump fer í mál við samfélagsmiðlarisa Fyrrverandi Bandaríkjaforsetinn Donald Trump hefur höfðað mál gegn samfélagsmiðlarisunum Facebook, Twitter og YouTube. Hann vill meina að brotið hafi verið á sér þegar hann var bannaður á miðlunum fyrr á árinu. Erlent 7.7.2021 20:01 Færeyingar brustu í grát þegar karlmaður var sýknaður af morði sextán ára stúlku 26 ára gamall maður var í morgun sýknaður af dómstóli í Færeyjum af ákæru um að hafa myrt hina sextán ára gömlu Mariu Fuglø Christiansen í nóvember 2012. Áhorfendur í dómstal brustu margir hverjir í grát þegar dómarinn las upp niðurstöðu dómsins. Erlent 7.7.2021 16:45 Tvö börn og fullorðinn urðu fyrir lestinni og morðrannsókn hafin Tvö börn og einn fullorðinn urðu fyrir lest fyrir utan Hässleholm í Svíþjóð í morgun og létust þau á vettvangi. Lögregla hefur þegar hafið morðrannsókn vegna slyssins og hafa ættingjar verið upplýstir um að börnin hafi látist. Erlent 7.7.2021 16:32 Kampavín verður að ómerkilegu freyðivíni í Rússlandi Franskir freyðivínsframleiðendur úr héraðinu Champagne eru æfir eftir að ný löggjöf var innleidd í Rússlandi, sem má kalla ákveðna tímamótalöggjöf í vínheiminum. Þar er kveðið á um að rússneska freyðivínið Shampanskoye (sem er rússneska orðið yfir kampavín) megi eitt bera heitið, sem hefur hingað til aðeins tilheyrt vínframleiðendum Champagne-héraðsins. Erlent 7.7.2021 16:01 Lýsa yfir neyðarástandi í Haítí og kalla eftir ró Starfandi forsætisráðherra Haítí hefur lýst yfir neyðarástandi og kallar eftir ró meðal íbúa í kjölfar þess að forseti landsins var skotinn til bana á heimili sínu í nótt. Morð Jovenel Moise, forseta Haítí, hefur verið fordæmt af öðrum þjóðarleiðtogum. Samhliða því að kallað hefur verið eftir ró og friði á eyjunni. Erlent 7.7.2021 15:31 Vilja skjóta 23 eldflaugum á smástirni Kínverskir vísindamenn vilja senda 23 Long March 5 eldflaugar, þær öflugustu sem framleiddar eru í Kína, til að kanna hvort hægt sé að nota þær til að breyta stefnu smástirna. Markmið vísindamannanna er að komast að því hvort hægt væri að bjarga jörðinni með þessum hætti, ef smástirni stefndi á plánetuna okkar. Erlent 7.7.2021 14:03 Sænska þingið gefur grænt ljós á nýja stjórn Löfvens Meirihluti sænska þingsins samþykkti í hádeginu tillögu þingforsetans um að Stefan Löfven verði áfram forsætisráðherra landsins. Erlent 7.7.2021 13:02 Hópur fólks varð fyrir lest í Svíþjóð Hópur fólks varð fyrir lest rétt fyrir utan Hässleholm í Svíþjóð í morgun. Ekki er vitað hve margir urðu fyrir lestinni en yfirmaður björgunarsveita sem brást við slysinu segir að það sé mjög alvarlegt. Erlent 7.7.2021 11:58 Rafhlaupahjólaleigur í Osló taka hjólin úr umferð á nóttunni um helgar Norsku rafhlaupahjólaleigurnar Bolt og Ryde hafa ákveðið að slökkva á öllum rafhlaupahjólum sínum í landinu á þeim tíma vikunnar þegar slys tengd hjólunum eru flest, það er milli miðnættis og klukkan fimm á morgnana aðfaranætur laugardags og sunnudags. Erlent 7.7.2021 10:40 Forseti Haítí skotinn til bana á heimili sínu Jovenel Moïse, forseti Haítí, er sagður hafa verið myrtur í árás í nótt. Hópur vopnaðra manna er sagður hafa rutt sér leið inn á heimili hans í Port-au-Prince í nótt og skotið forsetann til bana og sært Martine Moise, eiginkonu hans, sem sé nú á sjúkrahúsi. Erlent 7.7.2021 10:06 Milljón bóluefnaskammtar óhreyfðir í dönskum kælum Yfir ein milljón bóluefnaskammta frá Janssen og AstraZeneca standa óhreyfð í kælum Sóttvarnastofnunar Danmerkur, þrátt fyrir að ekki sé reiknað með að bólusett verði með skömmtunum í landinu. Erlent 7.7.2021 10:03 Litlar sem engar líkur á að finna fólk á lífi Líkamsleifar átta manns fundust í gær í rústum fjölbýlishúss sem hrundi nýverið í bænum Surfside í Flórída. Enn er rúmlega hundrað manns saknað og ráðamenn sem stýra björgunarstörfum í rústunum virðast telja litlar líkur á því að finna fólk á lífi í rústunum. Erlent 7.7.2021 09:05 Hafa fundið níu lík á slysstað Björgunarsveitir á Kamtjatkaskaga hafa fundið líkamsleifar níu manns sem voru um borð í farþegaflugvél sem brotlenti á svæðinu í gærnótt. Erlent 7.7.2021 08:47 Framlengja útgöngubann í Sydney Yfirvöld í Nýju-Suður Wales í Ástralíu hafa ákveðið að framlengja útgöngubann í stórborginni Sydney um viku til viðbótar, eða til 16. júlí. Útgöngubanninu var komið á fyrir rúmum tveimur vikum í tilraun til að hefta útbreiðslu delta-afbrigðis kórónuveirunnar. Erlent 7.7.2021 07:43 Vann sigur í forvali Demókrata í baráttu um borgarstjórastólinn í New York Lögreglustjórinn fyrrverandi, Eric Adams, vann sigur í forvali Demókrata um hver eigi að vera frambjóðandi flokksins í komandi kosningum um borgarstjórastólinn í New York. Erlent 7.7.2021 06:30 Rannsóknarblaðamaður skotinn úti á götu í Amsterdam Peter R. de Vries, þekktur hollenskur blaðamaður, var skotinn úti á götu í Amsterdam í kvöld. De Vries er hvað helst þekktur fyrir fréttir sínar af sakamálum í Hollandi. Erlent 6.7.2021 20:50 Bandarískur lögmaður dúsir í hvítrússnesku fangelsi Youras Ziankovich, lögmaður með bandarískan ríkisborgararétt, var handsamaður af fjórum óeinkennisklæddum mönnum úti á götu í Moskvu í apríl síðastliðnum. Erlent 6.7.2021 19:49 Félagi í eigu Samherja gert að greiða namibískum sjómönnum bætur Félagið ArcticNam, sem er í helmingseigu Samherja, hefur verið dæmt í félagsdómi til að greiða 23 namibískum sjómönnum togarans Heinaste samtals 15,7 milljónir íslenskra króna í sáttabætur. Sjómönnunum var sagt upp fyrirvaralaust árið 2019 og skipt út fyrir ódýrara vinnuafl. Erlent 6.7.2021 17:02 Stefna frönskum yfirvöldum vegna blýmengunar eftir brunann í Notre Dame Eitt stærsta stéttafélag í Frakklandi, heilbrigðissamtök og íbúar í París hafa tekið höndum saman og munu leggja fram stefnu gegn yfirvöldum í Frakklandi og Parísarborg vegna þess hve mikið blý hefur verið í andrúmsloftinu í París eftir brunann á Notre Dame. Erlent 6.7.2021 15:56 Tala látinna komin yfir þrjátíu í Surfside Fjögur lík fundust í rústum íbúðablokkarinnar sem hrundi í bænum Surfside á Flórída í Bandaríkjunum og er tala látinna nú komin upp í 32. Enn er á annað hundrað manns saknað. Erlent 6.7.2021 14:55 Þúsundir mótmæla eftir að samkynhneigður maður var myrtur Þúsundir hafa leitað á götur úti í borgum og bæjum á Spáni til að krefjast réttlætis, jafnréttis og verndar eftir að samkynhneigður maður var myrtur af hópi manna. Lögregla telur að árásarkveikjan hafi verið fordómar árásarmannanna fyrir hinsegin fólk. Erlent 6.7.2021 14:40 « ‹ 330 331 332 333 334 ›
Lýsa yfir neyðarástandi í Tókýó fram yfir Ólympíuleikana Stjórnvöld í Japan hafa lýst yfir neyðarástandi í höfuðborginni Tókýó fram yfir Ólympíuleikana sem fram fara í borginni dagana 23. júlí til 8. ágúst. Þetta staðfesti forsætisráðherrann Yoshihide Suga í dag. Erlent 8.7.2021 09:14
Fjórar milljónir dánar: Yfirmaður WHO skýtur fast á ríkari þjóðir heims Skráð dauðsföll vegna Covid-19 eru nú komin yfir fjórar milljónir. Rúmt eitt og hálft ár er síðan faraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hófst í Kína. Þessi áfangi, ef svo má kalla, náðist í gær en yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og sérfræðingar segja raunverulegu töluna vera hærri. Erlent 8.7.2021 09:04
Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa myrt ættingja vegna ímyndaðs fjársjóðs Franskur maður sem myrti fjóra ættingja sína, þar af tvö börn, í leit að gullfjársjóði sem hann taldi þá hafa falið fyrir sér hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi. Erlent 8.7.2021 08:42
Telja engar líkur á að finna fólk á lífi í rústunum Borgarstjóri í Miami-Dade á Flórída segir nú engar líkur vera á að finna fólk á lífi í rústum íbúðabyggingarinnar sem hrundi á Surfside í Miami 24. júní síðastliðinn. Því sé starfið þar nú ekki lengur skilgreint sem björgunaraðgerð heldur leitaraðgerð. Erlent 8.7.2021 08:35
Aðför gerð að hinsegin samfélaginu á WeChat Kínverskir netverjar eru klofnir í afstöðu sinni til nýjasta útspils tæknirisans Tencent, sem á samskiptamiðilinn WeChat. Á þriðjudag var fjölda aðganga hinsegin hópa lokað og öllum gömlum færslum eytt. Erlent 8.7.2021 08:04
Zuma gefur sig fram og hefur afplánun Fyrrverandi forseti Suður-Afríku, Jacob Zuma, hefur gefið sig fram við lögreglu og hafið afplánun eftir að hafa verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi á dögunum. Erlent 8.7.2021 07:28
Tilfellum fjölgar enn þrátt fyrir útgöngubann Þrátt fyrir að útgöngubann hafi verið í gildi í Sydney í Ástralíu í tvær vikur vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar halda tilfellinn áfram að hrannast upp og í gær voru fleiri greindir smitaðir á einum sólarhring en í fjórtán mánuði þar á undan. Erlent 8.7.2021 07:11
Lögregla segist hafa banað fjórum tilræðismönnum Moïse Lögreglan á Haítí skaut í gærkvöldi fjóra til bana sem grunaðir eru um að hafa myrt forseta landsins síðastliðinn miðvikudag. Til skotbardaga kom á milli mannana og lögreglu sem lauk með þessum hætti en að sögn lögreglu eru tveir aðrir grunaðir í haldi. Erlent 8.7.2021 06:56
Mikil sprenging í Dúbaí Mikill sprenging varð um borð í gámaskipi við Jebel Ali höfnina í Dúbaí fyrr í kvöld og logaði mikill eldur á hafnarsvæðinu. Erlent 7.7.2021 21:31
Trump fer í mál við samfélagsmiðlarisa Fyrrverandi Bandaríkjaforsetinn Donald Trump hefur höfðað mál gegn samfélagsmiðlarisunum Facebook, Twitter og YouTube. Hann vill meina að brotið hafi verið á sér þegar hann var bannaður á miðlunum fyrr á árinu. Erlent 7.7.2021 20:01
Færeyingar brustu í grát þegar karlmaður var sýknaður af morði sextán ára stúlku 26 ára gamall maður var í morgun sýknaður af dómstóli í Færeyjum af ákæru um að hafa myrt hina sextán ára gömlu Mariu Fuglø Christiansen í nóvember 2012. Áhorfendur í dómstal brustu margir hverjir í grát þegar dómarinn las upp niðurstöðu dómsins. Erlent 7.7.2021 16:45
Tvö börn og fullorðinn urðu fyrir lestinni og morðrannsókn hafin Tvö börn og einn fullorðinn urðu fyrir lest fyrir utan Hässleholm í Svíþjóð í morgun og létust þau á vettvangi. Lögregla hefur þegar hafið morðrannsókn vegna slyssins og hafa ættingjar verið upplýstir um að börnin hafi látist. Erlent 7.7.2021 16:32
Kampavín verður að ómerkilegu freyðivíni í Rússlandi Franskir freyðivínsframleiðendur úr héraðinu Champagne eru æfir eftir að ný löggjöf var innleidd í Rússlandi, sem má kalla ákveðna tímamótalöggjöf í vínheiminum. Þar er kveðið á um að rússneska freyðivínið Shampanskoye (sem er rússneska orðið yfir kampavín) megi eitt bera heitið, sem hefur hingað til aðeins tilheyrt vínframleiðendum Champagne-héraðsins. Erlent 7.7.2021 16:01
Lýsa yfir neyðarástandi í Haítí og kalla eftir ró Starfandi forsætisráðherra Haítí hefur lýst yfir neyðarástandi og kallar eftir ró meðal íbúa í kjölfar þess að forseti landsins var skotinn til bana á heimili sínu í nótt. Morð Jovenel Moise, forseta Haítí, hefur verið fordæmt af öðrum þjóðarleiðtogum. Samhliða því að kallað hefur verið eftir ró og friði á eyjunni. Erlent 7.7.2021 15:31
Vilja skjóta 23 eldflaugum á smástirni Kínverskir vísindamenn vilja senda 23 Long March 5 eldflaugar, þær öflugustu sem framleiddar eru í Kína, til að kanna hvort hægt sé að nota þær til að breyta stefnu smástirna. Markmið vísindamannanna er að komast að því hvort hægt væri að bjarga jörðinni með þessum hætti, ef smástirni stefndi á plánetuna okkar. Erlent 7.7.2021 14:03
Sænska þingið gefur grænt ljós á nýja stjórn Löfvens Meirihluti sænska þingsins samþykkti í hádeginu tillögu þingforsetans um að Stefan Löfven verði áfram forsætisráðherra landsins. Erlent 7.7.2021 13:02
Hópur fólks varð fyrir lest í Svíþjóð Hópur fólks varð fyrir lest rétt fyrir utan Hässleholm í Svíþjóð í morgun. Ekki er vitað hve margir urðu fyrir lestinni en yfirmaður björgunarsveita sem brást við slysinu segir að það sé mjög alvarlegt. Erlent 7.7.2021 11:58
Rafhlaupahjólaleigur í Osló taka hjólin úr umferð á nóttunni um helgar Norsku rafhlaupahjólaleigurnar Bolt og Ryde hafa ákveðið að slökkva á öllum rafhlaupahjólum sínum í landinu á þeim tíma vikunnar þegar slys tengd hjólunum eru flest, það er milli miðnættis og klukkan fimm á morgnana aðfaranætur laugardags og sunnudags. Erlent 7.7.2021 10:40
Forseti Haítí skotinn til bana á heimili sínu Jovenel Moïse, forseti Haítí, er sagður hafa verið myrtur í árás í nótt. Hópur vopnaðra manna er sagður hafa rutt sér leið inn á heimili hans í Port-au-Prince í nótt og skotið forsetann til bana og sært Martine Moise, eiginkonu hans, sem sé nú á sjúkrahúsi. Erlent 7.7.2021 10:06
Milljón bóluefnaskammtar óhreyfðir í dönskum kælum Yfir ein milljón bóluefnaskammta frá Janssen og AstraZeneca standa óhreyfð í kælum Sóttvarnastofnunar Danmerkur, þrátt fyrir að ekki sé reiknað með að bólusett verði með skömmtunum í landinu. Erlent 7.7.2021 10:03
Litlar sem engar líkur á að finna fólk á lífi Líkamsleifar átta manns fundust í gær í rústum fjölbýlishúss sem hrundi nýverið í bænum Surfside í Flórída. Enn er rúmlega hundrað manns saknað og ráðamenn sem stýra björgunarstörfum í rústunum virðast telja litlar líkur á því að finna fólk á lífi í rústunum. Erlent 7.7.2021 09:05
Hafa fundið níu lík á slysstað Björgunarsveitir á Kamtjatkaskaga hafa fundið líkamsleifar níu manns sem voru um borð í farþegaflugvél sem brotlenti á svæðinu í gærnótt. Erlent 7.7.2021 08:47
Framlengja útgöngubann í Sydney Yfirvöld í Nýju-Suður Wales í Ástralíu hafa ákveðið að framlengja útgöngubann í stórborginni Sydney um viku til viðbótar, eða til 16. júlí. Útgöngubanninu var komið á fyrir rúmum tveimur vikum í tilraun til að hefta útbreiðslu delta-afbrigðis kórónuveirunnar. Erlent 7.7.2021 07:43
Vann sigur í forvali Demókrata í baráttu um borgarstjórastólinn í New York Lögreglustjórinn fyrrverandi, Eric Adams, vann sigur í forvali Demókrata um hver eigi að vera frambjóðandi flokksins í komandi kosningum um borgarstjórastólinn í New York. Erlent 7.7.2021 06:30
Rannsóknarblaðamaður skotinn úti á götu í Amsterdam Peter R. de Vries, þekktur hollenskur blaðamaður, var skotinn úti á götu í Amsterdam í kvöld. De Vries er hvað helst þekktur fyrir fréttir sínar af sakamálum í Hollandi. Erlent 6.7.2021 20:50
Bandarískur lögmaður dúsir í hvítrússnesku fangelsi Youras Ziankovich, lögmaður með bandarískan ríkisborgararétt, var handsamaður af fjórum óeinkennisklæddum mönnum úti á götu í Moskvu í apríl síðastliðnum. Erlent 6.7.2021 19:49
Félagi í eigu Samherja gert að greiða namibískum sjómönnum bætur Félagið ArcticNam, sem er í helmingseigu Samherja, hefur verið dæmt í félagsdómi til að greiða 23 namibískum sjómönnum togarans Heinaste samtals 15,7 milljónir íslenskra króna í sáttabætur. Sjómönnunum var sagt upp fyrirvaralaust árið 2019 og skipt út fyrir ódýrara vinnuafl. Erlent 6.7.2021 17:02
Stefna frönskum yfirvöldum vegna blýmengunar eftir brunann í Notre Dame Eitt stærsta stéttafélag í Frakklandi, heilbrigðissamtök og íbúar í París hafa tekið höndum saman og munu leggja fram stefnu gegn yfirvöldum í Frakklandi og Parísarborg vegna þess hve mikið blý hefur verið í andrúmsloftinu í París eftir brunann á Notre Dame. Erlent 6.7.2021 15:56
Tala látinna komin yfir þrjátíu í Surfside Fjögur lík fundust í rústum íbúðablokkarinnar sem hrundi í bænum Surfside á Flórída í Bandaríkjunum og er tala látinna nú komin upp í 32. Enn er á annað hundrað manns saknað. Erlent 6.7.2021 14:55
Þúsundir mótmæla eftir að samkynhneigður maður var myrtur Þúsundir hafa leitað á götur úti í borgum og bæjum á Spáni til að krefjast réttlætis, jafnréttis og verndar eftir að samkynhneigður maður var myrtur af hópi manna. Lögregla telur að árásarkveikjan hafi verið fordómar árásarmannanna fyrir hinsegin fólk. Erlent 6.7.2021 14:40