Erlent Húsleit hjá blaðamönnum sem ljóstruðu upp um ráðherra Rússnesk yfirvöld gerðu húsleit á heimilum nokkurra rannsóknarblaðamanna og ættingja þeirra í morgun rétt áður en þeir birtu frétt um meint auðæfi innanríkisráðherra landsins. Ríkisstjórn Vladímírs Pútín þjarmar nú að frjálsum fjölmiðlum og stjórnarandstöðunni í aðdraganda þingkosninga. Erlent 29.6.2021 11:34 Telja árásarmanninn hafa hneigst að íslamskri öfgahyggju Saksóknarar í Þýskalandi telja að karlmaður sem myrti þrjár konur og særði sjö alvarlega í borginni Würzburg á föstudag hafi líklega verið knúinn áfram af íslamskri öfgahyggju. Maðurinn hefur átt við geðræn vandamál að stríða. Erlent 29.6.2021 10:09 Fyrrverandi forseti dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi Hæstiréttur í Suður-Afríku hefur dæmt fyrrverandi forseta landsins, Jacob Zuma, í fimmtán mánaða fangelsi. Erlent 29.6.2021 09:19 Fundu Picasso-verk tíu árum eftir að því var stolið Lögregla í Grikklandi hefur haft uppi á málverki eftir spænska listmálarann Pablo Picasso sem stolið var af listasafni í höfuðborginni Aþenu fyrir um tíu árum síðan. Erlent 29.6.2021 08:53 Dagsgömlum hitametum splundrað Heitasti dagurinn skæðrar hitabylgju sem gengur yfir vesturströnd Norður-Ameríku splundraði hitametum sem voru varla sólarhringsgömul í gær. Í Kanada mældist hitinn 47,9°C í þorpinu Lytton sem er hæsti hiti sem hefur nokkru sinni mælst í landinu. Erlent 29.6.2021 08:47 Kannar hver á mestan möguleika að mynda nýja stjórn Forseti sænska þingsins, Andreas Norlén, mun í dag ræða við leiðtoga allra þeirra flokka sem sæti eiga á sænska þinginu til að kanna hver á mestan möguleika að mynda nýja stjórn. Hann mun í kjölfarið veita einhverjum þeirra umboð til stjórnarmyndunar. Erlent 29.6.2021 07:54 Óvissa eftir að forsætisráðherrann segir 40 ára og yngri geta fengið AstraZeneca Ástralir eru nú sagðir óþreyjufullir gagnvart stjórnvöldum sem hafa komið á útgöngubanni í fjórum stórborgum í kjölfar fjölgunar Covid-smita síðustu daga. Bólusetningar ganga hægt og misvísandi skilaboð berast frá yfirvöldum. Erlent 29.6.2021 07:46 FFP3 grímurnar veittu mun meiri vörn en skurðstofugrímurnar Vísindamenn í Bretlandi hafa komist að því að svokallaðar FFP3 grímur veita umtalsvert meiri vörn en hefðbundar skurðstofugrímur. Samtök heilbrigðisstarfsmanna í landinu hafa löngum kallað eftir því að fá betri verndarbúnað. Erlent 29.6.2021 07:07 Lýsa yfir vopnahléi til að tryggja uppskeruna Stjórnvöld í Tigray héraði í Eþíópíu hafa flúið höfuðborgina Mekelle undan sókn uppreisnarmanna og landstjórnin hefur lýst yfir vopnahléi á svæðinu. Erlent 29.6.2021 06:38 Eiga ekki von á ákæru gegn Trump, enn sem komið er Lögmenn fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta, funduðu í dag með saksóknunum á skrifstofu ríkissaksóknara Manhattan. Markmið þeirra var að koma í veg fyrir að fyrirtækið verði ákært í tengslum við langvarandi rannsókn á starfsemi þess. Einn lögmannanna segir að ekki sé von á því að Trump sjálfur verði ákærður, enn sem komið er. Erlent 28.6.2021 23:01 Fleiri kirkjur brenna á landi innfæddra í Kanada Tvær kaþólskar kirkjur til viðbótar hafa brunnið til grunna í vesturhluta Kanada. Kirkjurnar voru báðar staðsettar á landi innfæddra og talið er að brunana hafi borið að með saknæmum hætti. Erlent 28.6.2021 21:31 Byggingarfulltrúi sagði húsið sem hrundi í „mjög góðu ástandi“ Björgunarsveitar- og slökkviliðsmenn í Miami í Bandaríkjunum vonast enn eftir því að finna fólk á lífi í rústum fjölbýlishúss sem hrundi óvænt í síðustu viku. Enginn hefur þó fundist á lífi nema skömmu eftir að húsið hrundi. Enn er 151 manns saknað en búið er að finna og bera kennsl á lík tíu manns. Erlent 28.6.2021 20:29 Her Eþíópíu hörfar og ríkisstjórnin lýsir yfir einhliða vopnahléi Ríkisstjórn Eþíópíu hefur lýst yfir einhliða vopnahléi í Tigray-héraði þar sem harðir bardagar eru sagðir hafa geisað á undanförnum mánuðum. Það var gert í kjölfar þess að forsvarsmenn Frelsisfylkingarinnar, sem stjórnaði Eþíópíu á árum áður, segja að þeir hermenn þeirra hafi náð tökum á borginni Mekelle, höfuðborg héraðsins. Erlent 28.6.2021 19:06 Grænlenskar riffilstúlkur til barnaverndarnefndar Grænlensku stúlkurnar þrjár, sem lögregla handók í gær fyrir að skjóta á þorpið Ikamiut við Diskó-flóa, hafa verið færðar í umsjón barnaverndaryfirvalda. Þær reyndust allar undir átján ára aldri og teljast því vera börn í skilgreiningu laganna. Erlent 28.6.2021 17:45 Vörnin frá Pfizer og Moderna líkleg til að endast í mörg ár Bóluefni Pfizer og Moderna eru líkleg til þess að veita langvarandi vörn gegn Covid-19. Ný rannsókn gefur til kynna að ekki verði þörf á viðbótarsprautu um nokkurra ára skeið eftir að maður hefur verið fullbólusettur. Erlent 28.6.2021 16:59 Kórónuveirufaraldur reið yfir fyrir 20.000 árum Mannfólk kann að hafa átt við kórónuveirufaraldur á við þann sem nú geisar fyrir um 20.000 árum, ef marka má nýja rannsókn sem birtist í virtu líffræðitímariti í síðustu viku. Erlent 28.6.2021 16:24 Mikill eldur á Elephant & Castle stöðinni í London Slökkvilið í London hefur verið kallað út vegna mikils elds á Elephant & Castle lestarstöðinni í suðausturhluta borgarinnar. Erlent 28.6.2021 14:41 Löfven segir af sér og hyggst reyna að mynda nýja stjórn Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, ætlar að segja af sér embætti. Hann hefur þó í hyggju að reyna að mynda nýja stjórn. Frá þessu greindi Löfven á blaðamannafundi klukkan 8:15 í morgun. Erlent 28.6.2021 08:25 Boða til neyðarfundar til að ræða útbreiðslu Delta-afbrigðisins Yfirvöld í Ástralíu hittast á neyðarfundi í dag til að ræða aukna útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu en undanfarið hefur Delta-afbrigðið svokallaða verið að sækja verulega í sig veðrið. Erlent 28.6.2021 08:07 Forseti Tékklands segir trans fólk „viðbjóðslegt“ Milos Zeman, forseti Tékklands, kallaði trans fólk „viðbjóðslegt“ í viðtali við CNN Prima News í gær. Tilefnið var umræða um ný lög í Ungverjalandi, sem banna allt kennsluefni sem er talið „auglýsa“ samkynhneigð og hugmyndir um að fólk geti verið annars kyns en líffræðilegt kyn gefur til kynna. Erlent 28.6.2021 08:07 Komið að ögurstund hjá Löfven Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 8:15 að íslenskum tíma. Frestur hans til að tilkynna um næstu skref í kjölfar þess að þingið samþykkti vantraust á hann og ríkisstjórnina rennur út á miðnætti. Erlent 28.6.2021 07:36 Hitamet fellur í Kanada Hitabylgja gengur nú yfir Norður-Ameríku og í Kanada féll met í gær þegar hitamælirinn í þorpi einu í Bresku Kólombíu fór í 46,1 gráðu. Erlent 28.6.2021 06:54 Gerðu loftárásir á skotmörk á landamærum Íran og Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gær loftárásir á landamærum Íraks og Sýrlands. Skotmörkin voru bækistöðvar og vopnabúr vígamanna sem halda til á svæðinu og njóta stuðnings Íransstjórnar. Erlent 28.6.2021 06:44 Grænlenskar stúlkur létu riffilskotin vaða Uppnám varð í þorpinu Ikamiut á vesturströnd Grænlands í dag þegar þrjár stúlkur á stolnum báti tóku upp á því að skjóta á þorpið af bátnum utan við höfnina. Íbúar voru beðnir um að halda sig frá hafnarsvæðinu meðan beðið væri aðstoðar lögreglu. Erlent 27.6.2021 23:59 Fyrirtæki Trump hefur til morguns að forðast ákæru Saksóknarar í New York hafa gefið lögmönnum fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, frest til morguns til að færa rök fyrir því að það ætti ekki að sæta ákæru vegna fjármála þess. Fjármálastjóri Trump-fyrirtækisins gæti einnig verið ákærður. Erlent 27.6.2021 23:30 Hitamet falla í heiftarlegri hitabylgju Svæsin hitabylgja gengur nú yfir norðvestur Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna og hafa hitamet þegar verið slegin á nokkrum stöðum um helgina. Viðvaranir hafa verið gefnar út vegna lífshættulegs hita. Erlent 27.6.2021 20:16 Leita áhorfanda sem olli stórum árekstri á Tour de France Franska lögreglan leitar nú að kvenkyns áhorfanda sem olli meiriháttar árekstri fjölda keppenda í fyrsta áfanga Tour de France-hjólreiðakeppninnar í gær. Áhorfandinn hélt á skilti og hallaði sér í veg fyrir hjólreiðagarpana. Erlent 27.6.2021 17:38 Enn bætist í hóp látinna á Flórída Tala látinna heldur áfram að hækka eftir hrun íbúðabyggingar á Flórída. Nú hafa alls níu manns fundist látin. Erlent 27.6.2021 16:44 Prófa bóluefni gegn Beta-afbrigðinu Bresk-sænski lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur nú hafið prófanir á bóluefni gegn nýju afbrigði Covid-19, svokölluðu Beta-afbrigði veirunnar sem kennt er við Suður-Afríku. Erlent 27.6.2021 16:13 Segja alþýðuna miður sín yfir þyngdartapi Kim Á meðan hungursneyð ríkir í Norður-Kóreu greinir ríkismiðillinn, sem lýtur stjórn ríkisstjórnarinnar, frá því að alþýðan hafi áhyggjur af þyngdartapi leiðtoga síns, Kim Jong Un. Erlent 27.6.2021 14:05 « ‹ 331 332 333 334 ›
Húsleit hjá blaðamönnum sem ljóstruðu upp um ráðherra Rússnesk yfirvöld gerðu húsleit á heimilum nokkurra rannsóknarblaðamanna og ættingja þeirra í morgun rétt áður en þeir birtu frétt um meint auðæfi innanríkisráðherra landsins. Ríkisstjórn Vladímírs Pútín þjarmar nú að frjálsum fjölmiðlum og stjórnarandstöðunni í aðdraganda þingkosninga. Erlent 29.6.2021 11:34
Telja árásarmanninn hafa hneigst að íslamskri öfgahyggju Saksóknarar í Þýskalandi telja að karlmaður sem myrti þrjár konur og særði sjö alvarlega í borginni Würzburg á föstudag hafi líklega verið knúinn áfram af íslamskri öfgahyggju. Maðurinn hefur átt við geðræn vandamál að stríða. Erlent 29.6.2021 10:09
Fyrrverandi forseti dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi Hæstiréttur í Suður-Afríku hefur dæmt fyrrverandi forseta landsins, Jacob Zuma, í fimmtán mánaða fangelsi. Erlent 29.6.2021 09:19
Fundu Picasso-verk tíu árum eftir að því var stolið Lögregla í Grikklandi hefur haft uppi á málverki eftir spænska listmálarann Pablo Picasso sem stolið var af listasafni í höfuðborginni Aþenu fyrir um tíu árum síðan. Erlent 29.6.2021 08:53
Dagsgömlum hitametum splundrað Heitasti dagurinn skæðrar hitabylgju sem gengur yfir vesturströnd Norður-Ameríku splundraði hitametum sem voru varla sólarhringsgömul í gær. Í Kanada mældist hitinn 47,9°C í þorpinu Lytton sem er hæsti hiti sem hefur nokkru sinni mælst í landinu. Erlent 29.6.2021 08:47
Kannar hver á mestan möguleika að mynda nýja stjórn Forseti sænska þingsins, Andreas Norlén, mun í dag ræða við leiðtoga allra þeirra flokka sem sæti eiga á sænska þinginu til að kanna hver á mestan möguleika að mynda nýja stjórn. Hann mun í kjölfarið veita einhverjum þeirra umboð til stjórnarmyndunar. Erlent 29.6.2021 07:54
Óvissa eftir að forsætisráðherrann segir 40 ára og yngri geta fengið AstraZeneca Ástralir eru nú sagðir óþreyjufullir gagnvart stjórnvöldum sem hafa komið á útgöngubanni í fjórum stórborgum í kjölfar fjölgunar Covid-smita síðustu daga. Bólusetningar ganga hægt og misvísandi skilaboð berast frá yfirvöldum. Erlent 29.6.2021 07:46
FFP3 grímurnar veittu mun meiri vörn en skurðstofugrímurnar Vísindamenn í Bretlandi hafa komist að því að svokallaðar FFP3 grímur veita umtalsvert meiri vörn en hefðbundar skurðstofugrímur. Samtök heilbrigðisstarfsmanna í landinu hafa löngum kallað eftir því að fá betri verndarbúnað. Erlent 29.6.2021 07:07
Lýsa yfir vopnahléi til að tryggja uppskeruna Stjórnvöld í Tigray héraði í Eþíópíu hafa flúið höfuðborgina Mekelle undan sókn uppreisnarmanna og landstjórnin hefur lýst yfir vopnahléi á svæðinu. Erlent 29.6.2021 06:38
Eiga ekki von á ákæru gegn Trump, enn sem komið er Lögmenn fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta, funduðu í dag með saksóknunum á skrifstofu ríkissaksóknara Manhattan. Markmið þeirra var að koma í veg fyrir að fyrirtækið verði ákært í tengslum við langvarandi rannsókn á starfsemi þess. Einn lögmannanna segir að ekki sé von á því að Trump sjálfur verði ákærður, enn sem komið er. Erlent 28.6.2021 23:01
Fleiri kirkjur brenna á landi innfæddra í Kanada Tvær kaþólskar kirkjur til viðbótar hafa brunnið til grunna í vesturhluta Kanada. Kirkjurnar voru báðar staðsettar á landi innfæddra og talið er að brunana hafi borið að með saknæmum hætti. Erlent 28.6.2021 21:31
Byggingarfulltrúi sagði húsið sem hrundi í „mjög góðu ástandi“ Björgunarsveitar- og slökkviliðsmenn í Miami í Bandaríkjunum vonast enn eftir því að finna fólk á lífi í rústum fjölbýlishúss sem hrundi óvænt í síðustu viku. Enginn hefur þó fundist á lífi nema skömmu eftir að húsið hrundi. Enn er 151 manns saknað en búið er að finna og bera kennsl á lík tíu manns. Erlent 28.6.2021 20:29
Her Eþíópíu hörfar og ríkisstjórnin lýsir yfir einhliða vopnahléi Ríkisstjórn Eþíópíu hefur lýst yfir einhliða vopnahléi í Tigray-héraði þar sem harðir bardagar eru sagðir hafa geisað á undanförnum mánuðum. Það var gert í kjölfar þess að forsvarsmenn Frelsisfylkingarinnar, sem stjórnaði Eþíópíu á árum áður, segja að þeir hermenn þeirra hafi náð tökum á borginni Mekelle, höfuðborg héraðsins. Erlent 28.6.2021 19:06
Grænlenskar riffilstúlkur til barnaverndarnefndar Grænlensku stúlkurnar þrjár, sem lögregla handók í gær fyrir að skjóta á þorpið Ikamiut við Diskó-flóa, hafa verið færðar í umsjón barnaverndaryfirvalda. Þær reyndust allar undir átján ára aldri og teljast því vera börn í skilgreiningu laganna. Erlent 28.6.2021 17:45
Vörnin frá Pfizer og Moderna líkleg til að endast í mörg ár Bóluefni Pfizer og Moderna eru líkleg til þess að veita langvarandi vörn gegn Covid-19. Ný rannsókn gefur til kynna að ekki verði þörf á viðbótarsprautu um nokkurra ára skeið eftir að maður hefur verið fullbólusettur. Erlent 28.6.2021 16:59
Kórónuveirufaraldur reið yfir fyrir 20.000 árum Mannfólk kann að hafa átt við kórónuveirufaraldur á við þann sem nú geisar fyrir um 20.000 árum, ef marka má nýja rannsókn sem birtist í virtu líffræðitímariti í síðustu viku. Erlent 28.6.2021 16:24
Mikill eldur á Elephant & Castle stöðinni í London Slökkvilið í London hefur verið kallað út vegna mikils elds á Elephant & Castle lestarstöðinni í suðausturhluta borgarinnar. Erlent 28.6.2021 14:41
Löfven segir af sér og hyggst reyna að mynda nýja stjórn Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, ætlar að segja af sér embætti. Hann hefur þó í hyggju að reyna að mynda nýja stjórn. Frá þessu greindi Löfven á blaðamannafundi klukkan 8:15 í morgun. Erlent 28.6.2021 08:25
Boða til neyðarfundar til að ræða útbreiðslu Delta-afbrigðisins Yfirvöld í Ástralíu hittast á neyðarfundi í dag til að ræða aukna útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu en undanfarið hefur Delta-afbrigðið svokallaða verið að sækja verulega í sig veðrið. Erlent 28.6.2021 08:07
Forseti Tékklands segir trans fólk „viðbjóðslegt“ Milos Zeman, forseti Tékklands, kallaði trans fólk „viðbjóðslegt“ í viðtali við CNN Prima News í gær. Tilefnið var umræða um ný lög í Ungverjalandi, sem banna allt kennsluefni sem er talið „auglýsa“ samkynhneigð og hugmyndir um að fólk geti verið annars kyns en líffræðilegt kyn gefur til kynna. Erlent 28.6.2021 08:07
Komið að ögurstund hjá Löfven Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 8:15 að íslenskum tíma. Frestur hans til að tilkynna um næstu skref í kjölfar þess að þingið samþykkti vantraust á hann og ríkisstjórnina rennur út á miðnætti. Erlent 28.6.2021 07:36
Hitamet fellur í Kanada Hitabylgja gengur nú yfir Norður-Ameríku og í Kanada féll met í gær þegar hitamælirinn í þorpi einu í Bresku Kólombíu fór í 46,1 gráðu. Erlent 28.6.2021 06:54
Gerðu loftárásir á skotmörk á landamærum Íran og Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gær loftárásir á landamærum Íraks og Sýrlands. Skotmörkin voru bækistöðvar og vopnabúr vígamanna sem halda til á svæðinu og njóta stuðnings Íransstjórnar. Erlent 28.6.2021 06:44
Grænlenskar stúlkur létu riffilskotin vaða Uppnám varð í þorpinu Ikamiut á vesturströnd Grænlands í dag þegar þrjár stúlkur á stolnum báti tóku upp á því að skjóta á þorpið af bátnum utan við höfnina. Íbúar voru beðnir um að halda sig frá hafnarsvæðinu meðan beðið væri aðstoðar lögreglu. Erlent 27.6.2021 23:59
Fyrirtæki Trump hefur til morguns að forðast ákæru Saksóknarar í New York hafa gefið lögmönnum fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, frest til morguns til að færa rök fyrir því að það ætti ekki að sæta ákæru vegna fjármála þess. Fjármálastjóri Trump-fyrirtækisins gæti einnig verið ákærður. Erlent 27.6.2021 23:30
Hitamet falla í heiftarlegri hitabylgju Svæsin hitabylgja gengur nú yfir norðvestur Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna og hafa hitamet þegar verið slegin á nokkrum stöðum um helgina. Viðvaranir hafa verið gefnar út vegna lífshættulegs hita. Erlent 27.6.2021 20:16
Leita áhorfanda sem olli stórum árekstri á Tour de France Franska lögreglan leitar nú að kvenkyns áhorfanda sem olli meiriháttar árekstri fjölda keppenda í fyrsta áfanga Tour de France-hjólreiðakeppninnar í gær. Áhorfandinn hélt á skilti og hallaði sér í veg fyrir hjólreiðagarpana. Erlent 27.6.2021 17:38
Enn bætist í hóp látinna á Flórída Tala látinna heldur áfram að hækka eftir hrun íbúðabyggingar á Flórída. Nú hafa alls níu manns fundist látin. Erlent 27.6.2021 16:44
Prófa bóluefni gegn Beta-afbrigðinu Bresk-sænski lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur nú hafið prófanir á bóluefni gegn nýju afbrigði Covid-19, svokölluðu Beta-afbrigði veirunnar sem kennt er við Suður-Afríku. Erlent 27.6.2021 16:13
Segja alþýðuna miður sín yfir þyngdartapi Kim Á meðan hungursneyð ríkir í Norður-Kóreu greinir ríkismiðillinn, sem lýtur stjórn ríkisstjórnarinnar, frá því að alþýðan hafi áhyggjur af þyngdartapi leiðtoga síns, Kim Jong Un. Erlent 27.6.2021 14:05
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent