Enski boltinn

„Þessi snerting og fá þrjá leiki í bann, guð minn góður“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Klopp fagnar hér eftir sigurinn í dag.
Klopp fagnar hér eftir sigurinn í dag. Vísir/Getty

Jurgen Klopp var gríðarlega ánægður með sigur Liverpool gegn Newcastle í dag. Leikmenn Liverpool voru einum færri megnið af leiknum en komu til baka undir lokin og tryggðu sér stigin þrjú.

Leikur Newcastle og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag var frábær afþreying. Mistök, rautt spjald og dramatík undir lokin er yfirleitt uppskrift að góðri skemmtun og var það svo sannarlega í dag.

Jurgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool var vitaskuld sáttur eftir leikinn í dag.

„Guð minn góður hvað ég hafði gaman af þessu. Í hálfleik sagði ég að ef við getum snúið þessu við þá sé það eitthvað til að segja barnabörnunum. Ég sé mín eftir tíu daga og get sagt þeim þetta þá,“ sagði Klopp í samtali við Sky eftir leik.

„Þessi var erfiðari en Barcelona leikurinn,“ sagði Klopp og vísaði þá til 4-0 sigurs Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar árið 2019 eftir að liðið hafði tapað fyrri leik einvígisins 3-0.

„Við byrjuðum ekki vel í leiknum. Við fengum á okkur mark og rautt spjald. Síðan spiluðum við betur. Tilfinningin var til staðar í leikhléinu,“ en Virgil van Dijk fyrirliði liðsins fékk rautt spjald á 28. mínútu fyrir brot á Alexander Isak sem var að sleppa í gegnum vörn Liverpool.

Klopp var allt annað en sáttur við rauða spjaldið en þetta er annar leikurinn í röð þar sem leikmaður Liverpool fær beint rautt spjald.

„Við þurfum að skoða þetta betur. Það er engin meðvituð snerting frá Virg, það er snerting en á leið í boltann er lítil snerting. Fyrir þessa snertingu, að fá þrjá leiki í bann. Guð minn góður,“ sagði Klopp en Liverpool áfrýjaði rauðu spjaldi sem Alexis Mac Allister fékk gegn Bournmouth um síðustu helgi og var það dregið til baka.

Hann var að endingu spurður út í orðrómana um brottför Mo Salah. Blaðamaður Sky sagði að sagan væri ekki horfin af vefsíðum fjölmiðlanna.

„Fyrir mér er hún það,“ svaraði Klopp en hann hefur verið harður á því að Salah fari hvergi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×