Lífið

Elín Metta og Sigurður eiga von á barni

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Elín Metta og Sigurður greindu frá gleðitíðindunum í dag.
Elín Metta og Sigurður greindu frá gleðitíðindunum í dag. Facebook

Knattspyrnukonan Elín Metta Jensen og Sigurður Tómasson, verkefnastjóri hjá VEX ehf. eiga von á barni. 

Frá gleðitíðindunum greina þau frá í Facebook-færslu. „Þrjú í haust,“ skrifar Elín Metta. 

Í byrjun árs var greint frá því að þau Elín Metta og Sigurður væru nýtt par. Þau hefðu verið að stinga saman nefjum mánuðina á undan. 

Elín Metta Jensen hefur verið ein fremsta knattspyrnukona landsins síðustu ár og hefur spilað 62 landsleiki fyrir Íslands hönd. Hún lagði skóna á hilluna eftir knattspyrnutímabilið 2022 og tók þá aftur fram síðasta sumar og spilaði þá með Þrótti í Bestu deildinni.

Sigurður er menntaður hagfræðingur og starfaði meðal annars hjá Viðskiptaráði Íslands og McKinsey & Company áður en hann var ráðinn til VEX. Sigurður er sonur Tómasar Más Sigurðssonar, forstjóra HS Orku, og Ólafar heitinnar Nordal, fyrrverandi dómsmálaráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×