Erlent

Spán­verjar kalla sendi­herrann heim í kjöl­far um­mæla Milei

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Alþjóðaelítan, illska sósíalismans og eiginkona spænska forsætisráðherrans voru meðal umfjöllunarefna Milei í ræðu hans.
Alþjóðaelítan, illska sósíalismans og eiginkona spænska forsætisráðherrans voru meðal umfjöllunarefna Milei í ræðu hans. AP/Manu Fernandez

Spænska ríkisstjórnin hefur kallað sendiherrann sinn í Búenos Aíres, höfuðborg Argentínu, heim og ítrekað kröfu sína um að Javier Milei, forseti Argentínu, biðjist afsökunar á hegðun sinni. Leiðtogar þjóðanna tveggja hafa eldað grátt silfur undanfarnar vikur í kjölfar ummæla samgönguráðherrans spænska Óscar Puente í garð Milei.

Málið má rekja til þess að Óscar Puente, samgönguráðherra Spánar, ýjaði að því í upphafi mánaðarins að Milei hefði neytt fíkniefna á meðan kosningabaráttu sinni stóð. Frá því hafa ærumeiðingar og úlfúð einkennt samskipti ríkisstjórnanna tveggja sem ekkert virðist ætla að linna í bráð.

Alþjóðleg ráðstefna leiðtoga hægri flokka var haldin í gær í Madríd á vegum Vox-flokksins sem kenndur hefur verið við öfgahyggju. Meðal ræðumanna voru leiðtogar hægrihreyfinga um allan heim. Meðal viðstaddra var hin franska Marine Le Pen, hinn ungverski Viktor Orbán og hin ítalska Giorgia Meloni ásamt hinum áðurnefnda Milei. Javier Milei sparaði ekki orðin í garð spænsku ríkisstjórnarinnar í ræðu sinni og tók sérstaklega fyrir mál eiginkonu forsætisráðherrans, Begoñu Gómez, sem sökuð hefur verið um spillingu.

Dómstóll í Madríd fyrirskipaði fyrr í mánuðinum rannsókn á hendur eiginkonu Pedro Sánchez forsætisráðherra eftir kvörtun af hálfu þrýstihópsins Manos Limpias, hreinar hendur á íslensku. Sánchez forsætisráðherra íhugaði að segja af sér embætti í kjölfar ásakananna en ákvað að lokum gera það ekki.

Alþjóðaelítan og forsætisráðherrafrúin

Í ræðu sinni talaði Milei að gömlum vana um hættu og illsku sósíalismans en stóðst ekki freistinguna að skjóta á eiginkonu forsætisráðherrans í leiðinni.

„Alþjóðaelítan skilur ekki hve mikinn skaða sósíalísk hugmyndafræði hefur í för með sér vegna þess að hún er svo fjarlæg því öllu,“ sagði Milei.

„Hún [elítan] veit ekki hvers konar samfélag og land sósíalismi getur átt hönd í að skapa, hvers konar fólk það er sem seilist í völdin og hvers konar misnotkun það hefur í för með sér. Meira að segja með spillta eiginkonu er hann troðinn í svaðið og gefur sér fimm daga til að íhuga það,“ bætir Milei svo við og á þá við hugsanlega afsögn Pedro Sánchez í kjölfar dómsfyrirskipuninnar.

Spænska ríkisstjórnin hefur brugðist við með því að kalla sendiherra sinn í Búenos Aíres heim og lýsti ummælum Milei sem „beinni árás á lýðræðið okkar, stoðir okkar og sjálfan Spán.“ Í gærkvöldi krafðist José Manuel Albares, utanríkisráðherra Spánar, opinberrar afsökunarbeiðni.

„Ef slík afsökunarbeiðni berst ekki munum við gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að verja sjálfræði okkar og virðingu,“ sagði José.

„Brunandi á brimbretti á tárum sósíalista“

Manuel Adorni ritari forseta Argentínu segir ráðherra Sánchez bera ábyrgð á úlfúðinni með því að ýja að því fyrr í mánuðinum að skrautleg sviðsframkoma Milei væri orsökuð af neyslu fíkniefna og segir að Sánchez ætti ekki að eiga von á afsökunarbeiðni í bráð.

„Þetta byrjaði allt þriðja maí þegar ráðherra í ríkisstjórn Spánar sakaði forsetann argentínska um fíkniefnaneyslu. Síðan þá hefur hann þurft að sitja undir stöðugum rógburði frá öðrum ráðherrum og Sánchez sjálfum. Þeir kalla hann fasista, óvildarmann, afneitara og illa innrættan og svo fram eftir götum,“ sagði Manuel Adorni ritari forseta Argentínu.

„Sumir eru að biðja um afsökunarbeiðni. Það verður enginn beðinn afsökunar þar sem það er ekkert til að biðjast afsökunar á. Að því sögu, hvetjum við spænsku ríkisstjórnina til að biðja okkur afsökunar,“ bætti hann við að sögn Guardian.

Javier Milei tjáði sig að því er virðist óbeint um málið í morgun á síðu sinni á samfélagsmiðlinum X. Þar birti hann mynd af ljóni yfir argentínska fánanum.

„SÆL ÖLL SÖMUL! LJÓNIÐ ER SNÚIÐ AFTUR, BRUNANDI Á BRIMBRETTI Á TÁRUM SÓSÍALISTA! LIFI FRELSIÐ ANDSKOTINN HAFI ÞAÐ,“ skrifar hann við færsluna.


Tengdar fréttir

„Hinn klikkaði“ tantra-sérfræðingur nýr forseti Argentínu

Javier Milei, nýr forseti Argentínu, hefur heitið umfangsmiklum breytingum á ríkinu eftir kosningabaráttu sem hefur einkennst af miklum öfgum og heift. Forsetinn nýi hefur heitið því að grípa hratt til umfangsmikilla aðgerða.

Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina

Javier Milei, forseti Argentínu sakaði Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, og ríkisstjórn hans um að stofna spænskum konum í hættu og leiða fátækt og dauða yfir spænsku þjóðina. Þessi ummæli voru viðbrögð við ummælum Óscar Puente samgönguráðherra sem ýjaði að því Milei hefði neytt fíkniefna á meðan kosningabaráttu sinni stóð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×