Innlent

„Viður­kenning á því að þetta er blaða­mennska sem hann var að stunda“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Kristinn Hrafnsson var viðstaddur réttarhöldin í dag og lýsti andrúmsloftinu í salnum sem rafmögnuðu.
Kristinn Hrafnsson var viðstaddur réttarhöldin í dag og lýsti andrúmsloftinu í salnum sem rafmögnuðu. Chris J Ratcliffe/Getty

Ákvörðun dómstóls í Bretlandi um framsal Julian Assange til Bandaríkjanna markar kaflaskil í máli blaðamannsins að mati ritstjóra WikiLeaks

Áfrýjunarbeiðni Assange var síðasti möguleiki hans til að stöðva framsal sitt til Bandaríkjanna, þar sem hann á yfir höfði sér ákæru í sautján liðum og 175 ára fangelsisdóm fyrir njósnir.

„Þetta hefði getað endað í dag og hann framseldur. Þess í stað þá ákvað dómurinn að gefa honum leyfi til áfrýjunar á ákaflega mikilvægum forsendum, það er að segja á þeim forsendum og hætta sé á því að Julian fái ekki að njóta verndar eins og aðrir blaðamenn á grundvelli fyrsta viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna, sem er nokkurs konar verndarskjöldur blaðamanna,“ segir Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks.

Ákvörðunin hafi markað kaflaskil enda í fyrsta sinn sem tekist er á um efnisatriði málsins.

„Þau féllu honum í vil og í þessu felst viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda og þar með er verið að ákæra einhvern fyrir að stunda blaðamennsku.“

Kristinn var staddur í réttarsalnum og segir að andrúmsloftið hafi verið rafmagnað. Þegar kom að því að lesa upp úrskurðarorðin hafi dómari áréttað að engin frammíköll yrðu leyfð og hélt Kristinn þá að málið hefði farið á versta veg.

„En hið þveröfuga varð ofan á, þannig þetta var sigur.“

Lokaður inni í fimm ár

Assange var ekki viðstaddur réttarhöldin enda hefur heilsu hans hrakað.

„Skal svo sem engan undra eftir að hafa verið lokaður inni í varðhaldi í fimm ár í mesta öryggisfangelsi Bretlands. Það er ekki nokkurt fordæmi fyrir því að einhver hafi setið í varðhaldi við slíkar aðstæður svona lengi hér í Bretlandi.“

Assange hafi sagt niðurstöðuna mikinn létti þegar Stella eiginkona hans færði honum fréttirnar í dag.

„Við vonum núna að þegar hann er kominn með þetta áfrýjunarleyfi að það verði loksins liðkað til og hann fái að ganga laus á meðan hann undirbýr þessi réttarhöld, í farbanni eða undir einhvers konar eftirliti.“


Tengdar fréttir

Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið

Þingflokksformaður Pírata hefur nýlokið fundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks, í Belmarsh-öryggisfangelsinu í Lundúnum. Heimsóknin er liður í skýrslu sem hún er að skrifa fyrir Evrópuráðsþingið um kælandi áhrif varðhaldsins á tjáningarfrelsi í álfunni og þá verður kannað hvort Assange uppfylli skilyrði um að teljast pólitískur fangi.

Assange verður ekki framseldur strax

Hæstiréttur í Lundúnum ætlar að gefa yfirvöldum í Bandaríkjunum þriggja vikna frest til að tryggja að Julian Assange njóti stjórnarskrárbundinna réttinda til tjáningarfrelsis. Hann verður ekki framseldur til Bandaríkjanna fyrr en þetta er tryggt. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×