Innlent

Aðeins helmingur ætlar að kjósa til stjórnlagaþings

Frá þjóðfundinum í Laugardalshöll þar sem gildi fyrir stjórnlagaþingið var ákveðið.
Frá þjóðfundinum í Laugardalshöll þar sem gildi fyrir stjórnlagaþingið var ákveðið.

Aðeins helmingur kjörgenginna manna ætla að kjósa á stjórnlagaþing samkvæmt upplýsingum sem þjóðskrá hefur tekið saman og RÚV greinir frá.

Þar kemur fram að samkvæmt skoðanakönnun ætla tæplega 55 prósent kosningabærra manna að taka þátt í kosningunum sem verða í lok nóvember.

Samkvæmt könnun sem MMR gerði á dögunum hafa 34% kjósenda ekki ákveðið hvort þau hyggist kjósa eða ekki samkvæmt RÚV.

11% ætla ekki að kjósa og tæp 55% ætla að greiða atkvæði í kosningunum.

Þá sögðu rúmlega 57% aðspurðra ekki hafa kynnt sér neinn þeirra einstaklinga sem hafa boðið sig fram til stjórnlagaþings.

Rúmlega 230 þúsund manns eru á kjörskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×