Ætla að endurskoða jafnréttismálin Sunna Valgerðardóttir skrifar 22. maí 2013 14:05 „
Við munum fara yfir málin og sjá með hvaða hætti var reynt að takast á við þau og endurmeta það sem ekki hefur skilað tilætluðum árangri,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, verðandi forsætisráðherra, um jafnréttisákvæðið í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þar segir að verðandi ríksistjórn muni endurmeta þær aðferðir sem notaðar hafa verið í barátttu fyrir jafnrétti kynjanna með það að markmiði að bæta árangur á sviði jafnréttismála og vinna gegn launamuni kynjanna. „Sumt hefur skilað árangri, annað hefur skilað minni og því munum við sjá hvað hefur virkað. En okkar markmið er að leiðrétta launamun kynjanna,“ segir Sigmundur. Í ákvæðinu segir einnig: „Fjárhagslegt sjálfstæði einstaklinga er grundvöllur jafnréttis. Huga þarf að fjárhagslegu sjálfstæði óháð hjúskaparstöðu, sér í lagi þegar kemur að skatta-, lífeyris- og örorkumálum.“ Við þessu segir Sigmundur: „Hugsunin á bak við þetta er sú að fólk sé ekki látið gjalda fyrir ólíka hjúskaparstöðu eða aðra þætti, heldur njóti ákveðinna réttinda sem einstaklingur.Sáttur með niðurstöðuna Sigmundur Davíð fór yfir sáttmálann í stórum dráttum á Laugarvatni í dag þar sem hann lagði áherslu á landbúnað, heilbrigðismál, umhverfismál og svo stóra málið; skuldavanda heimilana. „Ég er ákaflega sáttur við þá niðurstöðu sem við náðum varðandi stöðu heimilana. Það var stóra málið í síðustu kosningum,“ sagði Sigmundur. „Þótt stjórnarsáttmáli sé yfirleitt almennt orðað skjal og ekki margar blaðsíður, sáum við ástæðu til að hafa ítarlegan kafla um skuldamálin. Við munum strax hefja vinnu við þetta, en það mun taka tíma að vinna frumvörp og klára hluti í tengslum við þau.“ Bjarni tók undir með Sigmundi og sagðist afar ánægður með þá lendingu sem formennirnir náðu á fundum sínum. „Ég er mjög ánægður með að flokkarnir tveir hafi náð saman, sem væri eðlilegt framhald í kjölfar kosninganna,“ sagði hann. „Við höfum sett réttu forgangsmálin á dagskrá, en við munum heldur ekki færast of mikið í fang. Það eru fjölmörg tækifæri í landinu, en ef ekki er rétta andrúmsloftið í samfélaginu munu okkur ekki auðnast að færast fram og við munum tapa samkeppnisstöðu landsins.“
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira