Agnarsmár vágestur gerir vart við sig á ný Svavar Hávarðsson skrifar 21. maí 2013 09:45 Fiðrildið er aðeins sex millimetrar á lengd. Mynd/Erling ólafsson
Smávaxið fiðrildi, birkikemba, gerir mjög vart við sig annað árið í röð. Það hefur náð undraverðri útbreiðslu á stuttum tíma. Heimsókn þessa skordýrs þýðir töluverðar skemmdir á birkitrjám. Ekki er talin ástæða til þess að óttast meiriháttar skemmdir á birkiskógum, er mat sérfræðings nema til komi fleiri skaðvaldar vegna hlýnunar. Erling Ólafsson, dýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, vakti athygli á mikilli útbreiðslu birkikembu á pödduvef NÍ í fyrravor, en það er veglegur upplýsingabanki um skordýr hvers konar sem hann á veg og vanda af. Hann segir að eins og í fyrra hafi fjöldi fólks spurst fyrir, enda verði fólk vart við stóra hópa af fiðrildinu annað árið í röð. Birkikembu varð fyrst vart í Hveragerði árið 2005. Í fyrravor var ljóst orðið að birkikembunni hafði vaxið mjög ásmegin og fannst víða í Reykjavík og suður í Hafnarfjörð. Auk þess var hún mætt til leiks í trjárækt Skógræktar ríkisins að Mógilsá í Kollafirði og í görðum á Selfossi. Ummerkin á trjánum, brúnir uppblásnir laufbelgir, eru einkennandi fyrir birkikembu. Erling telur að hér sé mætt til leiks tegund sem á eftir að fjölga sér hratt á komandi árum og dreifast út víðar um garða og trjáræktir, jafnvel í náttúrulega birkiskóga. Halldór Sverrisson, plöntusjúkdómafræðingur og lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands, segir það greinilegt að fiðrildið geti skaðað birkitré í görðum á höfuðborgarsvæðinu. Þar séu skilyrði góð fyrir tegundina. „Í Ölfusinu, þar sem þessi tegund hefur verið í tíu ár virðast skemmdir minni. Útbreiðslan er hæg og bundin við Suðvesturland enn þá. Ég tel litlar líkur á að fiðrildið valdi verulegum skemmdum í náttúrulegum birkiskógum. En þetta er viðbót við annað sem fyrir er og eykur líklega beitarálag á skóginn eitthvað. Og ef fleiri birkiskaðvaldar berast til landsins geta áhrif á skóginn orðið neikvæð,“ segir Halldór.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira