Raup eða alvara?

Fréttablaðið Fastir pennar 01. desember 2006 06:00
Raup eða alvara?

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins, greinir frá því í viðtali við þetta blað liðinn miðvikudag að hann hafi á þeim tíma er hann gegndi þessum embættum báðum talið meira en litlar líkur á að fulltrúar bandarísku leyniþjónustunnar CIA hefðu haft aðgang að sérstöku öryggisherbergi í utanríkisráðuneytinu til þess að stunda njósnir.

Í þessu sambandi tilgreinir ráðherrann fyrrverandi einkum árin 1992 og 1993 þegar endurskoðun á varnarsamningnum stóð yfir. Jafnframt segir hann aðspurður að ekki hafi verið kostur á að kæra mál af þessu tagi því að þau hefðu farið til dómsmálaráðuneytisins sem hefði falið sömu bandarísku leyniþjónustumönnum rannsóknina.

Vandinn við að meta þessi ummæli er fyrst og fremst sá að ekki er ljóst hvort ráðherrann fyrrverandi vill láta líta á þau sem raup eða alvöru. Ef rétt þætti að líta á þau sem alvöru vakna fyrst og fremst upp nokkrar spurningar.

Hvað ber ráðherra að gera sem fær grun um að erlendir njósnarar noti hans eigið ráðuneyti til starfsemi sinnar gegn hagsmunum íslenska ríkisins? Á honum hvíla einfaldlega þær skyldur að viðlagðri ábyrgð samkvæmt lögum um ráðherra að gera ráðstafanir til þess að stöðva það ástand án tafar. Hvers vegna var það ekki gert?

Þá er ástæða til að spyrja hvort líklegt sé að erlendir njósnarar hafi árum saman stundað iðju sína í utanríkisráðuneytinu án aðildar eða vitneskju annarra embættismanna þess? Hvers vegna lét ráðherra það álitamál kyrrt liggja?

Málið er svo einfalt að ráðherra ber ábyrgð á að í ráðuneyti hans gerist ekkert sem andstætt er lögum og stjórnarskrá eða stefnir heill ríkisins í hættu. Ráðherra má eins og kunnugt er krefja ábyrgðar fyrir störf, vanrækt starfa og stórkostlegt hirðuleysi. Finnst ráðherranum fyrrverandi nú að það hefði átt að gera?

Hvers vegna var málið ekki kært til Rannsóknarlögreglu ríkisins sem fór með rannsókn opinberra mála á þeim tíma? Ráðherrann fyrrverandi gefur þá skýringu að dómsmálaráðuneytið hefði tekið málið til sín og og stýrt rannsókninni sjálft og notað til þess sömu erlendu njósnara og hann hafði grunaða. Felast ekki í þessum ummælum grunsemdir um brot dómsmálaráðuneytisins á lögum og stjórnarskrá?

Gat nokkur annar en dómsmálaráðherrann borið ábyrgð á slíkum vinnubrögðum? Sat hann ekki í embætti í stjórnskipulegu umboði þingmanna Alþýðuflokksins eins og aðrir ráðherrar á þeim tíma? Var ekki fullkomlega ábyrgðarlaust af þeim að styðja með þeim hætti ráðherra sem þeir grunuðu um slík verk? Hvers vegna var Alþingi ekki gerð grein fyrir grunsemdunum um háttsemi dómsmálaráðuneytisins?

Þetta eru þau raunverulegu álitaefni sem við blasa ef ráðherrann fyrrverandi kýs að láta meta ummæli sín í alvöru. Kjósi hann hins vegar að litið sé á þau sem raup er aðeins efni til að spyrja einnar spurningar:
Er ekki ástæða til að færa umræður um mál af þessu tagi á aðeins hærra plan?


Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 21:00

Mýtunni um þröngu píkuna haldið við

Ein kynlífsmýta, sem virðist ekki ætla að deyja, er sú að píkan verði víð við notkun. Í ný...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu þarf að undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Þeir starfa samkvæmt námskrá þannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigðisþjónustu

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hérlendis að þjónusta heilbrigðisstarfsfólks,...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 13:18

Vaxtaverkir

Í byrjun þess árs sem ég útskrifaðist úr grunnskóla, árið 1996, voru Íslendingar 267.958. ...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 09:00

Ósagðar Íslendingasögur

Það var viðtal við Baltasar í Fréttatímanum þar sem hann segir frá áformum um glæpaþætti í...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 06:00

Illa rökstudd delluhugmynd

Í nýju frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra til breytinga á fjölmiðlalögum e...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Óþörf styrjöld

Þetta á ekki að vera styrjöld í mínum huga, við eigum að reyna að ná málefnalega góðri nið...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Bölvun hlýrabolsins

Með hækkandi sól hafa áhyggjur mínar af klæðaburði sumarsins aukist. Það er augljóst að st...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Makríllinn og Evrópusambandið

Þarf deilan um makrílinn að hafa áhrif á aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið? Svarið er...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 09:00

Taka niður vegg

Tveir lagaprófessorar komast að þeirri niðurstöðu í álitsgerð, sem utanríkismálanefnd Alþi...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 06:00

Allt of mikið uppi á borðinu

Austurrískur laganemi, Max Scherns, bað Facebook um að senda sér allar persónuupplýsingarn...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 09:00

Til hvers?

Þótt Frakkar deili um hvor væri skárri forseti, Sarkozy eða Hollande, vefst yfirleitt ekki...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 06:00

Ólíðandi öfugþróun

"Okkur miðar ekki nægilega fram á við í að ná fram launajafnréttinu,“ segir Jóhanna ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / / Raup eða alvara?