Síminn og Landsvirkjun viðurkenna samráð og borga sektir 19. febrúar 2007 15:57 MYND/Páll Bergmann
Síminn, Landsvirkjun og Fjarski ehf., sem er dótturfélag Landsvirkjunar, hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið og fallist á að hafa haft með sér ólögmætt samráð í tengslum við kaup Símans á eignarhlut í Fjarska og við kaup Símans á sex ljósleiðarastrengjum á milli Hrauneyjarfossstöðvar og Akureyrar. Fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu að í sáttinni felist að aðilar málsins viðurkenna að hafa farið gegn 10. grein samkeppnislaga og ógildi þá samninga sem voru grundvöllur brotanna. Þá fellst Síminn á að greiða 55 milljónir í stjórnvaldssekt og Landsvirkjun 25 milljónir. Í tilkynningunni segir enn fremur að forsaga málsins sé sú að í febrúar 2005 keypti Síminn fjórðungshlut í Fjarska, sem starfar m.a. á fjarskiptamarkaði, ásamt því að kaupa af Fjarska sex ljósleiðarastrengi af 12 á milli Hrauneyjafossstöðvar og Akureyrar. Eftir að greint var frá þessu samstarfi í fréttum hófu samkeppnisyfirvöld að eigin frumkvæði rannsókn sem leiddi til þess að aðilum var sent andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins. Þar kom fram það frummat eftirlitsins að markmiðið með samningum félaganna hefði verið að raska samkeppni og skipta með sér markaði á sviði fjarskipta og með því hefði verið brotið 10. grein samkeppnislaga. Báðir aðilar leituðu í kjölfar þess eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið sem leiddi til ofangreindrar niðurstöðu. Litið var til þess að Síminn var leiðandi aðili í samráðinu sem skýrir mismun á sektargreiðslum.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira