Vísir, 09. okt. 2007 11:21

Ógöngur Vilhjálms borgarstjóra

mynd
Gamli góđi Villi hefur ekki veriđ nógu var um sig.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hefur ekki átt sjö dagana sæla í embætti. Nú eru um 500 dagar liðnir frá síðustu sveitastjórnarkosningum og hefur hann staðið að fjölmörgum umdeildum verkefnum. Á meðal þeirra er að gera útigangsmenn að nágrönnum leikskólabarna og gefa fjárhættuspilafyrirtæki 20 milljónir króna á silfurfati.



Nágranninn Villi Vill

Vilhjálmur úthýsti Háspennu, sem rekur fjárhættuspilakassa, úr Mjóddinni á þeim forsendum að hann vildi ekki að fyrirtækið væri með starfsemi í fjölskylduhverfi. Vilhjálmur býr skammt frá Mjóddinni. Hann lét borgina því kaupa húsnæðið sem fasteignafélag tengt Háspennu átti fyrir 92 miljónir króna. Til viðbótar fékk Háspenna afhenta glæsilega einbýlishúsalóð við Starhaga sem Vilhjálmur sagði vera 30 milljóna króna virði. Kjartan Magnússon, samherji Vilhjálms í borgarstjórn, gagnrýndi þessar ákvarðanir borgarstjóra.



Reiknikúnstnerinn Villi Vill

mynd
Eigendur Háspennu grćddu milljónir á kostnađ borgarbúa.

Háspenna seldi lóðina sem borgin lét af hendi fyrir 50 milljónir króna einungis örfáum mánuðum seinna. Vilhjálmur misreiknaði sig því um litlar 20 milljónir á kostnað borgarbúa.



Upplýsingafulltrúinn Villi Vill

Vilhjálmur ákvað að staðsetja heimili fyrir útigangsmenn á Njálsgötu. Langflestir íbúar í götunni fengu fyrstu fréttir um málið þegar Fréttablaðið skýrði frá því. Fjölmargar barnafjölskyldur eru í götunni og þar er starfræktur leikskóli.



Forvarnarfulltrúinn Villi Vill

mynd
Borgin og lögreglan hafa stađiđ saman ađ bćttri menningu í Reykjavíkurborg.

Lögreglan og Reykjavíkurborg ákváðu að skera upp herör gegn ómenningu í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan með því að fjölga mönnum á vakt um helgar. Vilhjálmur með því að stinga upp á að Vínbúðin í Austurstræti hætti að selja kaldan bjór í stykkjatali.



Hinn stađfasti Villi Vill

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var í minnihluta í borgarstjórn gagnrýndu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins Alfreð Þorsteinsson stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur fyrir áhættufjárfestingar á vegum fyrirtækisins, meðal annars með stofnun Línu.net. Eitt af fyrstu verkefnum Sjálfstæðisflokksins í meirihluta var að stofna fyrirtækið Reykjavík Energy Invest, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, sem hefur það að markmiði að stunda áhættufjárfestingar á sviði orkuiðnaðar.



Reykásinn Villi Vill

mynd
Dagar Hauks Leóssonar, sem stjórnarformanns Orkuveitunnar, verđa senn taldir.

Þegar samruni Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy hafði siglt í öngstræti, meðal annars vegna himinhárra kaupréttasamninga til handa völdum gæðingum, leysti Vilhjálmur málið með því að reka vin sinn, Hauk Leósson úr embætti stjórnarformanns Orkuveitunnar. Vilhjálmur stóð að skipun Hauks Leóssonar vegna þess að hann vildi fá fagmann að stjórn fyrirtækisins. Haukur var hins vegar rekinn til að hægt væri að koma að pólitíkus í embættið.



Fjölskyldumađurinn Villi Vill

Vilhjálmur seldi sex daga gömlu fyrirtæki bróður síns, Svans Vilhjálmssonar, eftirsótta lóð borgarinnar við Fiskislóð í Reykjavík á spottprís í maí á þessu ári. Þá réð hann líka frænda sinn, Vilhjálm Skúlason, í góða stöðu hjá Reykjavík Energy Invest. Vilhjálmur starfaði áður sem verslunarstjóri hjá Tékk - Kristal.



Hinar mörgu hliđar Villa Vill

Borgin samdi við hjúkrunarheimilið Eir um byggingu þjónustuíbúða og félagsmiðstöðvar fyrir aldraða án þess að bjóða verkið út. Minnihlutinn í borgarstjórn vildi formlegt útboð. Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri er stjórnarformaður í Eir.



Fleiri fréttir

Innlent 20. mar. 2010 13:05

VG á móti ţví ađ einkaflugher fái ađstöđu á Íslandi

Stjórn Vinstri grćnna tekur undir ályktanir Ungra Vinstri grćnna og Vinstri grćnna í Reykj...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 13:27

Bjarni: Möguleikar Íslendinga betri en annarra ţjóđa

Bjarni Benediktsson, formađur Sjálfstćđisflokksins, segir ađ Íslendingar eigi betri mögule...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 12:04

Dönsuđu tangó fram á morgun

Tangóunnendur og tangódansarar skemmtu sér í Iđnó og Ráđhúsi Reykjavíkur í nótt og dönsuđu...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 10:05

Enn óvissustig vegna Eyjafjallajökuls

Almannavarnir vinna enn effir áćtlunum um óvissustig á svćđinu viđ Eyjafjallajökul vegna m...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 09:19

Fimm fluttir á slysadeild eftir bílveltu viđ Sandskeiđ

Fimm voru fluttir á slysadeild til skođunar ţegar ađ bíll valt á Suđurlandsvegi viđ Sandsk...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 09:15

Brotist inn í ljósmyndavöruverslun

Brotist var inn í ljósmyndavöruverslun í Brautarholti á fjórđa tímanum í nótt. Ţrír voru h...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 06:00

Meirihluti vill kjósa um framtíđ kvótakerfisins

Meirihluti ţeirra sem afstöđu tóku í skođanakönnun Fréttablađsins vill ađ ţjóđin fái ađ gr...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 06:00

Hálfrćnulaus eftir dáleiđslu hjá Sailesh

Stúlka á átjánda ári lenti í hremmingum eftir ađ dávaldurinn Sailesh hafđi dáleitt hana í ...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 05:15

Stjórnarfylgiđ minna en fyrst eftir hruniđ

Stuđningurinn viđ ríkisstjórn Jóhönnu Sigurđardóttur er 38,9 prósent, samkvćmt skođanakönn...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 05:00

Dćmi Íslands má ekki endurtaka

„Öll erum viđ sammála um ađ bankakreppa á viđ kreppuna á Íslandi megi ekki koma upp aftur,...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 04:45

Tóku 38 fíkniefnasmyglara

Lögreglan á Suđurnesjum og tollgćslan á Keflavíkurflugvelli hafa tekiđ ţrjátíu og átta man...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 04:00

OR vill aprílopnun

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samţykkti í gćr fyrir sitt leyti tillögu Ţorleifs Gunnlaugsso...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 04:00

Fá enn fjarnám ţótt ráđuneyti vilji skera

Bćđi Fjölbrautaskólinn í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands halda áfram ađ kenna grunnskólan...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 03:13

Formanni vikiđ vegna frambođs

Formanni umhverfis­nefndar Flóahrepps var fyrirvaralaust vikiđ frá störfum á fundi sveitar...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 03:13

Orkuverđ hćkkar á nćsta ári

Afar líklegt er ađ neytendur ţurfi ađ greiđa meira fyrir ţjónustu Orkuveitu Reykjavíkur á ...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsćlast

Lokuđust inn í bankahvelfingu B5

Lokuđust inn í bankahvelfingu B5

Fimm menn lokuđust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastađarins B-5 viđ ...


Nýtt á Vísi

Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?


Kjörkassinn

Nćrmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni