- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
„Hann sagði að Aron Pálmi ætti að tala við sig ef hann lenti í einhverjum vandræðum," segir Eyþór Sigmundsson félagi Arons Pálma um ástæðu þess að starfsmaður Bandaríska sendiráðsins lét Aron fá nafnspjald í miðborg Reykjavíkur á dögunum.
Aron Pálmi sagði í fréttum Stöðvar 2 í vikunni að Arnar B. Sigurðsson starfsmaður sendiráðsins hefði komið að máli við sig í miðbæ Reykjavíkur fyrir um mánuði síðan. Hann hafi rétt sér nafnspjald og sagt að hlutverk sitt væri að fylgjast með ferðum Arons.
Hann hélt því einnig fram að Arnar hefði hótað því að ef hann léti sjá sig í sendiráðinu myndi Arnar sjá til þess að Aron yrði handtekinn.
Eyþór sem er vinur frænda Arons Pálma var með honum umrætt kvöld. Hann brá sér aðeins frá en kom inn í samtal Arons og sendirðáðsstarfsmannsins. „Hann var eitthvað að tala um að Aron Pálmi yrði handtekinn ef hann færi aftur til Bandaríkjanna, þannig skildi ég það allavega," segir Eyþór en samtalið átti sér stað fyrir utan Vöffluvagninn við Lækjartorg.
Eyþór segir að Arnar sendiráðsstarfsmaður hafi líklega verið búinn að fá sér nokkra bjóra og hann hafi verið með stúlku upp á arminn, líklega kærustu sína. „Hann var eitthvað að spila sig stórt en stelpan dró hann síðan í burtu," segir Eyþór sem hefur nokkrum sinnum kíkt með Aroni Pálma út á lífið. „Þetta er mjög fínn strákur og hann er stjarna á skemmtistöðunum. Það eru allir að tala við hann og hann heilsar öllum."
Eyþór segir að Aron hafi ekki tekið orð sendiráðsstarfsmannsins alvarlega eftir að Arnar yfirgaf vettvang. „Hann sagði þessi orð ómerk þar sem þessi gaur væri ekkert háttsettur í sendiráðinu."
Sendiráð Bandaríkjanna sagði við Vísi í gær að ekkert yrði aðhafst í málinu fyrr en formleg kvörtun hefði borist. Aron hefur hinsvegar sjálfur hringt bæði í Utanríkisráðuneytið og Sendiráðið og kvartað yfir framkomu starfsmannsins.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samţykkti í gćr fyrir sitt leyti tillögu Ţorleifs Gunnlaugsso...
Bćđi Fjölbrautaskólinn í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands halda áfram ađ kenna grunnskólan...
Formanni umhverfisnefndar Flóahrepps var fyrirvaralaust vikiđ frá störfum á fundi sveitar...
Afar líklegt er ađ neytendur ţurfi ađ greiđa meira fyrir ţjónustu Orkuveitu Reykjavíkur á ...
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna hafa rćtt um ađ verđtryggja ţćr 300.000 krónur sem flokkarni...
Tveir brćđur um fertugt hafa veriđ ákćrđir fyrir hrottalega líkamsárás í Breiđholtinu í nó...
Íţróttaálfurinn sjálfur, Magnús Scheving, hefur faliđ blađafulltrúa sínum í Bretlandi ađ b...
Í nótt sem leiđ var brotist inn í 7 bifreiđar viđ Leynisbrún, Suđurvör og Stađarhraun í Gr...
Aldrei í sögunni hefur fengist eins hátt verđ fyrir grásleppuhrogn og nú og hefur verđiđ h...
Níu starfsmenn hjá utanríkisráđuneytinu starfa ţar međ sendiherratitil og ţiggja laun samk...
Vegna frétta um meintan ólöglegan útflutning á hvalaafurđum hefur sjávarútvegs- og landbún...
Íslenskur karlmađur lést í vikunni af völdum áverka sem hann hlaut eftir ađ hann féll niđu...
Fundi samninganefndar flugvirkja og viđsemjenda ţeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk á fimmta...
Engin hefur enn veriđ handtekinn eđa yfirheyrđur vegna spellvirkjanna sem unnin voru á fja...
Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu var vígt viđ Bođaţing í Kópavogi á dag. Rúm átta ár eru sí...
Fimm menn lokuđust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastađarins B-5 viđ ...
Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?