- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, styður þá ákvörðun flokksbróður síns, Árna M. Mathiesen, að skipa Þorstein Davíðsson sem héraðsdómara og segir óþolandi að menn séu látnir gjalda þess hverra manna þeir eru.
Matsnefnd um hæfi umsækjenda, undir formennsku Péturs Hafstein, átelur Árna M. Mathiesen harðlega fyrir að skipa Þorstein Davíðsson dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og segir ráðherrann hafa tekið ómálefnalega ákvörðun og farið langt út fyrir þau valdsmörk sín.
Árni M. Mathiesen sat ekki ríkisstjórnarfund í morgun sem var undir forsæti Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Aðspurð hvort þetta væri ekki óþægilegt mál fyrir Árna M. Mathiesen sagði Þorgerður Katrín að Árni væri að taka sína ákvörðun og þetta væri ekkert óþægilegt.
„Það geta alltaf komið upp ákveðnar deilur um embættisráðningar, það kann vel að vera en engu að síður er þetta mat Árna og þetta er fullkomlega réttmætt mat Árna. Það er rétt að undirstrika það að það er ekki hlutverk nefndarinnar að skipa mönnum í flokka eftir hæfni og að mínu mati hefðu menn átt segja hæfur eða ekki hæfur," segir Þorgerður Katrín.
Síðan sé það mat og ábyrgð hvers ráðherra að taka ákvörðun. Það geri fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra og aðrir ráðherrar. „Ég hef líka staðið í svona embættisveitingum og það er alltaf á endum ráðherra sem ber ábyrgðina," segir Þorgerður Katrín.
Aðspurð hvort hún styddi valið játti Þorgerður Katrín því. „Ég styð mína ráðherra og í því sem þeir eru að gera og þetta er hans mat. Mér finnst algjörlega óþolandi að sjá það að menn árið 2007 eða 2008 þurfi að líða fyrir það hverra manna þeir eru," segir Þorgerður Katrín.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, baðst hins vegar undan því að segja álit sitt og bar því við að hún hefði ekki enn lesið rökstuðning fjármálaráðherra.
Íslensk kona er í haldi í Perú grunuð um fíkniefnasmygl. Samkvæmt upplýsingum úr utanríkis...
Fjarskipti við umheiminn hefðu getað lamast að miklu leyti ef búnaður skemmdarvarga hefði ...
Gert er ráð fyrir því að um tvö hundruð erlendir gestir frá yfir þrjátíu löndum sæki alþjó...
Næsta mánudag funda norrænir fjármálaráðherrar í Danmörku og er gert ráð fyrir að Steingrí...
Elísa Auður sem lýst var eftir í fjölmiðlum í gær er komin í leitirnar. Lögreglan á höfuðb...
Rafmagni hefur aftur verið komið á í í Holtunum í Reykjavík, nánar tiltekið Brautarholti,...
Tveir innbrotsþjófar voru gripnir glóðvolgir við innbrot í verslun í Sundunum í Reykjavík ...
Grunur leikur á að skemmdarverk hafi verið unnin á rafköplum í fjarskiptamöstrum í grennd ...
Ekki stendur til að breyta lögum til að þeir sem eru í skuldavanda vegna íbúðaláns geti ei...
Miklar skemmdir urðu á gömlu fiskimjölsverksmiðjunni í Sandgerði í fyrrinótt þegar eldur k...
„Ég er með efasemdir um slíka starfsemi á vellinum," segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstr...
Flugmálastjórn er langt komin við að meta umsókn hollenska fyrirtækisins E.C.A. Program um...
Samtök hernaðarandstæðinga (SHA) telja að einkarekinn flugher hollenska fyrirtækisins E.C....
Ellefu viðskiptaáætlanir hafa verið valdar til að taka þátt í Gullegginu 2010, frumkvöðlak...
Framleiðsla og neysla á kjöti hefur þrefaldast á síðustu þremur áratugum og allt stefnir í...
Foreldrar fjögurra ára bresks drengs hafa verið harðlega gagnrýndir eftir að upp...
Hyggur þú á ferðalög í sumar?