Lífið

Beggi og Pacas trúlofuðu sig í dag

Beggi og Pacas
Beggi og Pacas
„Ég var í heilsuferð í Orlando og ákvað að breyta fluginu og koma heim degi fyrr en til stóð því það er stór dagur hjá strákunum mínum Begga og Pacasi bæði í dag og ekki síður á morgun þegar kosið verður um vinningshafana um fallegustu íbúðina. Þeir hafa lagt hjarta og sál sína í þáttinn og nú er kominn tími til að uppskera," segir Sigríður Klingenberg spákona.
Sigríður Klingenberg

„Það er hamingja ríkjandi hjá Begga og Pacas því þeir trúlofuðu sig í dag 7. maí. Það er mikill kraftur yfir sjöunni, bæði andlegur og heilagur og talan fimm gefur kátínu og heppni í talnaspekinni sem þýðir spennandi og hamingjuríkt tímabil sem allt er bæði óvænt og skemmtilegt og gefur strákunum kraft."

„Útkoman verður talan fjórir sem þýðir að sterkir munu þeir standa saman. Þess má einnig geta að Beggi bróðir minn er rosalega mikill spámaður eins og ég. Þeir hafa verið saman í fimm ár og ég sé það fyrir mér að keppnin sé þeirra. Þeir eru einlægir í hjarta og setja ást í alla veggi. Ég skora á alla að skjósa strákana í númerið 900-9019," segir Sigríður Klingenberg sem er

í þessum töluðu orðum að fagna með nýtrúlofuðum turtildúfunum á Hæðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×