Lífið

Kosningavaka fyrir Elísabetu og Hreiðar

Kosningavaka verður haldin fyrir þau Elísabetu og Hreiðar á Hæðinni á Ásláki í Mosfellsbæ í kvöld. „Það eru bara allir velkomnir. Það verður mikið stuð og stemning," segir Elísabet.

Húsið opnar klukkan átta, en Elísabet og Hreiðar koma beint á vökuna þegar beinu útsendingunni líkur, um klukkan hálf tíu.

Þau eru vongóð með kvöldið, enda hafa þau fengið afar jákvæð viðbrögð við íbúðinni. „Það sem við heyrum er að fólki finnist húsið okkar svo fjölskylduvænt, og mikið samræmi í hönnuninni," segir Elísabet. „Við erum ofsalega spennt og hlökkum til að ljúka þessu verkefni."

Þeir sem vilja kjósa Elísabetu og Hreiðar hringja í númerið 900 9023 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×