Innlent

Árni Þór: Eðlilegt að samgöngunefnd hafi fengið hótelgistingu

Þingmanni Vinstri grænna í Reykjavík finnst eðlilegt að samgöngunefnd gisti á hóteli á höfuðborgarsvæðinu, þegar nefndin er í vettvangsferð þar, þótt þorri þeirra eigi heimili á svæðinu, jafnvel í nokkurra mínútna fjarlægð frá hótelinu.

Samgöngunefnd Alþingis fór í sumar í vettvangsferð um höfuðborgarsvæðið sem mun sæta tíðindum enda óalgengt að nefndin fari í ferðir um höfuðborgina og næsta nágrenni. Átta nefndarmenn af níu fóru í ferðina. Hópurinn snæddi kvöldverð á hótelinu Kríunesi við Elliðavatn og síðan gistu sex nefndarmenn þar yfir nótt þrátt fyrir að eiga allir höfði að halla á höfuðborgarsvæðinu nema einn, Herdís Þórðardóttir, Sjálfstæðisflokki sem býr á Akranesi. Hinir fimm voru Reykjavíkur þingmaðurinn Árni Þór Sigurðsson, Vinstri grænum, og landsbyggðarþingmennirnir Árni Johnsen og Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki, Guðjón Arnar Kristjánsson, Frjálslyndum og Karl V. Matthíasson, Samfylkingu. Öll reka þau heimili á höfuðborgarsvæðinu enda fá þau þingfarakaup til þess.

Árni Johnsen býr í Rituhólum í efra Breiðholti, aðeins er rúma fimm kílómetra að fara frá hótelinu með bíl þangað. Karl V. Matthíasson býr í Flúðaseli í Seljahverfi en vegalengdin þangað með bíl er rúmir þrír kílómetrar. Árni Þór Sigurðsson býr við Tómasarhaga í Vesturbæ Reykjavíkur og þarf að keyra rúma þrettán kílómetra þangað frá hótelinu. Ólöf Nordal býr á Reynimel í vesturbænum og þar er svipuð veglengd milli heimilis og hótel og hjá Árna Þór. Guðjón Arnar Kristjánsson býr í Reykjabyggð í Mosfellsbæ. Hann hefði þurft að keyra rúma fimmtán kílómetra heim frá hótelinu. Lengst var fyrir Herdísi Þórðardóttur að fara en hún býr við Bjarkargrund á Akranesi. Vegalengdin þangað rúmir 45 kílómetrar.

Eðlilegt að Alþingi greiði fyrir gistinguna

Í samtali við fréttastofu sagði Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, að sú væri venjan að gista yfir nótt í vettvangsferðum samgöngunefndar og hann sæi ekki ástæðu til að breyta því þó ferðað væri á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess hefði verið fundað fram á kvöld á hótelinu og aftur um morguninn.

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis kostaði hvert herbergi tólf þúsund krónur, samanlagt 72 þúsund krónur.










Tengdar fréttir

Þingmenn gistu á lúxushóteli við Elliðavatn

Þingmenn í samgöngunefnd Alþingis gistu á lúxushóteli við Elliðavatn þegar þeir fóru í skoðunarferð um höfuðborgarsvæðið. Landsbyggðarþingmenn fá sérstaklega greitt fyrir að halda heimili á höfuðborgarsvæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×