Breskum manni hefur verið bannað að stunda matvælaframleiðslu eftir að upp komst að hann hefði framleitt kebab samlokur nærri líki.
Lögregla í Wolverhampton kom í ágúst að manninum, Jaswinder Singh, þar sem hann gerði kebab samlokur af miklum móð í eldhúsi veitingastaðar síns. Lögreglumönnum brá nokkuð í brún þegar þeir uppgötvuðu að lík lá í sófa í eldhúsinu. Þar var einnig maður sem keðjureykti sígarettur og skyrpti endurtekið á gólfið.
Í næsta herbergi var verið að afþýða kjúkling. Blóð og kjötsafi lak úr kjúklingnum, sem var þakinn flugum.
Heilbrigðisyfirvöld í bænum heimsóttu veitingastaðinn nokkrum mánuðum fyrr, og vöruðu eigandann við því að hann þyrfti að taka sig verulega á í hreinlætismálum. Meðal þess sem þeim leist illa á var rottuskítur á gólfi eldhússins og dauð rotta undir potti.
Líkið í eldhúsinu var krufið, og hefur Reuters fréttastofan það eftir talsmanni lögreglu að maðurinn hafi látist af eðlilegum orsökum.
Ný útgáfa af Boeing 747 breiðþotunni fór í sitt fyrsta flug í gær. Það er Beoing 747-8 sem...
Þetta er fyrsta stórárásin sem gerð verður í Afganistan síðan Barack Obama sendi þrjátíu þ...
Bæjarstjórnin í markaðsbænum Thirsk í Norður-Jórvíkurskíri hefur áhyggjur af því að ofsafe...
Þrír breskir þingmenn sem verða sóttir til saka fyrir oftöku fjár úr opinberum sjóðum fá e...
Kinman Chan er þrítugur og vel á sig kominn. Hann taldi sig því ekki myndu eiga í vandræðu...
Stjórnvöld í Saudi-Arabíu hafa fallist á að aðstoða tólf ára telpu sem vill fá skilnað frá...
Toyota verksmiðjurnar hafa kallað inn yfir 430 þúsund eintök af flaggskipi sínu Toyota Pri...
Ástralskar tvíburasystur komust að því að bróðir þeirra hefði dáið í hræðilegu bílslysi í ...
Tvær konur og einn karlmaður særðust þegar skotum var hleypt af skammbyssum í miðjum fagna...
Breskur lögreglumaður var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi, þar af tvö ár skilorðsbund...
Manni var bjargað á lífi úr rústum byggingar á Haítí í gær, tæpum fjórum vikum eftir að ja...
Conrad Murray, sem var læknir poppgoðsins Michaels Jackson, lýsti yfir sakleysi sínu í gær...
Nú er ljóst að Viktor Janukovitsj, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, sigraði í síða...
Fjórir breskir þingmenn verða ákærðir og eiga jafnvel fangelsi yfir höfði sér fyrir að haf...
Fréttir frá Japan herma að bílaframleiðendur Toyota þurfi að innkalla nýjustu útgáfu Prius...
Nemendur við Fjölbrautarskólann í Breiðholti eru ósáttir við ákvörðun skólameist...
Hversu ánægð(ur) ertu með óflokksbundnu ráðherrana í ríkisstjórninni, Rögnu og Gylfa?