Fréttablaðið, 29. okt. 2008 06:30

Veruleikinn

mynd
Þorsteinn Pálsson.

Þorsteinn Pálsson skrifar:

Ágreiningur hefur verið um peningastefnuna um hríð. Aðalhagfræðingur Seðlabankans sagði fyrir rúmum tveimur árum að ávinningur af sjálfstæðri mynt væri minni en enginn. Bankastjórnin var staðföst í því að halda uppi fölsku gengi og fölskum lífskjörum með því að dæla inn erlendu lánsfé á háum vöxtum.

Eftir hrun bankakerfisins breytti bankastjórnin peningastefnunni í grundvallaratriðum með því að festa gengið og hverfa frá floti krónunnar. Sú stefnubreyting stóð í rúman sólarhring. Þá var snúið til baka.
Í aðdraganda þess að völdin voru tekin af bankastjórninni og færð til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lækkaði hún vexti. Sú ákvörðun fól í sér stefnubreytingu í veigamiklum atriðum. Í gær voru vextirnir síðan hækkaðir langt umfram það sem var áður en þeir lækkuðu fyrir fáeinum dögum. Við ríkjandi aðstæður er vissulega úr vöndu að ráða. En hringlandaháttur af þessu tagi er ótrúverðugur. Seðlabankinn á eftir eðli sínu að vera fjármálaleg kjölfesta efnahagslífsins. Hann minnir nú meir á korktappa.

Efnahagsvandinn sem við er að glíma er alþjóðlegur. Munurinn á Íslandi og öðrum þjóðum er sá að hér hefur nánast allt bankakerfið hrunið. Seðlabankinn hafði annaðhvort ekki styrk eða vilja til að gegna hlutverki sínu sem lánveitandi til þrautavara. Enn er óljóst hvaða stefnu bankinn fylgdi í því efni. Honum hefur verið um megn að tryggja þau gjaldeyrisviðskipti sem nauðsynleg eru til að halda atvinnulífinu gangandi.
Í kjölfar þessa vinnur ríkisstjórnin með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og vinveittum ríkisstjórnum að lánsfjáröflun til þess að unnt verði að koma á viðskiptum með íslensku krónuna á ný. Markmiðið hlýtur að vera að styrkja verðmætasköpun í þjóðarbúskapnum um leið og hagsmunir neytenda eru virtir.

Nú fer með öðrum orðum fram leit að því jafnvægi sem Seðlabankinn hefur ekki náð á undanförnum árum. Ganga verður út frá að það náist með utanaðkomandi aðstoð. Athygli hefur vakið við þessar aðstæður að dómsmálaráðherra segir það vera til marks um veruleikaflótta að skoða og ræða möguleika á upptöku evru.

Þau bjargráð sem nú eru á döfinni til að hleypa súrefni inn í atvinnulífið verða að leiða til jafnvægis í gengismálum á næstu tveimur til þremur mánuðum. Þegar þar að kemur þarf að liggja fyrir hvort framhaldið á að velta á óbreyttri peningastefnu eða hvort fara á nýjar leiðir. Óhugsandi er að á þeim tímapunkti ríki óvissa um það strik sem sigla á eftir til móts við nýja framtíð.

Þegar ríkisstjórnin biður menn við svo búið að ræða ekki kosti og galla þess að taka upp evru verða menn að leggja við hlustir. Ástæðulaust er að útiloka að ríkisstjórnin hafi rétt fyrir sér í því að evruumræðan sé flótti frá veruleikanum. En að því gefnu þarf að beina umræðunni að framtíðarveruleika krónunnar. Ófært er að sleppa umræðu bæði um krónuna og evruna.

Við höfum fengið reynslu af þeirri aðferðafræði sem beitt hefur verið undanfarin sjö ár við stjórn krónunnar. Á að halda henni óbreyttri áfram? Á að beita öðrum aðferðum? Hverjar eru þær? Með hvaða ráðum og kostnaði á að tryggja sambærilegan stöðugleika með krónu og evru? Hvernig á að tryggja samkeppnishæfni krónunnar? Eðlilegt er að þeir sem ekki eru á veruleikaflótta fái svigrúm til að koma fram með rökstudd svör við þessum spurningum. Allra eyru eru opin.





Fleiri fréttir

Fastir pennar 18. mar. 2010 06:00

Lýðræðissjóðir?

Þótt lífeyrissjóðir landsmanna hafi orðið fyrir miklu áfalli í hruninu og tapað stórlega á...  

Meira

Fastir pennar 18. mar. 2010 06:00

Skjögrandi á háum hælum

Ég lýsti því á þessum stað fyrir tæpu ári, þá var liðið hálft ári frá hruni, að Íslendinga...  

Meira

Fastir pennar 16. mar. 2010 06:00

Leggðu á djúpið

Í vikunni er þess minnst að Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur starfað í sex áratugi. Vonir ...  

Meira

Fastir pennar 15. mar. 2010 06:00

Opnið augun

Á Íslandi þrífst skipulögð glæpastarfsemi. Það er staðreynd, sem ekki þarf lengur að deila...  

Meira

Fastir pennar 13. mar. 2010 11:13

Grikklandsfárið

Grikkland er á hausnum. Það eru ekki nýjar fréttir. Grikkland hefur oft áður verið á hausn...  

Meira

Fastir pennar 13. mar. 2010 06:00

Hver stingur hausnum út?

Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um icesave velta menn því helst fyrir sér hvenær Ögmundur Jó...  

Meira

Fastir pennar 12. mar. 2010 06:00

Góðum verkum haldið á lofti

Oft er því haldið fram að í hraða nútímasamfélagsins gefist lítill tími til að huga að náu...  

Meira

Fastir pennar 12. mar. 2010 06:00

Misjöfnun

Þegar nýr erfingi dönsku krúnunnar var að í þann mund að koma í heiminn, fyrir nokkrum áru...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Óvissuferð

Átök verða styrkist krónan ekki um fjórðung til fimmtung. Þetta voru skilaboð Alþýðusamban...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Í minningu Valtýs

Tveir stjórnmálamenn áttu mestan þátt í að ryðja Íslandi braut inn í nútímann, og fór þó h...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Íslenska krónan: Er sveigjanleikinn of dýru verði keyptur?

Í þeirri miklu fjármálakreppu sem riðið hefur yfir heimsbyggðina síðustu misseri upplifði ...  

Meira

Fastir pennar 10. mar. 2010 06:00

Dæmt fyrir mansal í fyrsta sinn

Daginn sem konur tileinkuðu 8. mars baráttu sinni fyrir jafnrétti kynjanna í hundraðasta s...  

Meira

Fastir pennar 09. mar. 2010 06:00

Kosið um kvóta?

Ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu í gær, um að næsta þjóðarat...  

Meira

Fastir pennar 09. mar. 2010 06:00

Þarfur og óþarfur iðnaður

Það er skiljanlegt að á krepputímum sé uppi rík krafa um sparnað og hagræðingu í rekstri r...  

Meira

Fastir pennar 08. mar. 2010 06:00

Þrír kostir

Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin á laugardag koma ekki á óvart. Miðað við...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast

Afréttarinn mikli

Afréttarinn mikli

Haustið 2008 reið stærsta fjármálakreppa allra tíma yfir á Íslandi. Á sama tíma ...


Nýtt á Vísi

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Fastir pennar"--