Síđustu forvöđ: Bókin

Fréttablađiđ Fastir pennar 30. október 2008 07:00
Síđustu forvöđ: Bókin
Ţorvaldur Gylfason skrifar:

Ég birti fjórða ritgerðasafnið mitt Síðustu forvöð 1995. Þar er endurprentuð ritgerð mín um fjárhagshrun Færeyja frá árinu áður. Kveikjan að ritgerðinni var skínandi góð bók Eðvarðs T. Jónssonar fréttamanns, Hlutskipti Færeyja (1994), þar sem hann lýsir Færeyjum eins og skrípamynd af Íslandi.

Ritgerðin mín hefst á þessum orðum: „Hrun færeysks efnahagslífs er trúlega einn mesti harmleikur í Vestur-Evrópu á síðari helmingi þessarar aldar. Sjálfstæð þjóð með eigin menningu, sögu og tungu hefur farið svo herfilega að ráði sínu, að við henni virðist nú blasa annaðhvort sjálfstæðissvipting ellegar mun meiri fólksflótti úr eyjunum en orðinn er og skuldabasl langt fram á næstu öld, jafnvel almenn fátækt. Þess eru engin dæmi úr Evrópusögu síðustu áratuga, að frjáls og næstum fullvalda þjóða hafi kallað þvílíka niðurlægingu yfir sjálfa sig. Landsframleiðsla Færeyinga hefur fallið um meira en þriðjung síðan 1989. Á þennan kvarða er efnahagshrun Færeyja svipað umfangs og hrun Sovétríkjanna sálugu á sama tíma."




Fúnir innviđir

Þessum upphafsorðum fylgir síðan löng lýsing, innblásin af bók Eðvarðs T. Jónssonar og öðrum heimildum, á þeim fúnu innviðum, sem felldu Færeyjar. Ég segi: „Efnahagshrun Færeyja þarf að skoða ekki aðeins í sögulegu samhengi, heldur einnig í samhengi við eðli og innviði þjóðfélagsins.

Eðvarð T. Jónsson segir ýmsar sögur af undirferli, spillingu og græðgi ýmissa helztu „máttarstólpa" þjóðfélagsins, manna, sem virtust hegða sér í samræmi við leikreglur samfélagsins, þótt lög væru bersýnilega brotin, en fáir virtust gera sér rellu út af því. Allir vissu allt um alla í svo litlu landi. Enginn getur þótzt ekki hafa vitað, hvernig ástandið var í raun og veru." Síðan er brestunum lýst einum af öðrum: kjördæmaskipan, sem var gróðrarstía hrepparígs á hæsta stigi; ofurvaldi útvegsmanna, sem mærðu frjálsa samkeppni og nærðust á styrkjum; ábyrgðarleysi í stjórnmálum, sem lýsti sér meðal annars í því, að ekki var heil brú í efnahags- eða sjávarútvegsstefnu nokkurs af stjórnmálaflokkunum.





Hvar voru ţeir?
@Megin-Ol Idag 8,3p :Ég spyr í ritgerðinni: „Er eintómri fáfræði um að kenna? Um það segir Eðvarð T. Jónsson: „Efnahagskerfið var fársjúkt, en sjúklingurinn lá í sælli vímu og vissi ekki að neitt alvarlegt amaði að sér fyrr en hann var nánast í andarslitrunum."" ... Ég held áfram: „En læknarnir þá? Hvar voru þeir? - það er að segja hagfræðingarnir. Það er skemmst frá því að segja, að það munu vera tólf hagfræðingar í Færeyjum, þar af níu flokksbundnir. Hinir þrír reyndu að vara almenning og stjórnvöld við efnahagsþróuninni, en þeir voru æptir niður." Í þessari fjórtán ára gömlu ritgerð minni standa einnig þessi orð: „Færeyingar mega þakka sínum sæla fyrir að eiga ekki fullburða seðlabankastofnun, eina með öllu, því að ætli Atli Dam hefði þá ekki verið skipaður seðlabankastjóri?" Atli Dam lögmaður var einmitt höfuðarkitektinn að hruni Færeyja.





Afglöp og ofríki

Ritgerðinni lýkur svo: „Færeyingum hefur ekki tekizt að búa svo um hnútana í sínu samfélagi, að venjulegt fólk njóti verndar gagnvart afglöpum og ofríki stjórnvalda og sérhagsmunahópa. Saga Færeyja er eins og saga Íslands langt aftur í aldir öðrum þræði saga harðsvíraðra hagsmunahópa, sem mökuðu krókinn á kostnað almennings, fyrst í skjóli almenns sinnuleysis, hjátrúar og fráfræði og síðan í krafti ófullnægjandi löggjafar, leikreglna og stjórnskipanar. Siðferðisþroska þjóðfélags má að miklu leyta ráða af því, hversu vel þegnarnir eru verndaðir hver fyrir öðrum í lögum og leikreglum samfélagsins. Efnahagurinn hlýtur að draga dám af siðferðisþroskanum, þegar öllu er á botninn hvolft."

Hremmingum Færeyja lyktaði svo, að Danir lánuðu færeysku landsstjórninni einn milljarð Bandaríkjadala. Það gerir 3,7 milljónir íslenzkra króna á hvert mannsbarn í Færeyjum á verðlagi dagsins í dag. Færeyingar greiddu Dönum skuldina með vöxtum á innan við tíu árum. Kreppan stóð skemur en í tíu ár einnig í þeim skilningi, að 2001 náði landsframleiðsla á mann í Færeyjum fyrra hámarki frá 1993. Aðeins um helmingur fólksins, sem flúði eyjarnar, sneri þó aftur. Færeyingar ættu nú að vera 54 þúsund miðað við fólksfjölgun fyrri ára, en þeir eru nú 49 þúsund.



Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óţolandi ógagnsći

Seđlabanki Íslands kynnti á miđvikudag niđurstöđu ţriggja gjaldeyrisútbođa sem fariđ hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónćg rök fyrir hjálmaskyldu

Kćri lesandi, settir ţú á ţig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega ađ tala viđ ţig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alţingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virđast landlćgur vandi á Íslandi. Fréttablađiđ ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök ţarf ađ sanna

Paul Larsson, prófessor viđ Lögregluháskólann í Ósló, ráđlagđi Íslendingum í samtali viđ F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 21:00

Mýtunni um ţröngu píkuna haldiđ viđ

Ein kynlífsmýta, sem virđist ekki ćtla ađ deyja, er sú ađ píkan verđi víđ viđ notkun. Í ný...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu ţarf ađ undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Ţeir starfa samkvćmt námskrá ţannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigđisţjónustu

Ţađ hefur líklega ekki fariđ fram hjá neinum hérlendis ađ ţjónusta heilbrigđisstarfsfólks,...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 13:18

Vaxtaverkir

Í byrjun ţess árs sem ég útskrifađist úr grunnskóla, áriđ 1996, voru Íslendingar 267.958. ...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 09:00

Ósagđar Íslendingasögur

Ţađ var viđtal viđ Baltasar í Fréttatímanum ţar sem hann segir frá áformum um glćpaţćtti í...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 06:00

Illa rökstudd delluhugmynd

Í nýju frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráđherra til breytinga á fjölmiđlalögum e...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Óţörf styrjöld

Ţetta á ekki ađ vera styrjöld í mínum huga, viđ eigum ađ reyna ađ ná málefnalega góđri niđ...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Bölvun hlýrabolsins

Međ hćkkandi sól hafa áhyggjur mínar af klćđaburđi sumarsins aukist. Ţađ er augljóst ađ st...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Makríllinn og Evrópusambandiđ

Ţarf deilan um makrílinn ađ hafa áhrif á ađildarviđrćđurnar viđ Evrópusambandiđ? Svariđ er...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 09:00

Taka niđur vegg

Tveir lagaprófessorar komast ađ ţeirri niđurstöđu í álitsgerđ, sem utanríkismálanefnd Alţi...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 06:00

Allt of mikiđ uppi á borđinu

Austurrískur laganemi, Max Scherns, bađ Facebook um ađ senda sér allar persónuupplýsingarn...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 09:00

Til hvers?

Ţótt Frakkar deili um hvor vćri skárri forseti, Sarkozy eđa Hollande, vefst yfirleitt ekki...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 06:00

Ólíđandi öfugţróun

"Okkur miđar ekki nćgilega fram á viđ í ađ ná fram launajafnréttinu,“ segir Jóhanna ...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Síđustu forvöđ: Bókin