Ólga eða eining

Fréttablaðið Fastir pennar 12. nóvember 2008 08:41
Ólga eða eining
Þorsteinn Pálsson skrifar:

Kosningakrafan heyrist nú æ oftar. Á Alþingi virðist vera einhugur um að eðlilegt sé að koma brýnustu bjargráðum í framkvæmd áður en til kosninga verður gengið. Það er gilt sjónarmið. Ríkisstjórnin höfðar til samstöðu. Vandinn er sá að samstaða verður að snúast um viðfangsefni, skýran málstað og markmið.

Engum getur dulist að ólga fer hratt vaxandi í samfélaginu. Hvert sú ólga stefnir er óræðara. Á sama tíma bendir allt til að unnt sé að mynda breiðfylkingu stjórnvalda og stærstu hagsmunasamtaka landsins um einu færu leiðina út úr hremmingum þjóðarinnar.

Eins og málin horfa við sýnist ríkisstjórnin tvístíga milli tveggja kosta. Annar er sá að láta ólguna taka yfir á næstu vikum. Hinn er sá að kalla án tafar eftir þríhliða samstarfi ríkisvaldsins, Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins.

Um hvað á slíkt samstarf að snúast? Það er skýrt: Fyrst og fremst að ákveða evru sem framtíðargjaldmiðil fólksins í landinu. Samhliða þarf að taka ákvörðun um aðild að Evrópusambandinu. Jafnframt þarf að ná samstöðu þessara þjóðfélagsafla um bráðaaðgerðir til að halda atvinnufyrirtækjum gangandi og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot heimila.

Ef vilji ríkisstjórnarinnar stendur til samstöðu sýnist ekkert standa í vegi fyrir því að svo verði. En þetta er eina leiðin. Aðrir kostir eru ekki í augsýn. Það sem meira er: Samstaða af þessu tagi verður ekki að veruleika nema ríkisstjórnin sjálf taki frumkvæðið. Til þess hefur hún í mesta lagi nokkra daga.

Aðstæður í þjóðfélaginu eru með þeim hætti að engar sögur eru um neitt sambærilegt. Slíku ástandi þarf að mæta með athöfnum sem ekki eru í handbók fordæmanna. Í því ljósi væri rétt að treysta breiðfylkingu þríhliða samstarfs með því að kalla fulltrúa úr atvinnulífinu og launþegahreyfingunni inn í ríkisstjórnina. Að auki ættu stjórnarflokkarnir að endurnýja hluta ráðherra sinna.

Fullyrða má að málefnalega hefur tækifæri til þess að mynda samstöðu af þessu tagi aldrei verið augljósara og auðfengnara. Samhliða því að slík samstaða yrði staðfest gerði ríkisstjórnin rétt í að bjóða þeim þingflokkum stjórnarandstöðunnar sem fúsir eru að axla ábyrgð á evru og aðild að Evrópusambandinu aðild að stjórninni. Allir þurfa að endurnýja hagsmunamatið.

Þegar aðildarviðræður eru komnar vel á veg verður nauðsynlegt að gera breytingar á stjórnarskránni. Þær þarf að samþykkja á tveimur þingum með kosningum á milli. Á þeim tímapunkti fá kjósendur tækifæri til að meta framtíðarsýn stjórnmálaflokkanna og mögulegra nýrra stjórnmálahreyfinga.

Mikilvægt er að samhliða slíkri þróun mála fari fram uppgjör við fortíðina með þeim rannsóknaraðferðum sem þingið virðist vera að sammælast um. En ofar öðru stendur réttur fólksins til að kjósa um framtíðina þegar að kjörborðinu kemur.

Hiki ríkisstjórnin við að grípa það tækifæri til þjóðarsamstöðu sem við blasir er líklegast að ólgan taki völdin og ráði vegferðinni. Enginn ætlar ríkisstjórninni að velja ólguna. Troði hún marvaðann gerist það hins vegar sjálfkrafa. Á herðum forystumanna stjórnarflokkanna hvílir þung ábyrgð. Mikill meirihluti þjóðarinnar ber án vafa þá von í brjósti að þeir velji saman leið mestu mögulegu einingar. Tímaglas íhugunar er tómt. Það er að hrökkva eða stökkva.




Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 21:00

Mýtunni um þröngu píkuna haldið við

Ein kynlífsmýta, sem virðist ekki ætla að deyja, er sú að píkan verði víð við notkun. Í ný...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu þarf að undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Þeir starfa samkvæmt námskrá þannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigðisþjónustu

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hérlendis að þjónusta heilbrigðisstarfsfólks,...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 13:18

Vaxtaverkir

Í byrjun þess árs sem ég útskrifaðist úr grunnskóla, árið 1996, voru Íslendingar 267.958. ...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 09:00

Ósagðar Íslendingasögur

Það var viðtal við Baltasar í Fréttatímanum þar sem hann segir frá áformum um glæpaþætti í...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 06:00

Illa rökstudd delluhugmynd

Í nýju frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra til breytinga á fjölmiðlalögum e...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Óþörf styrjöld

Þetta á ekki að vera styrjöld í mínum huga, við eigum að reyna að ná málefnalega góðri nið...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Bölvun hlýrabolsins

Með hækkandi sól hafa áhyggjur mínar af klæðaburði sumarsins aukist. Það er augljóst að st...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Makríllinn og Evrópusambandið

Þarf deilan um makrílinn að hafa áhrif á aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið? Svarið er...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 09:00

Taka niður vegg

Tveir lagaprófessorar komast að þeirri niðurstöðu í álitsgerð, sem utanríkismálanefnd Alþi...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 06:00

Allt of mikið uppi á borðinu

Austurrískur laganemi, Max Scherns, bað Facebook um að senda sér allar persónuupplýsingarn...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 09:00

Til hvers?

Þótt Frakkar deili um hvor væri skárri forseti, Sarkozy eða Hollande, vefst yfirleitt ekki...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 06:00

Ólíðandi öfugþróun

"Okkur miðar ekki nægilega fram á við í að ná fram launajafnréttinu,“ segir Jóhanna ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / / Ólga eða eining