Ábyrgđ Samfylkingarinnar

Fréttablađiđ Ađsendar greinar 20. nóvember 2008 07:00
Hallgrímur Helgason skrifar um pólitíska ábyrgđ
Hallgrímur Helgason skrifar um pólitíska ábyrgđ

Með hverjum deginum sem líður síast inn sú furða og sú staðreynd að hér hefur land verið sett á hvolf og enn hefur ekki nokkur maður sagt af sér. Þeir sem blésu upp þá bankabólu sem sprakk svo illa framan í þjóðina eru reyndar flestir flúnir ofan í sínar vel fóðruðu matarholur en þeir og þau sem áttu að hemja vandann sitja enn.

Og nú er von á tröllaláni frá alþjóðasamfélaginu, mörg hundruð milljörðum króna, sem afhentar skulu þeim sem mesta ábyrgð bera á efnahagshruninu. Er skippernum, sem svaf af sér siglinguna en vaknaði við strandið, treystandi fyrir líflínu þjóðarinnar? Nei. Það má ekki gerast að sömu mönnum og settu Ísland á hausinn sé ætlað að reisa það við. Það bara gengur ekki.

Og með hverjum deginum sem líður vex ábyrgð Samfylkingar. Allt frá því Glitnir brotlenti í Seðlabankanum í lok september var tilfinningin lengi sú að Sjálfstæðisflokkurinn réði för í öllum helstu viðbrögðum.

Samfylkingarráðherrar voru ekki með í þeirri bílferð. Meira jafnvægi virtist nást eftir að Inigibjörg Sólrún sneri heim úr veikindaleyfi. Myndugleiki hennar og mælska var vel þegin eftir langar vikur af moðmælum og misvísandi skilaboðum. Á blaðamannafundum stjórnarpars gaf að líta tvo leiðtoga; þann sem kann að tala við þjóð sína og hinn sem kann það ekki.
En það verður að segjast eins og er að vikurnar á undan hafði Samfylkingin verið jafn veik og stýra hennar. Án formanns síns var hún sem höfuðlaus her. Það var líkt og Sjálfstæðisflokkurinn sæti einn í stjórn.

Og þrátt fyrir endurkomu formannsins, sem létti nokkuð af brjóstum samfylkingarmanna og kvenna, er þessi tilfinning því miður ekki alveg horfin, um leið og hún er blönduð áhyggjum af heilsu Ingibjargar Sólrúnar.

Hvað sem því líður virðist mörgum formaðurinn ekki alveg með á þeim nótum sem nú eru leiknar í íslensku samfélagi. Ekki síst þegar hún þvertekur fyrir mannabreytingar í ríkisstjórn. Stundum virðist manni meginmarkmið Samfylkingar með stjórnarsetunni sé það eitt að sýna þá ábyrgð að slíta því ekki á örlagastundu.

En það er hægt að sýna ábyrgð með öðrum hætti.




Nýjan ráđherra bankamála

Samfylkingar er ráðuneyti viðskipta og bankamála. Undir það heyrir Fjármálaeftirlitið, það eldvarnareftirlit sem brást svo herfilega að eftir stendur land í ljósum logum. Það er gersamlega óverjandi að þeir sem því stjórna sitji áfram. Og það er jafn óverjandi að ráðherrann sem fyrir því fór sitji áfram. Þegar allir bankar eru hrundir er augljóst að bankamálaráðherra er ekki lengur sætt. Þau rök að hann hafi ekki vitað um aðsteðjandi hættur, að Fjármálaeftirlitið hafi ekki sagt honum frá þeim, halda ekki. Ráðherra getur ekki skýlt sér á bakvið undirstofnun sína. Hann er og verður YFIR henni en ekki á BAKVIÐ hana.

Samfylkingunni er skylt að sýna gott fordæmi og stokka upp Fjármálaeftirlitið og skipa nýjan mann eða konu í ráðuneyti bankamála. Enginn á lengur von á því að sjálfstæðismenn segi sjálfviljugir af sér en þegar Samfylkingin þvertekur fyrir það, sitjandi í ríkisstjórn sem farið hefur með okkur í gegnum heilt þjóðargjaldþrot, er fokið í flest skjól. Við sem héldum að við værum að kjósa „nútímalegan jafnaðarmannaflokk", flokk sem væri eitthvað aðeins skárri en gömlu helspilltu helmingaskiptaflokkarnir. Við héldum að við værum að kjósa flokk lýðræðis, samræðustjórnmála og siðbótar í stjórnmálum.

Á Norðurlöndum hafa kollegar jafnaðarmanna sagt af sér af ýmsum tilefnum svo frægt er. Ráðherra jafnréttismála í Noregi varð uppvís að því að skora á vinkonu sína að sækja um stöðu sem hann átti að úthluta. Mona Sahlin varð uppvís að því að kaupa bleyjur og toblerone á kreditkort ríkisins. Hér á landi þyrfti ráðherra sjálfsagt að kaupa bleyjur og toblerone handa öllum kjósendum sínum á kostnað ríkisins áður en honum dytti í hug að segja af sér.




Fjármálaráđherra verđur ađ víkja

Þegar Samfylkingin er búin að skipa nýja manneskju í bankamálaráðuneytið og reka yfirstjórn FME er hún komin með „móralskt umboð" til að þrýsta enn og aftur á breytingar í yfirstjórn Seðlabanka og fjármálaráðuneytis. Á báðum stöðum sitja menn í umboði þjóðarinnar sem eru rúnir öllu trausti. Hennar jafnt sem umheimsins.

Ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins varð uppvís að því að selja bréf í Landsbankanum nokkrum vikum fyrir hrun, stuttu eftir að hann sat fund bankamálaráðherrans okkar og fjármálaráðherrans breska, um málefni þessa sama banka. Fjármálaráðherra verður að lúta sömu örlögum og bankamálaráðherra, honum er ekki sætt eftir að fjármálakerfið, peningamálastefnan, gjaldeyrisviðskiptin, krónan, bankarnir… allt er hrunið.

Um Seðlabankann þarf svo ekki að fara mörgum orðum. Raðmistök stjóra hans eru nú orðið tíunduð í erlendum miðlum og jafnvel virtustu stórblöð Evrópu eru farin að uppnefna hann „König David" svo aðeins er tímaspursmál hvenær nafn hans öðlast endemisfrægð á heimsvísu. Og á meðan sá maður situr enn með sín víðtæku baktjaldavöld mun traust og heiður Íslands njóta sömu frægðar.

Nú síðast undirstrikaði Seðlabankastjóri eigið vanhæfi með sínum sérlundaða hætti þegar honum var ætlað að tala við þjóð sína undir yfirskriftinni „Fjármálakreppan - Er lausn í sjónmáli?" en eyddi klukkutíma sínum í ræðustól í að tala eingöngu um sjálfan sig og aðeins í fortíð. Peningamál þjóðarinnar eru ein rjúkandi rúst en yfirmaður þeirra „lætur allt snúast um sjálfan sig," svo vitnað sé í hans næstbesta vin. Og auðvitað var tilgangurinn sá að frýja sig ábyrgð og benda á alla aðra. Stórmannlegt.

Að auki las svo seðlastjórinn yfir hausamótunum á ríkisstjórn með alvarlegum ásökunum um dug- og ráðaleysi. Hvers konar stjórn er það sem situr undir slíkum ávirðingum frá manni sem á að heita embættismaður hennar? Hve lengi enn þurfum við að vakna við slíkar ræður? Hve lengi enn ætlar hin undirgefna ríkisstjórn að leyfa manninum að „persónugera" vanda heillar þjóðar í sjálfum sér?




Ţolinmćđi á ţrotum

Á meðan Samfylkingin situr í ríkisstjórn sem býður okkur upp á þennan farsa getur hún ekki búist við stuðningi okkar mikið lengur.

Ríkisstjórn sem ekki getur rekið þá sem reka þarf verður á endanum rekin sjálf. Ef ekki næsta laugardag, þá þarnæsta laugardag. Og ef ekki þá, þá þann þar á eftir. Hún verður rekin á hverjum laugardegi fram að kosningum. Því loforð um bráðlegar kosningar er eina loforðið sem þjóðin getur tekið af þessari ríkisstjórn.

Þolinmæði okkar er ekki endalaus en af réttlætiskenndinni eigum við meira en nóg.

Höfundur er rithöfundur.



Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Ađsendar greinar

Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kćru borgarfulltrúar Besta flokksins. Ţiđ buđuđ ykkur fram undir ţví yfirskyni ađ gera Rey...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíđ

Öfugt viđ vćntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málţing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiđifrumvörpin eru andstćđ ţjóđarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem ţađ er, ţá er ţađ engu ađ síđur stađreynd, ađ verđi frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sćstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvćmdastjóra markađs- og viđskiptaţróunarsviđs Landsvirk...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandiđ í tannheilsumálum ţjóđarinnar veriđ til umrćđu á opinber...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Ţó nokkur umfjöllun hefur átt sér stađ í fjölmiđlum og í frćđasamfélaginu eftir ađ Magnús ...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Ađ varđveita sögu allra

Á síđustu áratugum hafa orđiđ miklar breytingar á íslensku ţjóđfélagi og ţađ hefur orđiđ á...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstađan bara ađ halda kjafti og vera sćt?

Sigríđur Ingibjörg Ingadóttir skrifađi grein á dögunum ţar sem hún kennir stjórnarandstöđu...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Viđ sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var fariđ...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en ţennan dag áriđ 2006 var mannrétti...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til ađ tala saman

Síđustu misseri hef ég lesiđ margar greinar og hlustađ á ljósvakamiđla og játa ađ mig setu...  

Meira
Ađsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiđum stjórnlagaráđs viđ gerđ tillögu um nýja stjórnarskrá var ađ afnema "lepp...  

Meira
Ađsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuđningsgrein: Lýđrćđi er alltaf svariđ!

Ţá er ţađ komiđ á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýđveldisins, er byrjađur...  

Meira
Ađsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég ţví fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei ađ...  

Meira
Ađsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berđu í borđiđ!

Ólína Ţorvarđardóttir hefur veriđ einn öflugasti talsmađur ţingsins fyrir breyttu fiskveiđ...  

Meira
Ađsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrćnum međferđum

Sif Sigmarsdóttir hallmćlir „óhefđbundnum lćkningum” eđa heildrćnum međferđum ...  

Meira
Ađsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt ađ“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda veriđ jafn margir og nú ţegar kemur ađ fjarskiptatengingum...  

Meira
Ađsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niđurstöđu?

Áriđ er 2012, rúmum ţremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Ađsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerđar og veiđigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grćnna lofađi ţví í samstarfsyfirlýsingu sinni áriđ 20...  

Meira
Ađsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Má bjóđa ţér á stefnumót?

Sesselja Thorberg og Magnús Sćvar Magnússon giftu sig fyrir sjö árum. Ţau fara á stefnumót...  

Meira
Ađsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verđvernd er rökleysa

Verđvernd verslana er fullkomin rökleysa. Ţeir sem auglýsa verđvernd bjóđa nefnilega ekki ...  

Meira
Ađsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Viđ látum verkin tala

Ţađ er fagnađarefni á ţriggja ára afmćli ríkisstjórnarinnar ađ meirihluti Alţingis skuli s...  

Meira
Ađsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágćti lćknir, ţiggur ţú mútur?

Mánudagskvöldiđ 30. apríl fjallađi fréttaskýringaţátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Ađsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiđara

Í leiđara Fréttablađsins í gćr eru settar fram stađhćfingar tengdar gjaldeyrisútbođum Seđl...  

Meira
Ađsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Ţađ er stundum talađ um ađ í Hafnarfirđi séu fleiri álfar en annars stađar á landinu. Ekki...  

Meira
Ađsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafiđ: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafiđ er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landiđ eru ţeir sjóđir sem ...  

Meira
Ađsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furđa ađ umrćđan um forsetaembćttiđ sé á villigötum ţegar ritstjóri stćrsta prentm...  

Meira
Ađsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ćvi minnar hvarf pabbi hćgt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tćtti h...  

Meira
Ađsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnađur hagsmunaađila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft ađ nćsta kynslóđ sé étinn út á gaddinn?

Ţađ er kannski tímabćrt ađ rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síđ...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsrćktarstöđvar Boot Camp sem ćtlunin er ađ taki til starfa í Elliđaárda...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauđyflin í Samfylkingunni

,,Ţú ert bara foringjahollt dauđyfli sem styđur leiđtoga ţinn í ţeirri helreiđ sem vinstri...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líđur ógeđslega illa en fć ekki tíma hjá geđlćkni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geđveikur ţegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lítill ávinningur af skimun fyrir ristilkrabbameini

Árangur af skimun fyrir ristilkrabbameini er lítill séđ frá lýđheilsusjónarmiđi. Nýjar ran...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Er ekki nóg atvinnuleysi?

Ef Ögmundur Jónasson innanríkisráđherra fćr ađ ráđa, ţá fer störfum viđ íslenska bjórframl...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Best í heimi

Ţegar ég reyndi ađ sigrast á nánast óyfirstíganlegu ţvottafjalli heima hjá mér fór ég ađ h...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brostnar vonir

Pyngjur landsmanna léttast og fćrri krónur eru eftir um hver mánađamót. Norrćn velferđarst...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tveir og hálfur milljarđur í sérstakar vaxtaniđurgreiđslur – ţađ munar um minna

Tugţúsundir húseigenda um allt land fengu fjármuni frá ríkissjóđi inn á bankareikninga sín...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Ţungur kross brotaţola

Ung stúlka tilkynnir nauđgun í miđborg Reykjavíkur. Í umrćđum um máliđ á netinu lćtur ungu...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 12:04

Vćndi og mansal er ekki ţađ sama

Í daglegri umrćđu hefur mansali og vćndi oft veriđ blandađ svo saman ađ fćstir kunna skil ...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 12:00

Sýndarveruleikinn

Hvađ skiptir máli í lífinu? Nú, ég held auđvitađ ađ ţetta sé sjálf lífsgátan. Ég myndi nef...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Ţrenns konar veiđistjórn

Dómur Landsdóms frá 23. apríl 2012 setur ný viđmiđ og mörk í ţjóđlífinu. Ţar virđist horfi...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Af hverju látum viđ ekki útgerđarmennina sjálfa ákveđa hćfilegt veiđigjald?

Útvegsmannafélagiđ beinir ţví í auglýsingum til sveitarstjórna ađ leggjast gegn kvótafrumv...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Viđ borgum ekki

Ég veit ekki nema gleymdur sé nú sífelldur áróđur Suđurnesjamanna um ađ ţáverandi umhverfi...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lyktarmengun kallar á tafarlausar ađgerđir

Nýveriđ var haldinn íbúafundur í Mosfellsbć um lyktarmengun frá urđunarstađ höfuđborgarsvć...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Um smálán

Allt frá ţví ađ smálánafyrirtćki hófu innreiđ sína á íslenskan lánamarkađ höfum viđ leitađ...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Gullgćsin

Eitt mesta hitamáliđ ţessa dagana er nýjasta kvótafrumvarp ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurđard...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tölvuleikir breyta ţér ekki í skrímsli

Ég rakst á forsíđufrétt á Mbl.is međ fyrirsögninni "Spilađi tölvuleik í heilt ár“....  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mannleg meindýr

Menn eru misjafnir og samskipti ţeirra međ ýmsu móti. Sem betur fer er meirihlutinn gott f...  

Meira
Ađsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Bann viđ mismunun

Jafnrétti er hornsteinn mannréttinda, sá grunnur sem viđhorf okkar og samfélag byggja á. A...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Ađsendar greinar / / Ábyrgđ Samfylkingarinnar