Vísir, 26. nóv. 2008 14:56

Unglingar telja eđlilegt ađ fá greitt međ hamborgurum fyrir kynlíf

mynd
Ein af hverjum tíu stúlkum í Danmörku telur í lagi að taka við greiðslu eða gjöfum eins og hamborgara fyrir munnmök. Nær 37 prósent danskra stráka telja slík skipti vera í lagi. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var af þjónustustofnuninni Servicestyrelsen.

Fjallað er um málið á vefsíðunni norden.org. Þar segir að rætt hafi verið um unglinga og kynlíf út frá kynjasjónarmiði á sérfræðinganámstefnu sem haldin var á vegum Svía sem nú gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.

„Það sem gerst hefur er að sala á kynlífi er ekki lengur feimnismál. Vændi er orðið eðlilegt fyrir norræna unglinga", segir Kira Appel, sérfræðingur í danska velferðar- og jafnréttisráðuneytinu og vísar þar til skýrslu Norrænu stofnunar um kynja- og kvennarannsóknir (NIKK).

Hún ítrekaði að norrænir unglingar telji klám vera fyrir alla sem eru orðnir kynþroska. Klám sé hluti af hversdagslífi unglinga á Norðurlöndum með aðgengi þeirra að Netinu, myndböndum og því sem ber fyrir augu þeirra á götum úti. Þetta hefur allt áhrif á skoðanir unglinganna á kynlífi, kaupum á kynlífi og neyslu á klámi.

Í dönsku könnuninni kemur fram mikill munur á afstöðu stráka og stúlkna. 53 prósent strákanna og 19 prósent stúlkna telur það vera í lagi að kaupa kynlífsþjónustu. Jafnframt segja 22 prósent stráka að þeir gætu vel hugsað sér að kaupa kynlífsþjónustu, en 97 prósent stúlkna myndi aldrei kaupa slíka þjónustu.

Appel segir einnig að danska könnunin sýni fram á að mikilvægt sé að hækka aldurstakmark þeirra sem mega kaupa kynlífsþjónustu, vegna þess að þeim mun yngri sem kaupendur kynlífsþjónustu séu fyrsta sinni, þeim mun meiri áhætta sé á því að þeir haldi áfram að kaupa hana.

Appel segir kannanir sem gerðar hafa verið á Englandi sýna fram á að margar unglingsstúlkur telji kynlíf og klám vera aðgangsmiða í skemmtanageirann og því telji margar þeirra þetta vera leið á framabrautinni. Hún telur sig hafa rökstuddan grun um að afstaða norrænna unglinga sé að breytast í sömu átt.

Á námstefnunni kom einnig fram að unglingar á Norðurlöndum nota sífellt sjaldnar smokka og því smitast stöðugt fleiri af kynsjúkdómnum klamydíu.






Fleiri fréttir

Erlent 19. mar. 2010 03:13

Ţrír í fangelsi fyrir skiltisstuld

Ţrír Pólverjar, sem tóku ţátt í ađ rćna skiltinu af hliđi útrýmingarbúđa nasista í Auschwi...  

Meira

Erlent 19. mar. 2010 03:13

Rekja sýklaslóđ í stađ fingrafara

Innan tíđar gćtu glćpamenn átt erfiđara međ ađ fela slóđ sína, ţví ţótt fingraför séu ţurr...  

Meira

Erlent 19. mar. 2010 03:13

Međ lík föđurins í frystikistu

Lík sjötugs fjölskylduföđur í Kína hefur veriđ geymt í meira en ár í frystikistu á heimili...  

Meira

Erlent 19. mar. 2010 03:13

Lokatilraun gerđ um helgina

Demókratar á Bandaríkjaţingi ćtla ađ gera lokatilraun til ađ koma frumvarpi sínu um umbćtu...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 23:30

Sahil kominn heim og getur fariđ ađ leika sér međ Latabćjarleikföngin

Sahil Saeed er kominn heim til Bretlands eftir ađ hafa veriđ rćnt í Pakistan í byrjun mars...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 23:00

Bernie Maddoff var lúbarinn í fangelsinu

Heimsins frćgasti svikahrappur seinnig tíma, Bernie Maddoff, sem afplánar 150 ára fangelsi...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 21:00

Jihad Jane lýsti yfir sakleysi sínu

Colleen Rose lýsti yfir sakleysi sínu í dag fyrir dómstólum í Fíladelfíu í Bandaríkjunum e...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 22:00

Sjónvarpsstöđ greiddi lögmannskostnađ barnamorđingja

Bandaríska sjónvarpsstöđin ABC hefur veriđ gagnrýnd fyrir ađ greiđa Casey Anthony tvöhundr...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 15:16

Ţetta má ekki heldur

Vegna mótmćla Palestínumanna var fjölmennt lögregluliđ á stađnum ţegar Hurva bćnahús Gyđin...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 16:37

25000 fórust í Dresden

Eftir fimm ára rannsóknir hefur sérskipuđ nefnd í Ţýskalandi komist ađ ţeirri niđurstöđu a...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 14:37

Ólíkleg morđkvendi

Ţađ hefur vakiđ nokkra undrun ađ međal fólks sem hefur veriđ handtekiđ fyrir ađ ćtla ađ my...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 14:02

Darth Vader yfir Malasíu

Tuttugu og tveir loftbelgjaflugmenn frá tíu löndum tóku ţátt í árlegri flughátíđ yfir Putr...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 13:53

Kúba sama sćluríkiđ

Hvítklćddu konurnar á Kúbu fóru í mótmćlagöngu í gćr sem endađi eins og venjulega međ ţví ...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 11:35

Merkel ýjar ađ brottrekstri Grikklands

Evrópusambandiđ heldur áfram ađ vandrćđast međ Grikkland. Ţjóđarleiđtogar ţess slá í og úr...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 10:28

Ađ drepa fyrir frćgđina

Frönsk félagsfrćđitilraun hefur vakiđ mikla athygli en í tilrauninni var ţáttakendum talin...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir


Nýtt á Vísi

Ert ţú ánćgđ(ur) međ útspil ríkisstjórnarinnar til lausnar skuldavanda heimilanna?


Kjörkassinn

Nćrmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni

-- catnafn="Erlent"--