Vísir, 08. jan. 2009 15:27

Tjóniđ vegna Kryddsíldarmótmćla rúmar ţrjár milljónir

mynd
Ari Edwald, forstjóri 365.

Kostnaður vegna skemmda sem unnar voru á tækjabúnaði þegar mótmælendur rufu útsendingu á Kryddsíldinni á gamlársdag hefur verið tekinn saman auk þess fjárhagstjóns sem Stöð 2 varð fyrir þegar útsending var rofin. Ari Edwald, forstjóri 365, segir að tjónið nemi alls um 3,3 milljónum króna. Áfallið sem starfsmenn sem lentu í átökunum hafi orðið fyrir sé hinsvegar mun alvarlegra mál. Starfsfólkið ræddi málið á fundi í fyrrakvöld með sálfræðingi.

„Við höfum lagt mat á kostnað okkar hjá 365 og hjá Saga film, sem er verktaki við þessa framleiðslu. Beinu útgjöldin við endurnýjun á þessum kapli sem skemmdist eru um tvær milljónir króna. Þetta er mjög dýr ljósleiðarakapall sem getur flutt hljóð og mynd úr mörgum myndavélum og ég er ekki viss um að menn átti sig á því um hvað er verið að ræða." Ari segir ennfremur að dagskrárkostnaður 365 sem ónýttist vegna aðgerðanna hafi verið um 1,3 milljónir króna.

„En ég hef nú minnstar áhyggjur af krónum og aurum í þessu sambandi," segir Ari. „Ég sat nú fund með okkar starfsfólki sem lenti í þessu hjá 365 og Saga film, um tuttugu manns," segir Ari og bætir við að fundurinn hafi verið haldinn á Hótel Borg í fyrrakvöld og þar hafi fólki gefist kostur á að tala sig burt frá þessari óskemmtilegu reynslu með sálfræðingi. „Það er ljóst að áfallið sem fólkið sem lenti í þessu varð fyrir er mun meira en ég hafði gert mér grein fyrir. Margir hafa verið að missa svefn og eru óttaslegnir," segir Ari og bætir við að lítið þurfi til þess að fólk upplifi átökin á nýjan leik.

„Það þarf ekki annað en lykt af blysi eða einhve dólgsleg ummæli á bloggi til þess að koma þessum hughrifum af stað. Þessar lýsingar á fundinum minntu mig helst á lýsingar fórnarlamba annara ofbeldisverka á sinni upplifun," segir Ari sem segist ekki viss um að fólk sem mæli aðgerðunum bót geri sér grein fyrir því hvernig fórnarlömbin upplifa svona árásir. „Það finnst mér langalvarlegasti hluturinn í þessu máli en ekki þessar krónur," segir hann.

Ari segir að málið fari nú sína leið í kerfinu. „Við komum öllum upplýsingum um það tjón sem við urðum fyrir til lögreglu og gerum ráð fyrir því að þetta verði rannsakað eins og önnur slík mál eins og hægt er. Við sjáum svo bara til með það hvað kemur út úr því," segir Ari Edwald. forstjóri 365.







Fleiri fréttir

Innlent 09. feb. 2010 16:25

Í gćsluvarđhald grunađur um fíkniefnainnflutning

Karl um fertugt hefur veriđ úrskurđađur í gćsluvarđhald til 19. febrúar ađ kröfu lögreglun...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 16:29

Ţriggja ára fangelsi fyrir nauđgun og sifjaspell

Hérađsdómur dćmdi í dag karlmann í ţriggja ára fangelsi fyrir nauđgun og sifjaspell auk fj...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 16:00

Hvar er úriđ mitt?

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu leitar nú eigenda nokkurra hluta sem sýnt ţykir ađ séu stol...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 16:53

Meira en 270 milljónir renna frá Actavis til Haítí

Actavis hefur ákveđiđ ađ styrkja hjálparstarfiđ í kjölfar jarđskjálftans í Haítí um meira ...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 15:55

Ljós á mótum Njarđargötu og Hringbrautar endurbćtt

Í fyrramáliđ, miđvikudaginn 10. febrúar, verđur stýribúnađur umferđarljósa á gatnamótum Nj...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 15:24

Sjúkrabílstjóri sektađur fyrir brot á umferđarlögum

Hérađsdómur sektađi í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferđarlögum ţegar hann ók í fo...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 14:37

Tveggja ára fangelsi fyrir íkveikju á Leifsgötu

Karlmađur var í dag dćmdur í tveggja ára óskilorđisbundiđ fangelsi fyrir ađ leggja eld ađ ...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 13:09

Eyrarrósin afhent á Bessastöđum í nćstu viku

Eyrarrósin, sérstök viđurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggđinni, ...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 12:30

Hafnar ásökunum um okurlánastarfsemi

Árni Páll Árnason gagnrýndi harđlega starfsemi fyrirtćkja sem veita smálán gegnum netiđ í ...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 12:26

Ógn viđ samfélagiđ

Samstarf vélhjólaklúbbsins MC Iceland, áđur Fáfnis og erlendra deilda Hells Angels glćpasa...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 12:25

Sumarlokanir leikskóla lengja biđlista

Fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráđi Reykjavíkurborgar furđar sig á ađ meirihlutinn hyggi...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 12:01

Andmćlabréfin hafa veriđ send út

Rannsóknarnefnd Alţingis hefur sent út andmćlabréf til ţeirra einstaklinga í stjórnkerfinu...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 12:00

Telur Svandísi brjóta gegn stjórnsýslulögum

Halldór Halldórsson, formađur Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur ađ Svandís Svavarsdó...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 11:58

Selja fasteignir án réttinda

Grétar Jónasson, framkvćmdastjóri Félags fasteignasala, segir allt of algengt ađ sölumenn ...  

Meira

Innlent 09. feb. 2010 11:17

Enn fundađ um Icesave

Nú stendur yfir fundur stjórnar og stjórnarandstöđu um Icesave, í fjármálaráđuneytinu. Rćt...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsćlast

Hćtta í Gettu betur verđi ekki haldin árshátíđ

Hćtta í Gettu betur verđi ekki haldin árshátíđ

Nemendur viđ Fjölbrautarskólann í Breiđholti eru ósáttir viđ ákvörđun skólameist...


Nýtt á Vísi


Kjörkassinn

Fréttaskýringar Nćrmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni