Innlent

Ráðherrum fækkar

Líklegt er að ráðherraembætti muni skiptast jafnt á milli Samfylkingar og Vinstri grænna í nýrri ríkisstjórn og að ráðherrum verði fækkað úr tólf í átta.

Engar formlegar viðræður á milli oddvita Samfylkingar og Vinstri grænna hafa farið fram og því liggur skipting ráðherraembætta - verði af ríkisstjórnarsamstarfi flokkanna - ekki enn fyrir. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa Vinstri græn hins vegar lagt fram hugmyndir um að ráðherrum verði fækkað úr því að vera 12, sem þeir eru nú, í 7 eða 8. Einnig er lagt til að skipting ráðherraembætta verði jöfn milli flokkanna. Í stórum dráttum héldi Samfylkingin þeim ráðuneytum sem hún hefur veitt forstöðu í fráfarandi ríkisstjórn, en einhverjar breytingar yrðu þó gerðar. Skipting ráðuneyta á milli flokka er jafnan ákveðin á síðustu stundu og liggur því ekki fyrir, en samkvæmt heimildum fréttastofu gæti listinn litið einhvern veginn svona út.

Jóhanna Sigurðardóttir yrði forsætisráðherra, en um það mun vera sátt.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yrði áfram formlega utanríkisráðherra, en fara í leyfi og myndi Össur Skarphéðinsson taka að sér verkefni ráðuneytisins í hennar fjarveru. Össur myndi jafnframt verða nokkurs konar atvinnumálaráðherra og undir hann myndu heyra iðnaðar-, viðskipta-, landbúnaðar-, og sjávarútvegsráðuneytin. Þó er nokkuð óljóst með viðskiptaráðuneytið, en hugmyndir eru um að það verði gert öflugra en það er nú. Í embætti dómsmálaráðherra myndi veljast Lúðvík Bergvinsson.

Vinstri grænir fengju fjármálaráðuneytið og myndi Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, verða fjármálaráðherra, Ögmundur Jónasson er talinn líklegur til að verða ráðherra í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti, Katrín Jakobsdóttir er sögð koma til greina sem menntamálráðherra og Kolbrún Halldórsdóttir myndi fara í umhverfisráðneytið.

Samkvæmt heimildum fréttstofu vilja Vinstri grænir að kosningum verði flýtt eins og hægt er og stinga upp á því að efnt verði til þeirra 4. eða 18. apríl, enda eru liðsmenn flokksins á því að engin ástæða sé til að gefa Sjálfstæðisflokknum of langan tíma til að endurnýja forystu sína.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×