Vísir, 25. maí. 2009 08:43

Playboy til sölu, Virgin hugsanlegur kaupandi

Playboy til sölu, Virgin hugsanlegur kaupandi

Fregnir berast nú af því að hinn 83 ára gamli gleðigosi Hugh Hefner ætli að selja Playboy-veldi sitt. Virgin er nefnt sem hugsanlegur kaupandi. Söluverðið er um 200 milljónir punda eða rúmlega 40 milljarðar kr.

Samkvæmt frétt um málið í Daily Mail hefur Playboy tímaritið stöðugt tapað áskrifendum og kaupendum á síðustu árum eftir að klám varð algengara á netinu. Þetta hefur leitt til þess að síðustu fimm ársfjórðungar hafa skilað félaginu tapi. Nú síðast á fyrsta ársfjórðungi ársins nam tapið um 1,8 milljarði kr.

Playboy hefur mætt þessu með niðurskurði og hagræðingaraðgerðum. Þannig er búið að reka um 25% af starfsmönnum tímaritsins á síðustu mánuðum.

Tveir banarískir fjárfestingarsjóðir hafa, að sögn Daily Mail, þegar hafnað tilboði frá Playboy um kaupin en Virgin Media mun vera að skoða málið.

Söluverðið mun eiga að duga fyrir því að Hefner geti haldið áfram að lifa í þeim lúxus sem hann er orðinn vanur. Dóttir hans, Christie, lét af störfum sem forstjóri Playboy í janúar s.l. og hefur nú alfarið hætt afskiptum af félaginu.




Fleiri fréttir

Viðskipti erlent 02. sep. 2010 11:38

Hagkerfi í ESB að ná sér

Nýjar hagtölur af Evrusvæðinu og aðildarríkjum Evrópusambandsins eru til vitnis um að hor...  

Meira

Viðskipti erlent 31. ágú. 2010 13:48

Gullverð mun rjúka upp í hæstu hæðir

Búist er við því að verð á gulli muni ná methæðum á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að ve...  

Meira

Viðskipti erlent 30. ágú. 2010 11:24

Uppsagnir og verkfall hjá Danmarks Radio

Fjöldi starfsmanna á Danmarks Radio, sem er danska ríkisútvarpið, hefur ákveðið að leggja ...  

Meira

Viðskipti erlent 30. ágú. 2010 11:03

Kate Moss fatalínan lögð niður

Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur slitið samstarfi við bresku Top Shop verslanirnar. Regluleg...  

Meira

Viðskipti erlent 30. ágú. 2010 10:47

HQ Bank tekinn til gjaldþrotaskipta í Svíþjóð

Sænski bankinn HQ Bank, sem árið 2008 keypti sænska hluta Glitnis, hefur verið tekinn til ...  

Meira

Viðskipti erlent 30. ágú. 2010 07:00

Dönskum bönkum fækkar úr 159 í 122

Fjármálakreppan hefur heldur betur sett mark sitt á bankastarfsemi í Danmörku. Frá árinu 2...  

Meira

Viðskipti erlent 30. ágú. 2010 04:45

Sparnaður sagður bitna á fátækum

Harkalegur sparnaður á fjárlögum í Bretlandi bitnar illa á fátækum, samkvæmt úttekt IFS, ó...  

Meira

Viðskipti erlent 29. ágú. 2010 08:00

Lifandi hænur rokseljast

Verð á lifandi hænum hefur rokið upp í Bretlandi undanfarin ár. Ástæðan er aukin spurn hei...  

Meira

Viðskipti erlent 28. ágú. 2010 09:00

Íslandsvinur stefnir Facebook og fleiri Internetrisum

Moldríki Íslandsvinurinn Paul Allen, sem er annar stofnenda Microsoft, hefur stefnt 11 Int...  

Meira

Viðskipti

Vinsælast


Nýtt á Vísi

Markaðurinn

Markaðurinn

Viðskiptaorðabók

Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni