Vísir, 29. maí. 2009 14:37

FME sektar Glitni um 4 milljónir vegna Birnuklúðurs

FME sektar Glitni um 4 milljónir vegna Birnuklúðurs

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að sekta Glitni banka hf. um 4 milljónir kr. vegna klúðursins í kringum hlutabréfakaup Birnu Einarsdóttur, nú bankastjóra Íslandsbanka, í Glitni árið 2007. Sektin er vegna brota á lögum um verðbréfaviðskipti.

Í umfjöllun um málið á vefsíðu FME segir að þann 29. mars 2007 tilkynnti Glitnir Kauphöll Íslands um hlutabréfakaup Birnu Einarsdóttur í bankanum. Tilkynning var einnig send í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti. Um var að ræða kaup á 7.000.000 hlutum á genginu 26,4, samtals 184.8 milljónir kr.

Bankinn hugðist veita lán fyrir kaupunum, gegn veði í bréfunum. Þegar Birna hugðist nýta atkvæðisrétt sinn á aðalfundi 20. febrúar 2008 kom í ljós að hún var ekki eigandi bréfanna. Fyrrnefnt lán var ekki veitt vegna villu í lánasamningi. Þar sem lánið var ekki veitt gátu viðskipti og eignartilfærsla ekki átt sér stað.

Rannsókn Fjármálaeftirlitsins haustið 2008 leiddi í ljós að umrædd viðskipti gengu aldrei í gegn af ástæðum óviðkomandi Birnu og að umræddur kaupsamningur væri niður fallinn.

Fjármálaeftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Glitnir hefði brotið gegn lögum um verðbréfaviðskipti. Þar sem leiðrétt tilkynning var ekki send, þegar mátti vera ljóst að kaup Birnu Einarsdóttur á hlutum í Glitni hefðu ekki átt sér stað.

Samkvæmt lögunum ber útgefanda að tilkynna samdægurs til Fjármálaeftirlitsins þegar fruminnherji á viðskipti með fjármálagerninga útgefandans. Ber útgefanda þegar í stað að senda upplýsingar um viðskipti stjórnenda með hluti í útgefandanum, og aðra fjármálagerninga tengda þeim, til opinberrar birtingar.

Með vísan til alvarleika brots, tímalengdar, þeirrar fjárhæðar sem um var að ræða, stjórnvaldssekta í sambærilegum málum var það mat Fjármálaeftirlitsins að hæfileg sekt væri kr. 4.000.000.





Fleiri fréttir

Viðskipti innlent 09. sep. 2010 06:57

Ísland fellur um sex sæti í samkeppnisvísitölu

Ísland er nú í 31. sæti í samkeppnisvísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum)...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 18:30

Rannsóknarstofa í hreyfivísindum samdi við Össur

Rannsóknastofa í hreyfivísindum við Námsbraut í sjúkraþjálfun og Össur hf. hafa undirritað...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 18:23

Mjög mikil velta á skuldabréfamarkaði

Mjög mikil velta var á skuldabréfamarkaði í dag eða 28,8 milljarðar sem er langmesta velta...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 17:23

Kröfuhafar taka yfir Existu

Kröfuhafar Exista ehf. samþykktu með 97,35% atkvæða frumvarp til nauðasamnings fyrir Exist...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 15:36

Ástarbréfin sögð málamyndagjörningur

Slitastjórn Sparisjóðabanka Íslands segir að yfirmenn Seðlabankans hafi leynt raunverulegr...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 14:15

Engin ríkisaðstoð - ákvörðunin var viðskiptalegs eðlis

Fjármálaráðuneytið segir í tilkynningu að engin fyrirmæli um kaup á eignunum úr sjóðunum v...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 13:35

ESA rannsakar ríkisaðstoð vegna peningamarkaðssjóðanna

Eftirlitsstofnun EFTA hóf í dag rannsókn á því hvort ríkisábyrgð á Peningamarkaðssjóðunum ...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 13:17

Segir ríkisstjórn fæla erlenda fjárfesta frá með seinagangi

Seinagangur um nauðsynlegar breytingar á reglugerðum um VSK og óskýr svör ráðamanna vegna ...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 10:57

Greining: Ekkert að marka tölur Hagstofunnar um hagvöxt

Greining Íslandsbanka segir að ekkert sé að marka tölur Hagstofunnar um hagvöxt og breytin...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 10:20

Ólafur Ragnar: Bankarnir ekki á ábyrgð íslenska ríkisins

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson segir að íslensku bankarnir sem hrundu haustið 2008...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 09:11

Laun hækkuðu um 1,2% milli ársfjórðunga

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 1,2% hærri á öðrum ársfjórðungi 20...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 08:30

Skattaskýrsla fæðist

„Við erum að leggja lokahönd á áfangaskýrsluna. Hún verður afhent ráðherra í vikunni,“ seg...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 08:00

Vill landið úr höndum hagsmunahópa

Stjórnvöld eiga að nýta kreppuna og byggja upp nýjan iðnað. Draga á úr stuðningi við landb...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 07:48

Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um 24 milljarða

Nokkuð gekk á gjaldeyrisforða Seðlabankans í ágústmánuði en þá rýrnaði hann um tæplega 24 ...  

Meira

Viðskipti innlent 08. sep. 2010 07:30

Vill framleiðsluna í hendur fólksins

„Von mín er að draga fram hugmyndir um það hvernig valddreifing í samfélaginu er háð stjór...  

Meira

Viðskipti


Nýtt á Vísi

Markaðurinn

Markaðurinn

Viðskiptaorðabók

Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni