- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Þriðja tilfelli inflúensu A (H1N1) greindist á Íslandi í gærkvöld. Þar er um að ræða eiginkonu karlmannsins sem greindist með veikina í fyrradag og sagt var frá í tilkynningu sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar í gærmorgun. Fullvíst er talið að hjónin hafi smitast í Bandaríkjunum. Þaðan komu þau til Íslands fyrir réttri viku, miðvikudaginn 3. júní. Þau veiktust bæði en ekki alvarlega.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeildar. Þá segir að sameiginlegt sé með öllum þremur inflúensutilfellunum, sem greinst hafa hérlendis, að viðkomandi komu hingað frá Bandaríkjunum.
Enn sem komið er hefur ekki greinst smit milli manna á Íslandi.
Búast má við að inflúensan breiðist út hér á landi á næstu vikum og mánuðum en þar sem sýkingin er ekki alvarlegri en hefðbundin árleg inflúensa er viðbúnaður hérlendis óbreyttur.
Mikilvægt er að fylgjast vel með útbreiðslu inflúensunnar hér á landi því öll vitneskja um sjúkdóminn er nauðsynleg þegar metið er til hvaða viðbragða skuli grípa í framtíðinni. Læknar eru því áfram hvattir til að senda sýni til greiningar frá sjúklingum sem taldir eru vera með inflúensu.
Áfram er unnið að samhæfingu viðbragðsaðila þar að lútandi, meðal annars með svæðisáætlunum sem ræddar eru þessa dagana um allt land á fundum á vegum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Slíkur fundur var til dæmis á dagskrá í Reykjavík núna fyrir hádegið í dag, miðvikudag.
Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók við lyklavöldum í heilbrigðisráðune...
Kristján Möller, fyrrverandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, segir að ákvörðun um að ...
„Þetta er gjörsamlega fráleitt. Þetta er ótrúlega ósmekklegur kveðjuhrekkur af hálfu Krist...
Síðasta embættisverk Kristján L. Möllers, sem var að veita flugmálastjóra heimild til að h...
Hnífurinn, sem fannst í Setberginu í Hafnarfirði og Vísir greindi frá í morgun, tengist ek...
Utanríkisráðherra hefur skipað verkefnisstjórn til að fara með stjórn Varnarmálastofnunar ...
Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, og Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók...
Heimasíða DV varð fyrir fólskulegri árás síðdegis í gær þegar tölvuþrjótar réðust á vefinn...
Mikill árangur hefur náðst á flestum sviðum samfélagsins. Það er árangur sem bjartsýnustu ...
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði við umræður á Alþingi í dag að loforð um lýðræ...
Ríkisstjórnin áformar enn að ráðast í skattahækkanir í haust, á þeim tíma sem ríki allt í ...
Skattbyrðin hjá fólki með tekjur undir 6 milljónir í árstekjur eða minna var lægri við ála...
Samninganefndir Íslendinga, Breta og Hollendinga hittust í Hollandi í dag til að ræða Ices...
Þau jákvæðu teikn sem eru á lofti í efnahagslífinu eru vegna ytri skilyrða og stefnumörkun...
Gylfi Magnússon, fráfarandi efnahags- og viðskiptaráðherra, gerir ráð fyrir að hann snúi a...
Fjölskylda í Setberginu í Hafnarfirði fann hníf í bakgarðinum sínum í gærkvöldi ...
Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?