Erlent

Grunaður barnaníðingur segist hafa fjarvistarsönnun

Madeleine McCann
Madeleine McCann
Barnaníðingurinn Raymond Hewlett talar í fyrsta skipti um rannsóknina á Madeleine McCann í breska blaðinu Sunday Mirror í dag. Hann segist hafa fjarvistarsönnun en vill ekki gefa hana upp. Raymond segist ekki hafa drepið Maddie litlu en hann berst við krabbamein og er kominn á garfarbakkann.

Raymond Hewlett er niðurbrotinn, brothættur og á aðeins nokkrar vikur ólifaðar. McCann hjónin óttast að þessi maður geti upplýst um leyndarmálið á bak við hvarf dóttur þeirra áður en hann fer í gröfina.

Hewlwett er dæmdur barnaníðingur sem nú berst við krabbamein og er í meðferð í Þýskalandi. Undanfarnar vikur hefur grunur beinst að honum í tengslum við hvarfið á Maddie litlu en hann bjó í bæ ekki langt frá hótelinu sem hún hvarf af.

„Það liggur í augum uppi hvers vegna þau hafa áhuga á mér," segir hinn 64 ára gamli Hewlett. „Þau mega hugsa það sem þau vilja. Ég drap ekki McCann stúlkuna. Það er sannleikurinn og það mun aldrei breytast."

Hewlett hefur verið í felum síðan nafn hans dróst inn í málið. Hann viðurkennir nú að hann var í Algarve á þeim tíma sem Madeleine var rænt. Honum svipar einnig mikið til mannsins sem hefur verið teiknaður upp og var að þvælast í kringum hótelið nóttina sem hún hvarf.

Fimm vikum eftir hvarfið fór hann frá Portúgal til Marokkó í tveggja mánaða „viðskiptaferð."

Í Marokkó hitti hann ferðamann sem hann kannaðist við og viðurkenndi að hann hefði orðið heltekinn af málinu. Hewlett viðurkenndi fyrir manninum að hann hefði margoft verið fyrir utan hótel McCann fjölskyldunnar í Praia da Luz, þar sem hann hefði lagt bíl sínum nálægt íbúðinni. Það sem meira er þá vill hann ekki gefa upp fjarvistarsönnunina nóttina sem hún hvarf.

„Ég er með fjarvistarsönnun, en afhverju ætti ég að deila henni?," segir hann í viðtalinu. „Það er manneskja sem getur sagt hvar ég var þennan dag, en afhverju ætti ég að blanda þeirri manneskju í málið? Ég hef ekki gert neitt rangt. Afhverju þarf ég að sanna það?"








Fleiri fréttir

Sjá meira


×