Telja fórnarlambið aldrei munu ná sér 18. júlí 2009 06:00 Hummer Bíllinn sem Jón Kristinn ók var eins og þessi, nema merktur Steak & Play í bak og fyrir.Fréttablaðið / vilhelm
Ungur maður, Jón Kristinn Ásgeirsson, hefur verið ákærður fyrir að valda öðrum manni ævarandi örkumlum með því að aka á hann á Hummer-bifreið í janúar. Jón Kristinn er jafnframt ákærður, ásamt öðrum, fyrir að kveikja í húsi við Kleppsveg í byrjun júní og koma manni sem þar var innandyra í bráða lífshættu. Það var um nótt, þriðju helgina í janúar, sem Jón Kristinn ók Hummer-jeppa Ásgeirs Þórs Davíðssonar, föður síns, niður Laugaveginn. Bíllinn var merktur Steak & Play, veitingastað í eigu Ásgeirs. Nokkrir voru með Jóni Kristni í bílnum. Á gatnamótunum við Vegamótastíg ók hann á 26 ára meistaranema í lögfræði og slasaði hann alvarlega. Jón Kristinn ók síðan af vettvangi, en lögreglan hafði hendur í hári hans skömmu síðar. Jón Kristinn var ölvaður, og hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins játað það. Þá er talið að hann hafi ekið jeppanum of greitt. Maðurinn sem ekið var á var í lífshættu um tíma. Hann dvelur nú á Grensásdeild Landspítalans og er verulega skaðaður til frambúðar, að sögn læknis á deildinni. Ekki er víst að hann komist nokkru sinni út í samfélagið á ný. Til er upptaka af slysinu úr verslun úrsmiðsins Franks Michelsens við Laugaveg, sem hefur verið notuð við rannsókn málsins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er Jón Kristinn ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás af gáleysi og ölvunarakstur. Jón Kristinn hefur nú setið í gæsluvarðhaldi í rúman mánuð vegna íkveikjunnar á Kleppsvegi. Í því máli eru þrír ákærðir, fyrir að skvetta bensíni á húsið og bera að því eld. Þar var maður á miðjum aldri hætt kominn, en komst út af eigin rammleik áður en húsið varð alelda. Húsið eyðilagðist. Í gæsluvarðhaldsúrskurðum yfir fólkinu kom fram að í bíl þeirra, sem var fyrir utan húsið við Kleppsveg, fannst listi yfir fíkniefnaskuldir. Fólkið verður ákært fyrir íkveikju, samvæmt annarri málsgrein lagaákvæðisins, sem gildir um þá sem kveikja í og sjá jafnframt fram á að „…mönnum mundi vera af því bersýnilegur lífsháski búinn eða eldsvoðinn mundi hafa í för með sér augljósa hættu á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra manna“. Lægsta refsing við slíku broti er tveggja ára fangelsi. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Sjá meira