Fréttablađiđ, 05. des. 2009 06:00

Opiđ bréf til karlmanna

Höskuldur Sćmundsson skrifar um kynbundiđ ofbeldi
Höskuldur Sćmundsson skrifar um kynbundiđ ofbeldi

Kæri bróðir. Miðvikudaginn 25. nóvember fór ég í göngu. Þetta var góð ganga, bjartsýni, blöðrur og stjörnuljós einkenndu hana en það var annað sem ég staldraði við. Það var sú staðreynd að aðeins örfáir karlmenn tóku þátt í henni. Kannski hefði það ekki skipt öllu máli ef ekki hefði verið um að ræða göngu gegn kynbundnu ofbeldi.

Ég varð hugsi yfir því hversu fáir kynbræður mínir tóku þátt í göngunni. Ekki batnaði það þegar ég var spurður hvað ég væri að gera þarna. Kynbundið ofbeldi virðist nefnilega vera kvennamál og hér er rétt að taka fram að það voru kvenskörungar sem ég met mikils sem spurðu en ekki einhverjir gamlir karlfauskar.

Nýverið héldu Ungir jafnaðarmenn tvo fundi þar sem fjallað var um dapurleg mál, annars vegar um kynbundið ofbeldi og hins vegar mansal. Fundirnir heppnuðust vel sem slíkir en helstu niðurstöður voru svo sláandi að rétt er að birta þær hér:

• Rúmlega 22.000 konur á Íslandi hafa verið beittar alvarlegu kynferðislegu ofbeldi
• Gera má ráð fyrir því að fimmta hver stúlka undir 18 ára aldri sé misnotuð kynferðislega
• Tíundi hver strákur undir 18 ára aldri er misnotaður kynferðislega
• Þriðja hver kona á Íslandi segist hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi
• Götuvændi á Íslandi er að aukast
• Alla vega 59 konur hafa verið fórnarlömb mansals hérlendis skv. rannsóknum og líklega eru þær mun fleiri

22.000 íslenskar konur hafa orðið fyrir nauðgun eða tilraun til nauðgunar. Tuttugu og tvö þúsund. Þetta er auðvitað ekkert annað en faraldur. Og samkvæmt því sem maður heyrir er aðgerðaáætlun, sem unnin var fyrir örfáum árum vegna kynbundins ofbeldis, ekki virk. Kannski er skýringa meðal annars að leita í því viðhorfi sem tekur á móti manni þegar mætt er í göngu á borð við þá sem nefnd var í upphafi þ.e. að kynbundið ofbeldi sé bara kvennamál.

Í langflestum tilfellum eru það karlar sem nauðga. Það er því miður staðreynd og það er þess vegna sem ég geri mér far um að fara yfir götuna þegar ég er einn úti að ganga að kvöldi til og mæti konu sem er líka ein. Hvað þarf að breytast í samfélaginu til þess að konur þurfi ekki að óttast að mæta karlmanni á gangi og ég þurfi ekki að labba yfir götuna? Svarið er auðvitað ekki einfalt en ég vil nefna tvennt sérstaklega í þessu samhengi. Annars vegar að það er ákaflega mikilvægt að stjórnsýslan geri sér samhæfða aðgerðaáætlun um kynbundið ofbeldi á svipaðan hátt og gert var í kringum mansal og hefur sannað gildi sitt nýlega. Og ekki bara útbúa áætlunina, heldur vinna eftir henni. Þá er ekki síður mikilvægt að við karlar sýnum jafn mikinn áhuga á þessum málaflokki og konur og látum ekki þar við sitja heldur sýnum hann líka í verki.

Og þá er komið að kjarna þessa bréfs til þín kæri kynbróðir: Taktu þátt! Sýndu í verki að þér sé ekki sama um þessi mál. 22.000 konur. Þetta eru mæður okkar, dætur, systur, frænkur og vinkonur. Og við þetta bætast líka synir okkar, feður, bræður, frændur og vinir. Þetta er ekki einkamál 50% þjóðarinnar. Þetta er óásættanlegt samfélagsmein.

Bræður, hvar sem við stöndum í pólitík, hvar sem við stöndum í samfélaginu, sýnum að við höfum áhuga á raunverulegu jafnrétti! Þetta er þjóðfélagsmein sem okkur ber siðferðisleg skylda til að uppræta.
Bróðir, taktu þátt. Stöðvum kynbundið ofbeldi!

Höfundur er varaformaður Ungra jafnaðarmanna.




Fleiri fréttir

Ađsendar greinar 09. sep. 2010 06:00

Ţjónustumiđstöđ nćrsamfélagsins

Í öllum hverfum borgarinnar, í hverjum bć og hverri sveit er ţjónustumiđstöđ á formi sókna...  

Meira

Ađsendar greinar 09. sep. 2010 06:00

Siđferđi í útrýmingarhćttu

Föstudaginn 3. september síđastliđinn var í tilefni Ljósanćtur í Reykjanesbć afhjúpađ list...  

Meira

Ađsendar greinar 08. sep. 2010 06:00

Víxlarekkinn í Alţingishúsinu

Svo háttađi til árum saman ađ viđ innganginn í sal neđri deildar Alţingis stóđ rekki úr ha...  

Meira

Ađsendar greinar 08. sep. 2010 06:00

Ţróttmikil Norđurlönd – aflvana Ísland

Tímaritiđ Newsweek gerđi nýlega úttekt á 100 löndum međ ţađ ađ markmiđi ađ velja bestu hag...  

Meira

Ađsendar greinar 08. sep. 2010 06:00

Réttlćti réttarríkisins

Mál ríkisins gegn nímenningunum heldur áfram í dag og mun Ragnar Ađalsteinsson, verjandi f...  

Meira

Ađsendar greinar 07. sep. 2010 06:00

Guđ láti gott á vita

Jón Baldvin Hannibalsson er farinn ađ láta á sér bera aftur. Ţađ sýnir ađ sumri hallar. Á ...  

Meira

Ađsendar greinar 07. sep. 2010 06:00

Ráđherrar fái leyfi frá ţingstörfum

Fyrr í sumar samţykkti flokksstjórn Samfylkingarinnar tillögu ţess efnis ađ ráđherrar Samf...  

Meira

Ađsendar greinar 07. sep. 2010 06:00

Tími til ađ standa á eigin fótum

Fram til ţessa hefur okkur tekist ađ ná frekar mjúkri lendingu hagkerfisins međ m.a. gjald...  

Meira

Ađsendar greinar 07. sep. 2010 06:00

Hvar er rannsóknarnefndin?

Á nokkrum mánuđum hefur Besti flokkurinn sýnt ađ ef ríkur vilji er fyrir hendi er hćgt ađ ...  

Meira

Ađsendar greinar 07. sep. 2010 06:00

Og hvađ svo?

Ţađ er ástćđa til ađ óska nýjum ráđherrum og ríkisstjórninni í heild sinni velfarnađar í e...  

Meira

Ađsendar greinar 06. sep. 2010 06:00

Ábyrgđarleysi og kyrrstađa

Felst einhver kyrrstađa í uppgjöri skulda? Í fréttum í framhaldi af skuldauppgjöri Björgól...  

Meira

Ađsendar greinar 06. sep. 2010 06:00

Fyrirgef oss ţeirra skuldir

Ökumađur sem uppvís er ađ ţví ađ hafa neytt áfengis ótćpilega áđur en hann settist undir s...  

Meira

Ađsendar greinar 04. sep. 2010 06:00

Hvers vegna sagđi ég mig ekki úr ţjóđkirkjunni?

Nú eru hin ógurlegu mánađamót liđin sem gera Hagstofunni kleift ađ taka saman fórnarkostna...  

Meira

Ađsendar greinar 04. sep. 2010 06:00

Hvernig Alţingi?

Nú beinist athygli okkar ađ Alţingi ţegar ţađ kemur aftur saman. Ţingiđ er mikilvćgasta st...  

Meira

Ađsendar greinar 03. sep. 2010 06:30

Leikjastefna Reykjavíkur

Af hverju eru ekki fleiri ungbarnarólur á leikvöllum? Getur borgin ekki sett niđur brettag...  

Meira

Fréttir

Vinsćlast

Einfalt og hollt fyrir börnin

Einfalt og hollt fyrir börnin

Mörgum foreldrum ţykir matur grunnskólabarna einhćfur og ekki nćgilega hollur. L...


Nýtt á Vísi

Nćrmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni