- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Fleiri af stærstu bönkum Danmerkur hafa lagt fjármagn í fasteignakaup og rekstur þekktra meðlima mótorhjóla/glæpasamtakana Hells Angels og Bandidos. Bankarnir hafa einkum verið duglegir að fjármagna klúbbhús þessara samtaka víða í landinu.
Mikil umfjöllun hefur verið um fjármál og umfangsmikinn fyrirtækjarekstur Hells Angels og Bandidos í dönskum fjölmiðlum undanfarna daga. Bæði lögreglan og skattayfirvöld standa fyrir umfangsmiklum rannsóknum á þessu fjármálastússi.
Berlingske Business hefur rannsakað tengsl danskra banka við fyrrgreind samtök. Meðal annars hefur blaðið komist að því að Fiona Bank hefur lánað til höfuðstöðva Hells Angels hópsins Nomads á Amager og Danske Bank er fjárhagslegur bakhjarl Bandidos forsetans Jan Bachmann Nielsen og fyrirtækja í hans eigu.
„Þótt erfitt sé að alhæfa er hægt að undrast að viðskiptageirinn blandar geði við fólk úr þessum samtökum," segir Kim Kliver í samtali við Berlingske en Kliver er forstjóri Dönsku rannsóknarmiðstöðvarinnar (Det Nationale Efterforskningcenter) sem kemur að rannsóknum bæði lögreglu og skattsins. „Það er óheppilegt að senda frá sér skilaboð sem gefa slíkum samskiptum viðurkenningarstimpil."
Viðskiptum dönsku bankanna við Hells Angels og Bandidos má skipta í tvo flokka. Í fyrsta lagi er um að ræða veð í húsnæði samtakanna gegn lánum til þeirra og í öðru lagi er um bein viðskipti við fyrirtæki þeirra að ræða. Yfirvöld benda hinsvegar á að það sé einkum fyrirtækjareksturinn sem sé notaður til peningaþvættis á gróða frá glæpastarfsemi eins og eiturlyfjaviðskiptum.
Fram hefur komið að dönsk skattayfirvöld vinna að rannsókn sinni eftir svokölluðu Al Capone líkani. Glæpaforinginn Al Capone var með morð tuga manna á samviskunni en bandarískum yfirvöldum tókst fyrst að koma honum í fangelsi þegar þau gátu sannað á hann skattsvik.
Velta Lego jókst um 34% á fyrstu sex mánuđum ársins, eđa úr 4,4 milljörđum danskra króna á...
Norrćna ferđaskrifstofan Kilroy Travel hefur í vikunni innreiđ sína á ný á íslenskan ferđa...
Ţađ er víđar en á Íslandi sem mikill afgangur er af vöruskiptum. Í Danmörku hefur aldrei í...
Japönsk stjórnvöld segja ađ sjálfsmorđ og ţunglyndi hafi kostađ japanska hagkerfiđ um 32 m...
Ofurfjárfestirinn George Soros segir ađ hann muni gefa bandarísku mannréttindasamtökunum H...
Seđlabankinn áćtlar ađ vaxtakostnađur viđ lánin sem tekin voru í tengslum viđ efnahags-áćt...
Fatavörukeđjan H&M hefur ákveđiđ ađ setja á fót nýtt hvatakerfi fyrir starfsmenn fyrirtćki...
Stćrsta skattahneyksli í sögu Danmerkur er líklega í uppsiglingu. Upphćđin nemur 1.000 mil...
Tveir af ríkustu mönnum heimsins hafa bođiđ kínverskum auđmönum til veislu í Bejing. Töluv...
House of Fraser mun í ţessari viku setja á markađ vörumerkiđ Biba ađ nýju, en fyrirtćkiđ k...
Dönsk stjórnvöld gáfu nýlega sjónvarpsstöđvum leyfi til ţess ađ nota svokallađa vöruísetni...
Tekjur Ruperts Murdoch, eiganda dagblađanna The Times, The Sun og News of The World lćkkuđ...
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson segir ađ íslensku bankarnir sem hrundu ha...