Vísir, 07. feb. 2010 10:00

NBA-deildin: James óstöðvandi í ellefta sigurleik Cavs í röð

mynd
LeBron James. Nordic photos/AFP

Ómar Þorgeirsson skrifar:

Ellefu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar sem hæst bar stórleikur LeBron James í 113-106 sigri Cleveland Cavaliers gegn New Yok Knicks en Cleveland hefur nú unnið ellefu leiki í röð.

James gerði sér lítið fyrir og skoraði 47 stig, tók 8 fráköst og átti 8 stoðsendingar en hinn ótrúlegi James skoraði 35 stig í fyrri hálfleik og þar af 23 stig í fyrsta leikhlutanum.

James var allt í öllu hjá Cleveland og skorað meðal annars 24 stig í röð fyrir liðið í fyrri hálfleiknum. James kórónaði svo frábæran leik sinn með því að gera endanlega út um leikinn á lokamínútunni þegar New York var byrjað að saxa á forskot heimamanna.

Shaquille O'Neal átti einnig fínan leik fyrir Cleveland og skoraði 19 stig en Nate Robinson var stigahæstur hjá gestunum með 26 stig.

Úrslitin í nótt:
Cleveland-New York 113-106
Charlotte-New Orleans 99-104
Detroit-New Jersey 99-92
Chicago-Miami 95-91
Minnesota-Memphis 109-102
Houston-Philadelphia 95-102
Milwaukee-Indiana 93-81
Utah-Denver 116-106
Portland-LA Lakers 82-99
Golden State-Oklahoma City 95-104
LA Clippers-San Antonio 81-98





Fleiri fréttir

Körfubolti 19. mar. 2010 09:00

NBA: Denver og Orlando unnu

Orlando vann útisigur gegn Miami í framlengdum leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. V...  

Meira

Körfubolti 19. mar. 2010 08:00

ÍR í úrslitakeppnina - Myndasyrpa

ÍR gerði sér lítið fyrir í gær og nældi í sæti í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kar...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 22:32

Þessi lið mætast í úrslitakeppninni

Æsispennandi lokaumferð í deildarkeppni Iceland Express-deildar karla er lokið og nú er lj...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 22:30

Pavel: Ég hlakka til að mæta þeim aftur í úrslitakeppninni

Pavel Ermolinskij átti frábæran leik í kvöld þegar KR tryggði sér deildarmeistaratitilinn ...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 22:29

Ingi Þór: Þeir fengu að taka alltof mikið að fráköstum

Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, þurfti að sætta sig við 90-86 tap fyrir KR í lok...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 22:28

Fannar Ólafsson: Við heyrðum inn á völlinn að ÍR væri búið að vinna

Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, tók við deildarmeistaratitlinum annað árið í röð eftir 90-8...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 22:27

Brynjar: Gott að klára þetta á okkar forsendum

Brynjar Þór Björnsson lék vel með KR í Stykkishólmi í kvöld og átti mikinn þátt í 90-86 si...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 22:22

Umfjöllun: Jarvis skaut ÍR í úrslitakeppnina

Í kvöld varð ljóst að ÍR-ingar munu taka þátt í úrslitakeppninni en þeir sigruðu Grindavík...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 22:19

Hreggviður: Þetta var verðskuldaður sigur

„Þetta var öflugur og verskuldaður sigur hér í kvöld. Við vorum grimmari og börðumst eins ...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 22:15

Ólafur: Náðum bara ekki að stöðva þá

Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavík, var að vonum svekktur eftir tap gegn ÍR í kvöld en l...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 20:51

KR deildarmeistari í körfubolta

KR tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express-deild karla með sigri á Snæfelli ...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 15:30

Grindavík: Átta sigurleikir í röð án eins eða fleiri lykilmanna

Grindvíkingar eiga möguleika á því að verða deildarmeistarar í Iceland Express karla í kör...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 14:00

Úrslitin ráðast í Iceland Express deild karla í kvöld

Rúnar Birgir Gíslason fréttastjóri Karfan.is, hefur lagst yfir stöðutöfluna og úrslit vetr...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 09:03

Michael Jordan orðinn eigandi Charlotte Bobcats

Michael Jordan, besti körfuboltamaður allra tíma, er orðinn aðaleigandi Charlotte Bobcats ...  

Meira

Körfubolti 18. mar. 2010 09:00

NBA: Cleveland tryggði sér toppsætið

LeBron James skoraði 32 stig í sigri Cleveland Cavaliers á Indiana Pacers í nótt 99-94. M...  

Meira

Leit á Vísi

Íþróttir


Nýtt á Vísi

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Körfubolti"--