- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur í Grindavíkurliðinu sem vann ÍR í kvöld og komst þar með í úrslitaleik Subway-bikarsins. Leikurinn endaði 91-78 en ÍR-ingar voru vel inni í leiknum og munurinn var fjögur stig fyrir síðasta leiklutann.
„Þetta var ströggl. við vorum ekki að spila vel þó það hafi komið góðir kaflar," sagði Páll. „Við misstum dampinn aðeins í lok fyrri hálfleiks. Við vorum með hausinn í rassgatinu og þeir gerðu leik úr þessu en á endanum var þetta tiltölulega öruggt. Þetta var hörkuleikur og þannig eiga bikarleikir að vera."
En af hverju missti liðið dampinn? „Við spiluðum vel í byrjun en ÍR-ingar virtust að sama skapi ekki alveg til í verkefnið. Ég veit ekki hvað gerist svo, þeir spýta bara í lófana og við töpuðum boltanum í tíma og ótíma. Ég vil ekki meina að þeir hafi verið að spila svona góða vörn, við bara réttum þeim boltanum og þá jafnaðist leikurinn," sagði Páll.
Grindavík mætir Snæfelli í bikarúrslitaleiknum en Snæfellingar unnu Keflavík á sunnudag. „Það verður áskorun að mæta Snæfelli í þessum úrslitaleik. Ég sá leik þeirra gegn Keflavík þar sem þeir virkuðu mjög ferskir. Mér lýst vel á þetta. Við erum nokkuð brattir eftir gott gengi að undanförnu."
Michael Jordan, besti körfuboltamaður allra tíma, er orðinn aðaleigandi Charlotte Bobcats ...
LeBron James skoraði 32 stig í sigri Cleveland Cavaliers á Indiana Pacers í nótt 99-94. M...
KR-konur eru í vænlegri stöðu í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Haukum í Iceland Express-dei...
"Það vantaði bara herslumuninn hjá okkur í kvöld," sagði Henning Henningsson, þjálfari Hau...
Signý Hermannsdóttir átti flottan leik með KR í kvöld þegar deildarmeistararnir komust í 2...
Haukakonan Heather Ezell var að venju allt í öllu í liði Hauka í 75-79 tapi fyrir KR í und...
Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR, var kát eftir baráttusigur á móti Haukum undanúrslitu...
Kvennalið KR steig stórt skref í átt að úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar kvenna með ...
Annar leikur deildarmeistara KR og bikarmeistara Hauka í undanúrslitum Iceland Express dei...
Annað kvöld er lokaumferð Iceland Express-deildar karla. KR og Grindavík eiga bæði mögulei...
LeBron James var með þrefalda tvennu fyrir Cleveland Cavaliers sem vann Detroit Pistons 11...
Staðan í undanúrslitaeinvígi Keflavíkur og Hamars í Iceland Express-deild kvenna er 1-1 ef...
Þó svo Gilbert Arenas, leikmaður Washington Wizards, skaði sjálfan sig í nánast hvert eina...
Helena Sverrisdóttir verður í eldlínunni með TCU í úrslitakeppni bandarísku háskóladeildar...
Los Angeles Lakers vann sigur á Golden State Warriors 124-121 í NBA-deildinni í nótt. Með ...
Deportivo Quito frá Ekvador mætti Internacional frá Brasilíu í Libertadores-bika...