- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Arion banki hefur nú höfðað mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna persónulegra ábyrgða sem hann og faðir hans tókust á hendur þegar Samson fékk lán hjá Búnaðarbankanum vorið 2003 til að kaupa Landsbankann. Skuld feðganna stendur í tæpum sex milljörðum króna í dag.
Þegar Landsbankinn var einkavæddur vorið 2003 var þriðjungur kaupverðsins sem Samson greiddi fyrir bankann fjármagnaður með láni hjá Búnaðarbanka Íslands. Halldór J. Kristjánsson, þáverandi bankastjóri Landsbankans, var gerður út af örkinni til að óska eftir láni upp á 3,4 milljarða króna fyrir væntanlega eigendur, en á þessum tímapunkti höfðu Björgólfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson ekki fengið lyklavöld í bankanum og var hann því enn að forminu til ríkisbanki þegar þetta átti sér stað.
Lánið til Samsonar var formlega afgreitt hinn 25. apríl 2003 en í nokkrar vikur þar á undan hafði verið unnið að lánasamningnum. Elín Sigfúsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Búnaðarbankans, undirbjó lánveitinguna, en hún var sem kunnugt er einn fjölmargra starfsmanna Búnaðarbankans sem ráðnir voru yfir til Landsbankans í apríl 2003.
Lánið stendur nú í 6 milljörðum króna með dráttarvöxtum og er hjá Arion banka. Þegar lánið var veitt á sínum tíma gerði Sólon Sigurðsson, þáverandi bankastjóri Búnaðarbankans, þá kröfu að feðgarnir tækjust á hendur persónulega ábyrgð samfara láninu. Á síðasta ári þegar tilraunir Nýja Kaupþings við innheimtu kröfunnar hófust fyrir alvöru voru feðgarnir reiðubúnir að greiða helming skuldarinnar gegn niðurfellingu á hinum helmingnum. Á þetta var ekki fallist af hálfu bankans. Nú er svo komið að bankinn hefur stefnt Björgólfi Thor til innheimtu skuldarinnar á grundvelli hinnar persónulegu ábyrgðar, en bankinn stefnir honum einum þar sem Björgólfur Guðmundsson er gjaldþrota.
Ef dómur gengur í málinu getur bankinn gengið að eignum Björgólfs Thors, en hann á bæði fasteignir og hluti í fyrirtækjum á Íslandi. Þar má til dæmis nefna Vern Holdings, tölvuleikjafyrirtækið CCP, fjarskiptafyrirtækið Nova og lyfjasamsteypuna Actavis. Talsmaður Björgólfs Thors sagði í samtali við fréttastofu að Björgólfi væri ekki kunnugt um málshöfðunina og hefði til þessa litið svo á að hann væri enn í samningaviðræðum við Arion banka.
Laun hjá opinberum starfsmönnum hćkkuđ mest af öllum starfsstéttum milli áranna 2008 og 20...
William Underhill einn af blađamönnum tímaritsins Newsweek segir í grein í nýjasta tölubla...
„Engin plön eru á mínum borđum um ađ opna búđ í London," segir Jón Ásgeir Jóhannesson í sa...
Í ársreikningi Lánasjóđs sveitarfélaga (LSS) fyrir síđasta ár kemur fram ađ alls skulda 16...
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrum stjórnarformađur Baugs Group, er ađ undirbúa opnun ţriggja ...
Lánasjóđur sveitarfélaga (LSS) skilađi ágćtu uppgjöri fyrir síđasta ár. Hagnađur af starfs...
Gott jafnvćgi er komiđ á útlánasafn Kaupţings, sem er međ tvö lánasöfn í virkri stýringu: ...
Alls voru um 112 milljarđar króna í vanskilum af sköttum og opinberum gjöldum hjá atvinnul...
Sćnska félagiđ Securitas AB hafnar ţví ađ vörumerkiđ Securitas fylgi međ í kaupunum á ţrot...
Afskráning međ ţeim hćtti sem Bakkavör áformar er ekki hafin yfir vafa, ađ mati Ţórđar Fri...
Seđlabankastjóri segir ađ hćgt sé ađ koma í veg fyrir greiđslufall ríkisins, hvort sem erl...
Innri starfsemi SPRON sćtti rannsókn í ađdraganda ađ yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á spari...
Gengi hlutabréfa í Icelandair Group hćkkađi um tíu prósent í Kauphöllinni í dag en ţađ er ...
Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hćkkađi um 0,6% í dag í miklum viđskiptum eđa 20,2 milljör...
Nćstkomandi laugardag mun Bílabúđ Benna frumsýna Porsche 911 Sport Classic. Ţessi bíll er ...
Fjárfestagođsögnin Jim Rogers er ekki ađ skafa af hlutunum í sýn sinni á framtíđ...