Vísir, 09. feb. 2010 11:04

Magma Energy stofnar íslenskt dótturfélag

mynd
Ásgeir Margeirsson.

Kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation, sem á 40,94% hlut í HS Orku í gegnum dótturfyrirtæki sitt Magma Energy Sweden AB, hefur sett á stofn dótturfyrirtæki hér á landi, Magma Energy Iceland ehf.

Í tilkynningu segir að Magma er ennfremur með samning um kaup á 2,16% hlut í HS Orku til viðbótar sem búist er við að ljúki í mars 2010. Magma Energy Iceland ehf. er til húsa í Reykjanesbæ og hefur Ásgeir Margeirsson, sem áður stýrði Geysi Green Energy, verið ráðinn forstjóri hins nýja félags. Nokkrir af fyrrum starfsmönnum Geysis hafa og verið ráðnir til Magma Energy Iceland ehf.

„Með stofnun dótturfyrirtækis á Íslandi vill Magma undirstrika mikilvægi Íslands í uppbyggingu félagsins á alþjóðavísu og fylgja eftir fjárfestingum sínum hér á landi, til að styðja við starfsemi og uppbyggingu HS Orku" segir Ásgeir Margeirsson.

„Við höfum leigt húsnæði að Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ og erum að koma okkur þar fyrir. Auk þess að vinna að verkefnum hér á landi munu starfsmenn Magma á Íslandi koma að jarðhitaverkefnum Magma víða um heim. Hér skapast því nýtt tækifæri fyrir íslenska jarðhitasérfræðinga til þátttöku í verkefnum erlendis."

Vetrarólympíuleikarnir 2010 verða haldnir í Vancouver í Kanada 12.-28. febrúar nk. en Magma Energy er með höfuðstöðvar í þeirri borg. Er Magma einn styrktaraðila Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands vegna leikanna og mun fyrirtækið greiða götu íslenska ólympíuliðsins þar vestra meðan á leikunum stendur.

Magma Energy er kanadískt jarðhitafyrirtæki sem vinnur að þróun og uppbyggingu jarðvarmavirkjana víða um heim, m.a. á Íslandi, í Bandaríkjunum, Chile og Perú. Magma er almenningshlutafélag, skráð á hlutabréfamarkað í Toronto í Kanada. Stofnandi Magma og forstjóri er Ross J. Beaty jarðfræðingur. Hann er varaformaður stjórnar HS Orku.








Fleiri fréttir

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 21:01

Forsætisráðherra: Erum ekki að fara selja orku fyrir Icesave

„Þetta er bara uppspuni, forsætisráðherra hefur ekki tekið neina afstöðu í þessu né skoðað...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 18:47

Glitnir lánaði Byr og Byr lánaði FL Group sömu upphæð

Glitnir lánaði Byr Sparisjóði þrjá milljarða króna á sama tíma og sjóðurinn lánaði FL Grou...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 18:35

Kaupþing rannsakar 20 aflandsfélög vegna tugmilljarða viðskipta

Skilanefnd Kaupþings hefur tekið rúmlega 20 félög og félagasamstæður í þekktum skattaskjól...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:21

Planck stofnunin býður stjórnvöldum lausn á Icesave

Planck stofnunin í Hollandi (Planck Foundation) hefur boðið íslenskum stjórnvöldum áætlun ...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 17:23

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,35 prósent

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hækkaði um 1,58 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylg...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 16:02

Áfram mikil velta á skuldabréfamarkaði

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 16,8 milljarða kr. viðskiptum. GAM...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:42

Eyrir Invest tapaði fjórðum milljörðum króna

Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest tapaði rúmum 23,6 milljónum evra í fyrra. Þetta jafngild...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:32

Endurskipulagning Farice framlengd til 1. apríl

Samkomulag það sem Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og kröfuhafar þess gerðu í desember 2009...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:13

Íslandsbanki setur Hafnarslóð í söluferli

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 14:18

Orkuveita Reykjavíkur tapaði 2,5 milljörðum í fyrra

Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBI...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 13:50

Hagnaður Landsvirkjunar nam 24,4 milljörðum í fyrra

Hagnaður Landsvirkjunnar á síðasta ári nam 193 milljónum dollara sem svarar til um 24,4 mi...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 12:06

Innflutningur á byggingarefnum hefur hrapað

Minnkandi umsvif byggingariðnaðarins koma glögglega í ljós þegar tölur Hagstofunnar um inn...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 09:49

MIT Global Startup Workshop haldin á Íslandi

Dagana 24. - 26. mars nk. fer fram á Íslandi ein virtasta frumkvöðlaráðstefna í heiminum, ...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 09:11

Vísitala byggingarkostnaðar hækkar lítilega

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan mars 2010 er 101,1 stig sem er hækkun um 0,3...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 08:04

Greining: Verðbólgan verður 8,9% í mars

Greining MP Banka reiknar með því að ársverðbólgan fari í 8,9% í marsmánuði og aukist því ...  

Meira

Leit á Vísi

Viðskipti


Nýtt á Vísi

Markaðurinn

Markaðurinn

Viðskiptaorðabók

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni