Lífið

Ricky Martin kominn út úr skápnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Martin opinberaði samkynhneigð sína í gær. Mynd/ AFP.
Martin opinberaði samkynhneigð sína í gær. Mynd/ AFP.
Söngvarinn Ricky Martin tilkynnti opinberlega í gær að hann væri samkynhneigður. Hann batt þar með enda á áralangar vangaveltur aðdáenda sinna um kynhneigð sína.

Martin hefur selt yfir 60 milljónir hljómdiska á söngferli sínum sem hefur spannað þrjá áratugi. Hann sagði á vefsíðu sinni að hann væri ánægður með hlutskipti sitt. Hann bætti því jafnframt við að hann hefði haldið kynhneigð sinni leyndri vegna þess að ráðgjafar hefðu sagt að það myndi skaða hann ef hann greindi frá samkynhneigð sinni.

Frægasti söngsmellur Ricky Martins er Livin' La Vida Loca sem kom út árið 1999.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×