Ástráður gefur tíu þúsund smokka í ágúst Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 31. júlí 2009 20:03 Það verður lítið um slysabörn á Gay Pride ef Ástráður fær einhverju um ráðið, hvað þá um Verslunarmannahelgina og Menningarnótt. Mynd/Valli
Þeir sem stigu um borð í Herjólf í dag fengu óvæntan glaðning þegar læknanemar færðu þeim smokka að gjöf inn í helgina að sögn Júlíusar Kristjánssonar, formanns verkefnisins Ástráðs. Ástráður, sem er forvarnastarf læknanema, kemur til með að dreifa tíu þúsund smokkum á þremur stórhátíðum í ágústmánuði ókeypis. Fyrst ber að nefna Verslunarmannahelgina, þar sem Ástráður verður með smokka í Vestmannaeyjum, á Ísafirði, á Akureyri og í Reykjavík. Þá verður smokkum einnig dreift á Gay-Pride hátíðinni um næstu helgi og Menningarnótt í Reykjavík síðar í mánuðinum. Læknanemar munu sjá um dreifinguna í sjálfboðavinnu og leggja þannig sitt á vogarskálarnar til að gera þessar þrjár gleðihelgar áfallalausar og skemmtilegri fyrir alla. Verkefnið er unnið í samstarfi við Halldór Jónsson ehf., innflytjanda Durex á Íslandi og hefur verið starfrækt síðustu ár. „Á meðan Durex eru fúsir að gefa okkur þetta, þá erum við fús til að gefa vinnu okkar til að reyna að halda fólki heilbrigðu og koma í veg fyrir óþarfa kostnað fyrir ríkið og fólkið sjálft með óléttu unglingsstúlkna, fóstureyðingum og þess háttar," segir Júlíus, en fólk er að hans sögn mjög fegið smokkagjöfinni. Markmið Ástráðs með verkefninu er að efla forvarnir og umræðu, draga úr kynsjúkdómasmitum, kynferðisofbeldi og ótímabærum þungunum, en læknanemarnir fara einnig í skóla með forvarnastarf á haustin.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira