Körfubolti

Dirk er mikill eðalnáungi og góður gaur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór teygir hér fyrir leik liðsins gegn Dirk og félögum á morgun
Jón Arnór teygir hér fyrir leik liðsins gegn Dirk og félögum á morgun Vísir/getty
Fyrsti mótherji Íslands á Eurobasket er Þýskaland en þar mun íslenskt landsliðið mæta í fyrsta sinn leikmanni sem hefur verið kosinn bestur í NBA-deildinni.

Dirk Nowitzki er reyndar orðinn 37 ára og það er næstum því áratugur síðan að hann var besti leikmaður NBA-deildarinnar. Dirk er hinsvegar enn á fullu með Dallas Mavericks þar sem hann spilaði með Jóni Arnóri Stefánssyni á sínum tíma. Þeir voru liðsfélagar tímabilið 2003 til 2004.

 

„Við vorum saman í heilt ár hjá Dallas og ég eyddi á sínum tíma mestum tímanum við honum og Steve (Nash). Við þekkjumst ágætlega. Ég hitti hann síðasta sumar þegar ég fór út til Dallas. Við náðum aðeins að rifja upp kynnin þar," segir Jón Arnór sem hitti Dirk og aðra fyrrum samherja á hótelinu þar sem öll liðin gista saman.

 

„Hér í Berlín hef ég rekist á hann í matsalnum og eftir æfingar. Þetta er mikill eðalnáungi og góður gaur. það er því alltaf gaman að hitta hann," segir Jón Arnór.

 

Það að Dirk Nowitzki ákvað að spila með þýska landsliðinu styrkir liðið gríðarlega enda illviðráðanlegur með mikla hæð og frábæra skottækni.

 

„Það er frábært fyrir Ísland að fá að mæta svona leikmanni. Það er skemmtileg reynsla fyrir alla að taka þátt í þessu en ekki bara útaf honum því það eru fleiri stórstjörnur í þessu móti," segir Jón Arnór en hann talar vel um Þjóðverjann hávaxna.

 

„Dirk Nowitzki er einn af þessum stóru og það hefur verið unun að horfa á hann í gegnum tíðina. Ég held að það sé flestir hérna aðdáendur hans og hafa alltaf haldið með honum því hann er góður gaur. Það sést mjög vel á vellinum og það verður því aðeins fallegra að spila móti honum en hinum," sagði Jón Arnór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×