Innlent

Eddu Sif líka sagt upp

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
„Ég fylgi frábærum hópi úr útvarpshúsinu og það gleður væntanlega marga,“ segir Edda Sif Pálsdóttir, sem hefur starfað sem íþróttafréttamaður á RÚV  á Facebook síðu sinni nú fyrir stuttu.Edda er eins og mörgum er eflaust kunnugt dóttir Páls Magnússonar útvarpsstjóra.

„Ég missti mína vinnu þó að ég hafi ekki skrifað Facebook-status um það fyrir DV að birta í live feed-inu sínu af hörmungarástandinu í Efstaleiti eins og um fótboltaleik vær að ræða,“ segir Edda á síðunni.

„Ég þarf að sætta mig við það að þurfa að gjalda þess að vera dóttur föður míns, alveg sama hversu mikið ég hef lagt mig fram,“ segir Edda ennfremur.

Edda segir að nú sé henni ofboðið, sérstaklega eftir að hún áttaði sig á því að hún hætti sér varla út fyrir hússins dyr, en hingað til hafi hún ekki tekið samfélagsumræðuna nærri sér. Í gær hafi hún lent í því að fullyrt hafi verið við hana af manni að henni hefði verið „haldið“ á kostnað annarra af því að annað hafi ekki staðið á netmiðlum.

„Í alvörunni,“ segir Edda. „Í dag dreymir mig um að fólk treystir aðeins á eigið heilabú og lepji ekki upp allt sem það sér eða heyrir, ég get t.d. fullvisstað ykkur um það að að aldrei hefur birt frétt mér tengd á vefnum dv.is sem er efnislega rétt.“

Edda segist hafa sótt um starf íþróttafréttamanns á RÚV áhugans vegna en ekki af einskærri þörf til að vera nálægt föður sínum. Engum hefði verið gerður greiði með því að ráða hana vanhæfa og áhugalausa; ekki deildinni, ekki fréttastofunni, ekki RÚV, ekki pabba hennar og allra síst henni sjálfri.




Tengdar fréttir

Margrét Erla Maack fær uppsagnarbréf

Sannkölluðu jarðarfararstemmning ríkir nú í útvarpshúsinu við Efstaleiti. Straumur fólks er upp á 5. hæð þar sem starfsmenn taka á móti uppsagnarbréfi.

„Það er áfall að fá þessar fréttir“

"Ég veit að þessi blóðtaka RÚV núna mun bitna mjög mikið á stofnuninni og framtíð hennar,“ segir Jóhannes Kr. Kristjánsson, sjónvarpsmaður í Kastljósinu, sem var í dag sagt upp störfum á Ríkissjónvarpinu.

Linda Blöndal og Jóhannes Kr. fara

Enn bætist í hóp þeirra sem sagt hefur verið upp á Ríkisútvarpinu. Undirskriftasöfnun þar sem uppsögnum er mótmælt hefur verið stofnuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×