Ekkert meirihlutasamstarf án heilinda Garðar Örn Úlfarsson skrifar 22. maí 2013 06:00 Sakar bæjarfultrúa Sjálfstæðisflokks um óheilindi og vill skýr svör um framhaldið. „
Það segir sig sjálft að ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að starfa af heilindum í þessum meirihluta þá er náttúrlega enginn meirihluti,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Kópavogi. Fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks mynduðu í fyrra nýjan meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs með fulltrúa Y-listans og fulltrúa Framsóknarflokksins. Að sögn Ómars fóru sjálfstæðismennirnir Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, og Aðalsteinn Jónsson á síðasta bæjarstjórnarfundi óvænt gegn stefnu sem meirihlutinn hafði ákveðið varðandi afgreiðslu nýs aðalskipulags. „Það eru ekki heilindi í meirihlutasamstarfinu af hendi Sjálfstæðisflokksins. Gunnar Birgisson og Aðalsteinn Jónsson eru ekki að standa við það sem þeir eru að segja. Það er fáheyrt því miðað við þá reynslu sem ég hef haft af meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn þá hefur Gunnar aldrei sagt eitt en gert síðan annað. Það verður að koma svar við því hvort menn ætli að halda áfram að vinna svona eða koma fram af heilindum,“ segir Ómar. Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-listans, er ósátt. „Það er með ólíkindum að ítrekað skulum við standa frammi fyrir því að sami bæjarfulltrúi gangi gegn eigin meirihluta og ekki síst gegn sínu eigin fólki úr eigin flokki,“ segir Rannveig og vísar til framgöngu Gunnars I. Birgissonar. Hún segir bæjarbúa eiga skilið heiðarleg og góð vinnubrögð af hálfu allra bæjarfulltrúa. „Því gengur þetta upphlaup algerlega í berhögg við það hvernig meirihlutinn vill og hefur starfað.“
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira