Fleiri sem vilja ekki rekstur spilavíta hér á landi 20. júlí 2011 12:58 30,7 prósent landsmanna eru frekar eða mjög fylgjandi rekstri spilavíta hér á landi. Mynd úr safni
Samkvæmt nýrri könnun MMR fjölgar í hópi þeirra sem segjast andvíg því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi. Yfir 70 prósent karla undir þrítugu eru fylgjandi rekstri spilavíta. Kannað var hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að leyfa rekstur spilavíta á Íslandi. Af þeim sem tóku afstöðu voru 69,3 prósent sem sögðust frekar eða mjög andvíg hugmyndinni. Skipt eftir einstökum svörum voru 47,5 prósent sem sögðust mjög andvíg, 21,8 prósent sögðust frekar andvíg, 19,8 prósent sögðust frekar fylgjandi og 10,9 prósent sögðust mjög fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á Íslandi. Samkvæmt könnuninni fer því heldur fækkandi í hópi þeirra sem eru fylgjandi rekstri spilavíta á Íslandi en í könnun MMR frá í febrúar 2010 kom fram að 36,3 prósent sögðust frekar eða mjög fylgjandi rekstri þeirra samanborið við 30,7 prósent nú.Sem fyrr reyndist töluverður munur á afstöðu svarenda eftir kyni og aldri. Þannig voru 44 prósent karla sem sögðust hlynntir því að rekstur spilavíta væri leyfður en eingöngu 16 prósent kvenna. Þá reyndust 51 prósent svarenda undir þrítugu fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á meðan þetta sama hlutfall var 30 prósent hjá aldurshópnum 30-49 ára og eingöngu 14 prósent meðal 50 ára og eldri. Sé fjöldi karla undir þrítugu skoðaður sérstaklega kemur í ljós að 70 prósent svarenda í þessu hópi sögðust fylgjandi því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi. Könnunin var framkvæmd dagana 11. til 14. júlí síðastliðinn og var úrtakið einstaklingar á aldrinum 18 til 67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. 831 svöruðu spurningunni.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira