Innlent

Framsókn nærri meirihluta

Framsóknarflokkurinn fengi fjörutíu prósent atkvæða yrði gengið til kosninga nú, og mælist langstærsti stjórnmálaflokkurinn samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld.

Framsókn kemst nærri því að fá hreinan þingmeirihluta, fengi 31 þingmann af 63 og vantar aðeins einn upp á hreinan meirihluta. Fylgishrun Sjálfstæðisflokksins heldur áfram. Flokkurinn fær stuðning 17,8 prósenta og hefur fylgið hrunið um tíu prósentustig á þremur vikum.

Píratar mælast með 5,6 prósenta fylgi og yrðu samkvæmt þessu annað nýja framboðið til að ná inn á Alþingi með fjóra þingmenn. Hitt nýja framboðið, Björt framtíð, nýtur stuðnings 8,3 prósenta kjósenda og fengi miðað við það fimm þingmenn kjörna.

Stjórnarflokkarnir bíða afhroð og Vinstri græn eru ekki langt frá því að detta út af þingi. Flokkurinn fengi 5,6 prósent atkvæða yrði gengið til kosninga nú. Samfylkingin hefur tapað nær þriðjungi fylgis síns á þremur vikum og mælist með stuðning 9,5 prósenta kjósenda. Stjórnarflokkarnir njóta því samanlagt stuðnings 15,1 prósents kjósenda.

„Könnunin sýnir að Framsóknarflokkurinn er í stórsókn og Sjálfstæðisflokkurinn í svo mikilli kreppu að ég hef aldrei séð annað eins," segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor. „Þessi þróun öll gengur lengra en maður getur trúað."


Tengdar fréttir

Framsókn tekur fylgi frá öllum

Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn hefur helmingast frá því í janúar. Tæp 18 prósent styðja flokkinn nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Framsóknarflokkurinn er meira en tvöfalt stærri. Stjórnarflokkarnir eru með samanlagt 15 prós




Fleiri fréttir

Sjá meira


×