Innlent

Hátt í 20 bíla árekstur á Hafnarfjarðarveginum

Frá árekstrinum en 15-20 bílar lentu í árekstri.
Frá árekstrinum en 15-20 bílar lentu í árekstri.
Um 15 til 20 bíla árekstur varð skömmu fyrir hálf ellefu á Hafnarfjarðarveginum suður við Kópavogslækinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hafa sjúkrabílar verið kallaðir á vettvang og tækjabíll slökkviliðsins.

Þá hefur lögregla óskað eftir aðstoð kranabifreiða til þess að greiða úr flækjunni. Ekki er talið að ökumenn eða farþegar séu alvarlega slasaðir.

Veður er með versta móti og nokkuð ljóst að það er algjörlega ófært um Hafnarfjarðarveg í suður. Lögreglan vill koma þeim tilmælum til almennings að það er ekkert ferðaveður, fólk er hvatt til þess að vera heima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×