Erlent

Hótar Jólasveininum lífláti

Sveinki hugsar sig eflaust tvisvar um áður en hann svíkur Makeedu.
Sveinki hugsar sig eflaust tvisvar um áður en hann svíkur Makeedu. mynd/AFP
Eins og tíðkast víða um heim skrifaði hin 13 ára gamla Makeeda Austin jólalegt bréf til Jólasveinsins. Hún tjáði Sveinka hvað hana langaði í jólagjöf og skreytti bréfið með kossum. En Makeeda er engin venjuleg stelpa. Hún hótaði að myrða jólasveininn ef hann myndi ekki uppfylla óskir hennar.

Makeeda hefur greinilega engar áhyggjur af því að komast á óþekktarlista Jólasveinsins.

Móðir Makeedu segir í viðtali við breska blaðið The Daily mail, að dóttir sín sé afar kröfuhörð og hún óttist hvað muni gerast þegar hún fær ekki gjafirnar frá Jólasveininum.

Makeeda bað um Blackberry síma, Converse-skó, föt, peninga og Justin Bieber í jólagjöf. Móðir hennar segist ætla að reyna að gefa henni snjallsímann og eitthvað af peningum en óttast þó að hún muni týna símanum eins og hún hefur margoft gert.

En Makeeda lét sér ekki nægja að standa í morðhótunum við Jólasveininn. Hún hótaði einnig að drepa hreindýrin hans og sjóða þau.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×